Unga fólkið tekst á í Pressu

Lenya Rún Taha Karim, Snorri Másson og Jóhann Páll Jóhanns­son mæt­ast í Pressu í hádeg­inu í dag.

Ungt fólk týn­ist nú inn á lista stjórn­mála­flokk­anna fyrir alþing­is­kosn­ingar 30. nóv­em­ber næst­kom­andi, og er jafn­vel farið að skáka sitj­andi þing­mönnum.

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður og odd­viti Pírata í Reykja­vík Norður, er á meðal þeirra sem fékk fleiri atkvæði en sitj­andi þing­menn í próf­kjöri en hún verður gestur Pressu í dag ásamt Snorra Mássyni fjöl­miðla­manni, sem sæk­ist eftir odd­vita­sæti hjá Mið­flokknum og Jóhanni Páli Jóhanns­syni, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þau munu í þætt­inum ræða sínar áherslur þegar kemur að hús­næðis-, efna­hags- og fjöl­skyldu­málum, með sér­stakri áherslu á stöðu ungs fólks í þessum mála­flokkum.

Þátt­ur­inn er á dag­skrá klukkan 12 að hádegi og verður sendur út á vef Heim­ild­ar­innar, Heim­ildin.is.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu