Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
Í göngu „Ég hafði ekk­ert með mann­inn að gera,“ sagði Þor­steinn Már í yfir­heyrslu og átti þar við Jóhannes Stef­áns­son, starfs­mann Samherja í Afríku. Hér sjást þeir tveir saman í fjall­göngu á Esjuna, sem þeir fóru í ásamt þáver­andi kær­ustu Þor­steins árið 2012. Mynd: Wikileaks

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

„Ég hafði ekk­ert með mann­inn að gera,“ sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í yfir­heyrslu hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara sum­arið 2020, um sam­skipti sín við Jóhannes Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóra útgerð­ar­fé­lags Samherja í Namibíu. Þegar rann­sak­endur gengu á hann og spurðu hvort ekki hafi verið ein­hver sam­skipti þeirra á milli gekkst hann við því en tók sér­stak­lega fram að þau hefðu verið „á tak­mark­aðan hátt“. Það rímar ekki við upp­götvun sem rann­sak­endur hjá sama emb­ætti hafa nú gert. 

Þúsundir smá­skila­boða sem send voru og mót­tekin í far­síma Jóhann­esar, upp­ljóstr­ara í Sam­herj­a­mál­inu, fund­ust nýlega í tölvu sem Jóhannes afhenti hér­aðs­sak­sókn­ara árið 2019.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafði tölva Jóhann­esar tekið örygg­is­af­rit af sím­anum, um eða eftir þann tíma sem Jóhannes lét af störfum hjá Samherja. Sér­fræð­ingum lög­reglu virð­ist hafa orðið þetta ljóst og náð að end­ur­heimta SMS-skila­boð sem höfðu afrit­ast. Í þeim birt­ist önnur mynd af sam­skiptum Jóhann­esar við for­stjóra og aðra starfs­menn …

Kjósa
208
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (16)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Endurheimtum allan kvóta Samherja. Það er lágmarks refsing!
    10
  • GJÞ
    Geir Jón Þorsteinsson skrifaði
    Er ekki refsivert að gefa rangan vitnisburð hjá saksóknara, eða geta sumir logið hægri vinstri meðan öðrum er refsað.
    17
  • Jón Sigurjónsson skrifaði
    Ef svo skildi fara að forstjóri Samherja verði (ekki) dæmdur fyrir Namibíu svindlið, á hann einhverjar eignir sem hægt er að taka upp í sekt? Var ekki öllu komið yfir a krakkana ef ske kynni að Steini yrði fundinn sekur?
    16
  • Eyþór Dagur skrifaði
    Fjölmenningin. Þurfum fleira fólk frá Afríku hingað. Meiri fjölmenningu!
    -2
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Hverjir ætli hafi fengið mútur hjá Samherja hér á landi?
    28
    • SRÓ
      Sigurður Rúnar Ólafsson skrifaði
      Það væri fróðlegt að vita, en þeir kunna að fela slóðina vel. Vantar fleiri uppljóstrara.
      8
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Hmm... þessi grein bendir til þess að herramennirnir sem hana rita séu annað hvort að leitast við að stimpla sig inn sem meistarar spunans eða valsi um gögn héraðssaksóknara eins og sína eign, - og það án þess að hafa stöðu sakbornings, brotaþola eða vitnis. Hvort ætli sé hið rétta? Ef þetta er frá saksóknara komið, jafn loðmullulegt og það er, þá þarf saksóknari að útskýra ýmislegt um starfsaðferðir sínar.

    Mig langar að lesa þetta Heimildar blað. En sem fyrr: hafandi í huga hvaða áhrif þessi ritlingur hefur haft á mitt líf, hef ég ekki í hyggju að kaupa það.
    -48
    • Guðrún Ingimundardottir skrifaði
      Hefur þú hagsmuna að gæta ?
      17
    • John Sigurdsson skrifaði
      Og þessi athugasemd þín bendir til að þú styðjir sukkið og svínaríið af einhverjum ástæðum.
      14
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Eru á nýjum lyfjum?
      0
    • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
      Guðrún Ingimundardóttir, ég hef hagsmuna að gæta um að blaðamenn segi satt og vandi sín vinnubrögð, já. Það hefur kostað mig aðeins of mikið að þeir hafa ekki alltaf gert það.
      -11
    • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
      John Sigurðsson, röng ályktun hjá þér. Ég styð ekki spillingu, hvorki hjá blaðamönnum né öðrum. Þetta er öllum ljóst sem tildæmis bara hafa gúglað mig. Gerðu það. Ég kem ekki oftar hér inná þennan mánuðinn því að ég ætla ekki að borga fyrir að reyna að leiða þessa pilta, sem rita þessa grein, á rétta braut.
      -11
    • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
      Steinþór Grímsson, hver heldurðu að sé "á nýjum lyfjum"?
      Ef þú ert að reyna að koma einhverju staðlausu rugli um mig á flot, þá mæli ég með að þú hættir því. Drengurinn sem reyndi að drepa mig hefur fengið dóm fyrir það (manndrápstilraun) og hefur ekki áfrýjað þeim hluta dómsins. En ef hann hefur verið að lesa Heimildina og kommentin sem virkir í athugasemdum við það rit viðhafa um mig, þá er kannski að einhverju leyti sjiljanlegt þó hann hafi haldið að ég væri illmenni sem eðlilegt væri að hann reyndi að losa heiminn við.
      -9
    • Páll Guðfinur Gústafsson skrifaði
      Ingunn leigupenni Björsdóttir hjá Samherja mætt á svæðið. Þetta verður áhugavert!
      7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár