Mismunun af völdum gervigreindar

Þvert á það sem vonast var til eru vísbendingar um kynj­an­ismunun þegar kemur að notkun gervi­greindar við mannauðs­stjórnun.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að notkun gervigreindar á fullri sjálfvirkni í ráðningarferli sé fátíð, en flestir ráðningaraðilar styðjast við gervigreindartól.
Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar benda til að notkun gervi­greindar á fullri sjálf­virkni í ráðn­ing­ar­ferli sé fátíð, en flestir ráðn­ing­ar­að­ilar styðj­ast við gervi­greind­ar­tól.

Vonir hafa staðið til að með notkun gervi­greindar við mannauðs­stjórnun megi skapa óhlutdrægni við ákvörðunar­töku sem dragi úr mismunun og auki fjöl­breytileika starfs­fólks. Vísbendingar benda þó til hins gagnstæða, en konur eru líklegri en karlar til að upplifa neikvæða mismunun af völdum gervi­greindar. Guðbjörg Linda Rafns­dóttir prófessor og Ragna Kemp Haralds­dóttir dósent kynntu Evrópu­rannsóknina BIAS: Mitigating diversity biases of AI in the labour market á Þjóðar­speglinum. 

Flest nota gervi­greind við ráðningar

Auður Anna Arnar­dóttir prófessor og Birgitta Rós Skarp­héðins­dóttir ræddu við tíu ráðningar­aðila fyrir­tækja hér á landi. Niður­stöður rann­sóknarinnar benda til að notkun gervi­greindar á fullri sjálf­virkni í ráðningar­ferli sé fátíð, en flestir ráðningar­aðilar styðjast við gervigreindartól. 

Netöryggi ábótavant 

Netárásir hafa leikið mörg íslensk fyrirtæki og stofnanir grátt, til dæmis með gagna­gíslatökum, álags­árásum auk fágaðra vefveiði­árása. Niður­stöður rann­sóknar sem var gerð að beiðni Eyvarar, hæfniseturs í netöryggi á Íslandi, gefa til kynna að mikil þörf er á uppbyggingu, fræðslu og æfingum á sviði netöryggis.


Heimild: Þjóðar­spegillinn 2024

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HR
    Heida Rafnsdottir skrifaði
    Í upphafi ætti endinn að skoða. Með hvaða gögnum er gervigreind þjálfuð? Burt séð frá vafasömum leiðum sem hugbúðnaður nálgast efni til að þjálfa tæknina, sbr. meint höfundaréttarbrot, þá er hún væntanlega þjálfuð af þeim sem hana búa og þei gögnum sem eru aðgengileg. Þessi grunnur endurspeglar ekki heiminn. Hann er óhjálvæmilega bjagaður m.a. í átt að vestrænu samfélagi, gögnum, normum og tækni og karlkyninu sem á stærstan þátt í þróuninni. Skilst á prufum þess efnis að gervigreindin viti t.d. bara til þess að læknar geti verið karla.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár