Vilja banna Bandidos

Dönsk stjórn­völd vilja með lögum banna Bandidos-sam­tökin, sem í mörgum löndum eru skil­greind sem glæpa­sam­tök. Rétt­ar­höld þar sem tek­ist er á um hvort Bandidos-sam­tökin verði bönnuð í Danmörku hófust í síð­ustu viku.

Vilja banna Bandidos
Hlustaðu 05:58 · Eitt og annað

Bandidos Motorcycle Club, eins og sam­tökin heita fullu nafni, voru stofnuð árið 1966 í Texas.  Stofn­and­inn var Don Chambers, fyrr­ver­andi her­maður, sem hafði meðal ann­ars verið í Víetnam. Árið 1972 fékk hann lífs­tíð­ar­fang­els­is­dóm fyrir að hafa myrt tvo bræður. Þeir höfðu selt félögum í Bandidos efni sem átti að vera amfetamín en reynd­ist vera mat­ar­sódi. Farið var með bræð­urna út í eyði­mörk skammt frá El Paso, þar voru þeir látnir grafa sína eigin gröf og síðan skotnir. Don Chambers og félagar hans kveiktu síðan í lík­unum og mok­uðu svo yfir. Don Chambers var náð­aður árið 1983, en hann hafði látið af for­mennsku í Bandidos eftir fang­els­is­dóm­inn 1972. Don Chambers sagði sig úr Bandidos þegar hann var náð­aður en lést árið 1999. Á leg­steini hans standa auk nafns hans, ein­kunn­ar­orð Bandidos: „Við erum fólkið sem for­eldrar okkar vör­uðu okkur við.“

Aðeins Hells Angels eru fjölmennari

Eins og áður sagði voru Bandidos-sam­tökin stofnuð í Texas og þar standa þau traustum fótum í dag en sam­tals eru deildir innan sam­tak­anna í Banda­ríkj­unum um 90 tals­ins. Bandidos eru nú í um 30 löndum, félagar skipta nokkrum þús­undum og auk þess margir svo­nefndir stuðn­ings­hópar, sumir þeirra fjöl­mennir.  Bandidos eru næst­fjöl­menn­ustu og næstelstu sam­tök af þessu tagi í heim­inum, Hells Angels Motorcycle Club eru eldri og fjöl­menn­ari, stofnuð í Fontana í Kali­forníu árið 1948 og eru nú í 66 löndum. Félagar eru taldir vera rúm­lega 6 þús­und.

Nöfn Bandidos og Hells Angels-sam­tak­anna gefa til kynna að um sé að ræða félög þar sem áhuga­málin eru mót­or­hjól. Nánar til­tekið Harley-Davidson, enda er gert ráð fyrir að félag­arnir eigi slík hjól, þótt í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum megi not­ast við önnur banda­rísk hjól. Eingöngu karlar, hvitir á hör­und, eru gjald­gengir í sam­tökin. Reglur þess­ara tveggja sam­taka eru um margt líkar og innan þeirra ríkir strangur valdap­íramídi þar sem for­ing­inn trónir á toppnum. Starf­semin ein­skorð­ast ekki við að bregða sér á rúnt­inn á sunnu­dögum, stór hluti „félags­starfs­ins“ snýst um svo­kall­aða und­ir­heima­starf­semi.

Bandidos

Eins og áður var nefnt eru Hells Angels, eða Vít­isengl­arnir, eldri sam­tök en Bandidos og þeir fyrr­nefndu voru komnir til Dan­merkur árið 1980. Þar hófust þeir handa við að koma sér fyrir í und­ir­heima­starf­sem­inni, eit­ur­lyfja­sölu. Þeir sátu að mestu leyti einir að þessum mark­aði fram til árs­ins 1993. Þá var stofnuð deild úr Bandidos í Danmörku. Aðdrag­andi þess var að nokkrir danskir mót­or­hjóla­karlar frá Stenløse  á Norður-Sjálandi skruppu til Þýska­lands, aðal­lega til að fá hug­myndir að merki fyrir klúbb­inn. Þar fréttu þeir af Bandidos-sam­tök­unum sem þá voru komin til Frakk­lands og voru að und­ir­búa stofnun í Þýska­landi. Fyrir til­stilli Bandidos í Frakk­landi fengu karl­arnir frá Stenløse eins konar byrj­un­ar­að­ild að Bandidos og síðar sama ár, 1993, fulla aðild.

Tilkoma Bandidos féll ekki í góðan jarð­veg hjá Hells Angels sem sáu fram á að missa spón úr aski sínum því Bandidos ætl­aði, eins og Vít­isengl­arnir, að róa á eit­ur­lyfja­miðin. Fljótt kom til árekstra.

Gengjastríðið: Den Store Nordiske Rockerkrig

Undir lok jan­úar 1994 hófst það sem kallað hefur verið Den Store Nordiske Rockerkrig, Gengja­stríðið. Stríðið sner­ist um völdin í und­ir­heimunum þar sem Hells Angels og Bandidos börð­ust um yfir­ráðin ásamt mörgum smærri klúbbum. Víg­völl­ur­inn, ef svo má að orði kom­ast, voru Norð­ur­löndin að Íslandi und­an­teknu. Átökin stóðu fram til sept­em­ber­mán­aðar 1997. Þá tókst danska lög­mann­inum Thorkild Høyer að fá leið­toga Hells Angels og Bandidos til að takast í hendur og semja um að ljúka gengja­stríð­inu. Þessi átök kost­uðu 11 manns­líf, þar af tvo almenna borg­ara sem ekk­ert höfðu með átökin að gera og á annað hund­rað særð­ust í átökum gengj­anna. Alls fengu 138 félagar í gengj­unum fang­els­is­dóma, þar á meðal nokkrir sem dæmdir voru í lífs­tíð­ar­fang­elsi.

10 blóðug átök á 10 árum

Þótt leið­togar Hells Angels og Bandidos hafi grafið stríðs­öx­ina í sept­em­ber 1997 þýðir það ekki að allir félagar í sam­tök­unum hafi síðan setið á frið­ar­stóli. Hells Angels hafa á und­an­förnum árum verið minna áber­andi en áður en hins vegar hafa félagar í Bandidos ekki haldið sig til hlés. Á síð­asta ára­tug hafa þeir að minnsta kosti 10 sinnum tekið þátt í blóð­ugum átökum.  Dönsk stjórn­völd leggja allt kapp á að stemma stigu við upp­gangi glæpa­gengja (Bandidos eru flokkuð sem slík) í land­inu. Fyrir nokkrum árum voru sam­tökin Loyal to Familia dæmd ólög­leg, þau voru stofnuð árið 2013 og voru næstu árin mjög áber­andi. Félögum í sam­tök­unum fjölg­aði hratt og afbrotum sömu­leiðis. Árið 2018, þegar stjórn­völd ákváðu að freista þess að banna sam­tökin, sátu 100 félagar í Loyal to Familia í grjót­inu. Frá stofnun og fram til árs­ins 2018 höfðu 372 félagar í sam­tök­unum fengið fang­els­is­dóma, sam­tals 1.409 ár. Nú vilja dönsk stjórn­völd freista þess að banna Bandidos. Mála­ferlin gegn sam­tök­unum hófust 15. jan­úar og gert er ráð fyrir 38 dögum í rétt­ar­salnum. Nið­ur­stöðu er að vænta í lok ágúst á þessu ári.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eitt og annað

8 mín.
Eitt og annað

Borgþór Arngrímsson

Tromp á hendi Trumps?

Danski her­inn hefur árum saman mátt búa við nið­ur­skurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mann­skap. Slæmur aðbún­aður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækj­ast eftir her­mennsk­unni. Nýlega varð danski flot­inn að aflýsa leið­angri til Græn­lands vegna þess að ekki var hægt að manna leið­ang­urs­skipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flot­ans og geta verið vatn á myllu Banda­ríkja­for­seta.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár