Sigur Lenyu afgerandi en tæpt hjá Þórhildi Sunnu

Tíu atkvæðum mun­aði á Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur og Gísla Rafni Ólafs­syni þing­mönnum Pírata í fyrsta sæti á lista í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í próf­kjöri flokks­ins sem lauk í gær. Vara­þing­mað­ur­inn Lenya Rún Taha Karim fékk 49 atkvæðum fleiri en Björn Leví Gunn­ars­son í fyrsta sætið í Reykja­vík.

Sigur Lenyu afgerandi en tæpt hjá Þórhildi Sunnu

Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­kona Pírata, stóð uppi sem afger­andi sig­ur­veg­ari í próf­kjöri Pírata sem lauk í gær. Hún fékk 1.094 atkvæði í heild og var eini fram­bjóð­and­inn sem fékk meira en þús­und atkvæði. Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fékk 959 atkvæði en 49 atkvæði skildu þau að í bar­átt­unni um odd­vita­sætið.

OddvitiLenya Rún leiðir Pírata í næstu kosn­ingum í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna. Hún fékk flest atkvæði allra sem tóku þátt.

Próf­kjörið var fyrir bæði Reykja­vík­ur­kjör­dæmin og munu Lenya og Björn Leví því leiða sitt­hvort kjör­dæmið. 

Halldóra Mogensen, sem var odd­viti í Reykja­vík fyrir síð­ustu kosn­ingar og vildi halda því sæti nú, fékk ekki nema 213 atkvæði í fyrsta sæti próf­kjörs­ins og 173 í það annað. Hún bar þó sigur úr bítum í bar­átt­unni við Andrés Inga Jónsson þing­mann sem líka vildi leiða list­ann. Hann …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Þetta vefst ekki fyrir henni Þórhildi Sunnu,kallar bara saman stjórnarfund og breitir niður stöðu kosninganna afturvirt,er Sunnan að gjalda fyrirfrumhlaupið í stjórnarkjörinnu?
    -4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu