200 milljónir í endurbætur á nýjum leikskóla

Áætlaður kostn­aður við fram­kvæmdir vegna end­ur­bóta á hús­næði leik­skól­ans Brák­ar­borgar er um 200 millj­ónir króna. Leik­skól­inn hóf starf­semi fyrir tveimur árum í end­ur­nýj­uðu hús­næði við Klepps­veg sem áður hýsti kyn­lífs­hjálp­ar­tækja­verslun.

200 milljónir í endurbætur á nýjum leikskóla
Mistök í hönnun og fram­kvæmd Þak leik­skól­ans Brák­ar­borgar, sem hóf starf­semi á Klepps­vegi fyrir tveimur árum, stenst ekki burð­ar­þol. Torf á þak­inu hefur verið fjar­lægt og fram­kvæmdir eru í und­ir­bún­ingi. Áætlaður kostanður er 200 millj­ónir króna. Mynd: Golli

Borg­ar­ráð hefur sam­þykkt að heim­ila umhverfis- og skipu­lags­sviði að bjóða út fram­kvæmdir vegna end­ur­bóta á hús­næði leik­skól­ans Brák­ar­borgar. Áætlaður kostn­aður við fram­kvæmd­irnar er um 200 millj­ónir króna.

Leik­skól­inn Brák­ar­borg var áður til húsa við Brák­ar­sund en starf­semin var flutt á Klepps­veg 150 til 152 sum­arið 2022 í upp­gert hús­næði þar sem kyn­lífs­hjálp­ar­tækja­versl­unin Adam og Eva var áður til húsa. Á Brák­ar­borg eru 100 börn á sex deildum og á leik­skól­anum starfa um 30 manns. Þegar leik­skól­inn tók til starfa á Klepps­vegi fékk Reykja­vík­ur­borg viður­kenn­ing­una Grænu skófl­una fyr­ir bygg­ingu leik­skól­ans en verð­launin eru veitt fyr­ir mann­virki sem byggt hef­ur verið með fram­úrsk­ar­andi vist­væn­um og sjálf­bær­um áhersl­um.

Skömmu eftir verð­launa­af­hend­ing­una ákvað umhverfis- og skipu­lags­svið að fara í ítar­lega skoðun á burð­ar­virki Brák­ar­borgar í kjöl­far ábend­ingar starfs­fólks. Reykja­vík­ur­borg fékk verk­fræði­stof­urnar Verkís og VSÓ til að taka út burð­ar­virki leik­skól­ans eftir að athuga­semdir bár­ust. Nið­ur­staða þeirra er að þakið stenst ekki ítr­ustu staðla nútíma­bygg­inga varð­andi burð­ar­þol. Í ljós kom að reiknað álag frá ásteypu­lagi og torfi á þak­inu var meira en til­greint var á teikn­ingum.

„Því sé ljóst að mis­tök voru gerð í hönnun og/eða fram­kvæmd við Brák­ar­borg. Reykja­vík­ur­borg hefur þegar sent öllum verk­tökum og ráð­gjöfum sem komu að verk­inu form­legt bréf þar sem til­kynnt er um mögu­lega hönn­unar- og eða fram­kvæmdagalla og að skoðað verði hvar ábyrgðin liggi,“ segir í grein­ar­gerð borg­ar­ráðs sem Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri und­ir­rit­aði 20. ágúst síð­ast­lið­inn. Ákveðið var að rýma leik­skól­ann og var starf­semin flutt í Ármúla 28 til 30 þar sem hún verður á meðan fram­kvæmdir standa yfir. 

„Því sé ljóst að mis­tök voru gerð í hönnun og/eða fram­kvæmd við Brák­ar­borg“
Úr grein­ar­gerð um Brák­ar­borg,
und­ir­rituð af Einari Þor­steins­syni borg­ar­stjóra

Í fram­haldi af því var lagt til að borg­ar­ráð sam­þykkti að fela Innri end­ur­skoðun og ráð­gjöf Reykja­vík­ur­borgar að ráð­ast í heild­ar­út­tekt á ferl­inu í kringum bygg­ingu leik­skól­ans Brák­ar­borgar þegar kemur að hönnun, fram­kvæmdum og eft­ir­liti leik­skól­ans. Það hefur nú gengið eftir og áætlað er að fram­kvæmdir hefj­ist bráð­lega. Meðal þess sem verður gert er að fjar­lægja torf af þaki leik­skól­ans, upp­bygg­ing þak­virkis verður end­ur­skoðuð og end­ur­hönnuð ásamt því að styrk­ingum verður bætt við inn­an­húss.

For­eldrar á Brák­ar­borg voru boð­aðir á upp­lýs­inga­fund á mið­viku­dag þar sem farið var yfir fram­kvæmda­á­ætlun. Áætlað er að fram­kvæmd­unum verði lokið á fyrri helm­ingi næsta árs.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár