Sigurður Ingi ekki inni samkvæmt fyrstu tölum

Sam­fylk­ingin er stærst í Norð­aust­ur­kjör­dæmi þegar fyrstu tölur hafa verið birtar og Logi Ein­ars­son er fyrsti þing­maður kjör­dæm­is­ins. Í Suð­ur­kjör­dæmi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur sam­kvæmt fyrstu tölum þaðan.Sigurður Ingi Jóhann­es­son, for­maður Fram­sóknar, er ekki inni á þingi sam­kvæmt fyrstu tölum úr Suð­ur­kjör­dæmi.

Sigurður Ingi ekki inni samkvæmt fyrstu tölum
Logi Ein­ars­son er fyrsti þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis sam­kvæmt fyrstu tölum Mynd: RÚV

Fyrstu tölur bár­ust rétt fyrir klukkan 23 en þær voru úr Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þar hafði Sam­fylk­ingin fengið flest atkvæði, 23,14%, næst þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 16,17%

Sam­fylki­gin er að bæta við sig 12,7 pró­sentu­stigum. 

Miðað við þetta er Logi Ein­ars­son fyrsti þing­maður kjör­dæm­is­ins fyrir Sam­fylk­ing­una, Jens Garðar Helgason úr Sjálf­stæð­is­flokknum annar og  Sigurður Þórð­ar­son hjá Flokki fólks­ins þriðji þing­maður kjör­dæm­is­ins. 

Hlutfall atkvæða eftir fyrstu tölur úr Norð­vest­ur­kjör­dæmi en þær voru birtar eftir að 2000 atkvæði höfðu verið talin:

S

23.14%

D

16.17%

C

8.8%

M

13.99%

F

14.8%

B

13.17%

P

1.73%

J

3.1%

V

4.37%

L

0.71%

Y

0%

Efst á for­síðu Heim­ild­ar­innar má sjá nýj­ustu tölur úr taln­ingu og eru þær upp­færðar eftir því sem þær ber­ast.

Mikið var um mann­inn í Lauga­lækj­ar­skóla í dag, sem á öðrum kjör­stöðum en þeir lok­uðu klukkan 22.

Samkvæmt fyrstu tölum úr Suð­ur­kjör­dæmi er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þar stærstur og þar er Guðrún Haf­steins­dóttir fyrsti þing­maður, Flokkur fólks­ins kemur þar á eftir með Ásthildi Lóu Þórs­dóttur sem annan þing­mann og Víðir Reyn­is­son er þriðji þing­maður kjör­dæm­is­ins, sam­kvæmt þessum fyrstu tölum þaðan, en hann er í Sam­fylk­ing­unni. 

Suð­ur­kjör­dæmi er kjör­dæmi Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, for­manns Fram­sóknar, en hann er ekki inni miðað við þessar fyrstu tölur en hann skipar annað sæti flokks­ins. Halla Hrund Loga­dóttir nær hins vegar inn, odd­viti Fram­sóknar í kjör­dæm­inu sem fimmti þing­maður. Á undan henni, í fjórða sæti, er Karl Gauti Hjalta­son úr Mið­flokknum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár