Andrés Ingi til Dýraverndunarsambandsins

Andrés Ingi Jónsson, fyrr­verandi þingmaður Pírata, hefur verið ráðinn framkvæmda­stjóri Dýra­verndunar­sambands Íslands. Við ráðninguna var litið til þess hvernig Andrés hefur sem þingmaður beitt sér fyrir mann­réttindum, umhverfis­vernd og dýra­velferð.

Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Dýraverndarsambands Íslands.
Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Dýra­vernd­ar­sam­bands Íslands. Mynd: Davíð Þór

Andrés Ingi Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmda­stjóri Dýraverndar­sambands Íslands (DÍS). Hann hefur þegar hafið störf. DÍS er óháð lands­samtök sem beita sér fyrir bættri velferð dýra. Sambandið stendur vörð um lögvernd dýra og stuðlar að góðri laga­setningu og reglu­bundnu opinberu eftirliti til verndar dýrum. DÍS var stofnað þann 13. júlí 1914 og fagnaði því 110 árum á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu.

Andrés Ingi var þingmaður Pírata frá árinu 2021, þingmaður Vinstri grænna á árunum 2016-2019 og sat þess á milli sem þingmaður utan þing­flokka. Andrés Ingi er með meistara­gráðu í alþjóða­stjórnmálum frá háskólanum í Sussex.

Í tilkynningunni segir að sem þingmaður hefur Andrés Ingi beitt sér ötullega fyrir málefnum mann­réttinda, umhverfis­verndar og dýra­velferðar sem stjórn DÍS horfði sérstak­lega til við ráðningu hans sem framkvæmda­stjóra sambandsins.

Framkvæmda­stjóri DÍS ber ábyrgð á daglegum rekstri sambandsins, fjáröflun, stefnu­mótun í samstarfi við stjórn og kemur fyrir hönd DÍS í opinberri umræðu.

„Við bjóðum Andrés Inga hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins. Starf Dýraverndar­sambandsins hefur verið að vaxa á undan­förnum árum, vitund almennings er sífellt að aukast og verkefnum að fjölga, þannig að við sjáum mikil tækifæri í því að styrkja félagið á næstu misserum,“ er haft eftir Lindu Karen Gunnars­dóttur, formanni Dýraverndar­sambands Íslands.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hrefna Sigurjónsdóttir skrifaði
    Frábærar fréttir. Ég sem fyrrverandi stjórnarmaður í DÍS fagna því að samtökin geti ráðið svona öflugan mann sem framkvæmdastjóra í fullt starf..
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár