Lenya Rún efst í Reykjavíkurkjördæmunum

Lenya Rún var efst í próf­kjöri Pírata sem var sam­eig­in­legt fyrir bæði Reykja­vík­ur­kjör­dæmin og leiðir hún því annan lista flokks­ins í Reykja­vík fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar. Fyrir neðan hana í próf­kjör­inu voru þrír sitj­andi þing­menn flokks­ins og tveir borg­ar­full­trúar. Ugla Stefanía leiðir list­ann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

Lenya Rún efst í Reykjavíkurkjördæmunum
Lenya Rún og Björn Leví leiða Reykja­vík­ur­lista Pírata

Lenya Rún Taha Karim var efst í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum, Björn Leví Gunn­ars­son í öðru sæti, Halldóra Mogensen í því þriðja og Andrés Ingi Jónsson í fjórða sæti. Lenya er vara­þing­maður Pírata og for­maður Ungra Pírata en Björn, Halldóra og Andrés eru öll sitj­andi þing­menn flokks­ins. 

Í fimmta sæti er Dóra Björg Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata í Reykja­vík, og Alex­andra Briem, borg­ar­full­trúi Pírata í Reykja­vík, í því sjötta. 

Lenya Rún og Björn Leví leiða því hvor sinn list­ann í Reykja­vík. Píratar eru nú með sex þing­menn, þar af fjóra úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­flokks­for­maður er odd­viti í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, í öðru sæti er Gísli Rafn Ólafsson sem einnig er sitj­andi þing­maður flokks­ins, og í þriðja sæti er Sig­ur­björg Erla Egils­dóttir, bæj­ar­full­trúi Pírata í Kópavogi. 

Píratar eru nú með tvo þing­menn úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi, þau Þórhildi Sunnu og Gísla Rafn. 

Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, kynja­fræð­ing­ur og sér­fræð­ing­ur í mál­efn­um hinseg­in fólks, leiðir list­ann í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, Sunna Ein­ars­dóttir er í öðru sæti og Pétur Óli Þor­valds­son í því þriðja. 

Týr Þór­ar­ins­son, oft kall­aður Mummi og var kenndur við Götu­smiðj­una, er nýr odd­viti Pírata í Suð­ur­kjör­dæmi en Álf­heiður Eymars­dóttir, bæj­ar­full­trúi í Árborg og vara­þing­maður, er í öðru sæti. Bergþór H. Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður ÖBÍ - rétt­inda­sam­taka er í því þriðja.

Theodór Ingi Ólafsson er odd­viti Pírata í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, Adda Steina í öðru sæti og Viktor Trausta­son, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, er í því þriðja.

Próf­kjöri Pírata vegna alþing­is­kosn­inga 2024 lauk klukkan 16:00 í dag en Píratar eru eini flokk­ur­inn sem heldur próf­kjör í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna.

Nið­ur­stöð­urnar voru kynntar í Petersen svít­unni klukkan 17. Tilkynnt var um nið­ur­stöður í bind­andi sætum í öllum kjör­dæmum en það eru 4 efstu sæti í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, 5 efstu í Suður- og Norð­aust­ur­kjör­dæmi, 7 efstu í Suð­vestur- og 12 efstu í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum.

Upp­lýs­ingar um fram­bjóð­endur má nálg­ast í kosn­inga­kerfi Pírata en alls voru 69 manns í fram­boði.

Píratar stefna að því að kynna end­an­lega lista í öllum kjör­dæmum á næstu dögum.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár