Níu þúsund milljarðar í flóðavarnir

Í Danmörku gætu 90 þús­und heim­ili, 60 þús­und sum­ar­hús og tugir þús­unda verk­smiðju­bygg­inga farið undir vatn á næstu ára­tugum vegna hækk­andi yfir­borðs sjávar. Varn­ar­að­gerðir eru taldar kosta nálægt 460 millj­örðum danskra króna en dugi þó ekki til að bjarga öllum land­svæðum sem eru í hættu.

Stundum er sagt í glensi að Danmörk sé flöt eins og pönnu­kaka. Þótt sú lýs­ing sé ýkt leyn­ist þar eigi að síður sann­leiks­broddur: landið er flatt og lág­lent, einkum með­fram strönd­inni. Strand­lengja Dan­merkur er rúmir 7 þús­und kíló­metrar, sem er mikið í 40 þús­und fer­kíló­metra landi, til sam­an­burðar er íslenska strand­lengjan um 6 þús­und kíló­metrar og Ísland 104 þús­und fer­kíló­metrar.

Í febr­úar í fyrra var hald­inn fundur í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ). Vart hefði það talist frétt­næmt nema vegna þess að þetta var í fyrsta skipti sem lofts­lags­váin sem vofir yfir heim­inum var rædd á þeim vett­vangi. Vís­inda­menn víða um heim höfðu þó árum saman bent á þá ógn sem íbúum jarðar stafar af hlýnun jarðar. Í ræðu sinni við upp­haf áður­nefnds fundar sagði António Guterres, fram­kvæmda­stjóri SÞ, að breyt­ingar sem íbúar heims­ins stæðu frammi fyrir hefðu fyrir örfáum árum verið taldar óhugs­andi.

„Við erum ekki að tala um fámennan hóp eyja­skeggja í Karí­ba­haf­inu, við erum að tala um 900 millj­ónir, einn tíunda hluta mann­kyns,“ Guterres til­tók í ræðu sinni lönd og borgir sem breyt­ingar á yfir­borði sjávar hefðu mikil áhrif á og nefndi meðal ann­ars Kaup­manna­höfn. 

Stormflóð og skýrslur

Margir Danir muna ugg­laust mikið storm­flóð í byrjun des­em­ber 1999. Þá hækk­aði sjáv­ar­borð við vest­ur­strönd Jótlands um rúma fimm metra og olli miklu tjóni. Þegar þetta gerð­ist var mikið rok og loft­þrýst­ingur lágur. Lág­sjávað var en í stór­streymi hefði sjáv­ar­borðið hækkað enn meira og valdið enn meira tjóni. Í nóv­em­ber árið 2006 olli slíkt flóð miklu tjóni, fjögur þús­und hús skemmd­ust mikið og mörg hund­ruð minna. Mikið tjón varð á svæðum við Hró­arskeldu­fjörð á árunum 2012, 2013 og 2016, í öll skiptin af völdum langvar­andi norð­an­storms sem þrýsti sjónum inn fjörð­inn. Árið 2018 varð umtals­vert tjón af völdum flóða og sömu­leiðis í októ­ber í fyrra.

Mikið tjón varð á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og við Køgeflóa í árs­byrjun 2017. Í fram­haldi af því var verk­fræði­fyr­ir­tækið Cowi fengið til að meta þörf og kostnað við flóða­varnir á þessu svæði en slíkt mat hafði ekki verið gert áður. Á frétta­manna­fundi árið 2019 sagði einn sér­fræð­inga Cowi að kostn­aður miðað við svo­nefnt hund­rað ára reikni­líkan, þar eð stór­flóð einu sinni á öld, yrði var­lega áætlað 22 millj­arðar danskra króna, eða það sem sam­svarar 425 millj­örðum íslenskra króna. „En ef miðað væri við stærsta flóð á þús­und árum?“ spurði einn við­staddra. 

„Stór svæði við strendur muni hrein­lega hverfa ásamt mörgum eyjum“

„Tjónið myndi nema stjarn­fræði­legum upp­hæðum, suð­ur­hluti Kaup­manna­hafnar færi á kaf, Eyr­ar­sunds­brúin og Kastrup-flug­völlur myndu lok­ast, lest­ar­kerfið, að Metro­kerf­inu með­töldu, myndi lam­ast,“ var svarið.

Þremur árum síðar, 2022, birti danska rann­sókna­stofn­unin GEUS  skýrslu. Hafi fram­tíð­ar­spá Cowi verið svört má segja að GEUS skýrslan hafi verið kolsvört. „Stór svæði við strendur muni hrein­lega hverfa ásamt mörgum eyjum“, sagði í skýrsl­unni. Þá er gert ráð fyrir að sjáv­ar­borð við Danmörku muni stíga um 1,7 metra, eða meira á næstu 8–10 ára­tugum, miðað við árið 1990. Um þessar skýrslur hefur áður verið fjallað í Heim­ild­inni.

Þrír strandbæir

Fyrr í þessum mán­uði kom svo enn ein skýrslan. Að þessu sinni voru það sér­fræð­ingar frá Danska tækni­há­skól­anum (DTU) og rann­sókna­stofn­un­inni Navigat­ing 360 sem að skýrsl­unni stóðu. Þeir tóku fyrir þrjá strand­bæi og nágrenni þeirra: Kalund­borg á Sjálandi, Nakskov á Lálandi og Ker­tem­inde á Fjóni. Sú mynd sem dregin er upp af því sem gæti gerst á næstu ára­tugum er ekki björt. Svo gæti farið, segir í skýrsl­unni, að 90 þús­und heim­ili, 60 þús­und sum­ar­hús og 32 þús­und verk­smiðju­hús af ýmsum stærðum færu undir vatn. Ef þetta gengi eftir yrði kostn­að­ur­inn gríð­ar­legur, „ekki minni en 460 millj­arðar“ sögðu skýrslu­höf­undar. Upphæðin jafn­gildir 9 þús­und millj­örðum íslenskum. Rétt er að geta þess að þessir útreikn­ingar mið­ast við landið allt, ekki ein­ungis þessa þrjá bæi sem áður voru nefndir og eru byggðir á flóknu reikni­lík­ani, sem ekki verður reynt að útlista hér.

Breyttur veruleiki

Storm­flóðin á allra síð­ustu árum, sein­ast í sept­em­ber síð­ast­liðnum, hafa opnað augu Dana, ekki síst stjórn­mála­mann­anna, fyrir þeirri ógn sem Danmörku stafar af lofts­lags­breyt­ing­unum. Og það eru ekki ein­ungis flóðin og hækk­andi sjáv­ar­borð sem veldur áhyggjum, Dönum er enn í fersku minni ský­fallið sem varð í Kaup­manna­höfn og nágrenni 2. júlí árið 2011 þar sem á tveimur klukku­tímum féll 135 milli­metra úrkoma. Í mið­borg Kaup­manna­hafnar urðu miklar skemmdir og í ljós kom að frá­rennsl­is­mál voru í megn­asta ólagi. Á þeim 13 árum sem liðin eru frá „Nóa­flóð­inu“, eins og nokkrir danskir fjöl­miðlar köll­uðu ský­fallið, hefur margt og mikið verið gert til að reyna að koma í veg fyrir að slíkt geti end­ur­tekið sig.

Þolir enga bið

Margir danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítar­lega um skýrslu DTU og Navigat­ing 360. Nokkrir þing­menn og ráð­herrar hafa síð­ustu daga tjáð sig um skýrsl­una og eru flestir, ef ekki allir, á einu máli um að ekki þýði að láta reka á reið­anum, nauð­syn­legt sé að bregð­ast við og vinna skipu­lega að því að tryggja flóða­varnir í land­inu.

Í löngu við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði Magnus Heunicke umhverf­is­ráð­herra að rík­is­stjórnin hefði fyrir nokkru sett af stað vinnu við skipu­lagn­ingu þessa risa­verk­efnis, eins og ráð­herr­ann komst að orði. „Við höfum ekki lagt næga áherslu á þetta mál á und­an­förnum árum en það er ekki of seint að bregð­ast við. Við erum að tala um gríð­ar­lega fjár­muni en með því að vinna skipu­lega að flóða­vörnum á næstu árum og ára­tugum komum við í veg fyrir enn meira tjón,“ sagði ráð­herr­ann.

Undir þessi orð tók Kirsten Halnæs, pró­fessor við DTU, en hún var meðal þeirra sem vann að skýrsl­unni áður­nefndu, „fyrir hverja eina krónu sem við verjum til flóða­varna fáum við rúm­lega eina og hálfa til baka. Við höfum ekki efni á að fjár­festa ekki í fram­tíð­inni á þessu sviði.“ 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár