Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Skoðar þingrof og svarar engum spurningum

Halla Tóm­as­dótt­ir for­seti Ís­lands hef­ur ekki tek­ið af­stöðu til þingrofstil­lögu Bjarna Bene­dikts­son­ar for­sæt­is­ráð­herra. Hún ætl­ar fyrst að ræða við for­menn allra þing­flokka. Halla seg­ist ekki ætla að svara spurn­ing­um fjöl­miðla í dag.

Halla Tómasdóttir Forseti Íslands á Bessastöðum í dag. Þar flutti hún ávarp að loknum fundi með Bjarna Benediktssyni.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, hefur síðustu daga átt samtöl við Bjarna Benediktsson forsætisráðherra sem í morgun skilaði til hennar tillögu um þingrof og almennar kosningar til Alþingis í lok nóvember. Hún ræddi jafnframt við formenn hinna ríkisstjórnarflokkanna í gærkvöldi og ætlar sér að gefa sér tíma til þess að ræða við formenn allra flokka sem eiga sæti á Alþingi.

Eftir þá fundi ætlar hún sér að „leggja mat á stöðu mála“ áður en hún tekur afstöðu til tillögu Bjarna um þingrof sem hún ætlar sér að tilkynna um síðar í vikunni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Höllu sem segir að ríkisstjórnin muni sitja fram til kosninga.

„Fallist ég á tillögu forsætisráðherra um þingrof skal samkvæmt 24. greinar stjórnarskrár boða til kosninga áður en 45 dagar eru liðnir frá því tilkynnt er um þingrofið.“

Halla hefur jafnframt látið fjölmiðla vita af því að hún muni ekki svara spurningum þeirra í dag. „Enda hef ég engu við þetta að bæta að sinni.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um út­lend­inga­mál­in

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi er­indi inn í þing­ið,“ sagði Svandís Svavars­dótt­ir. „Þar er­um við inn­viða­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guð­rún Haf­steins­dótt­ir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arn­ir væru ósam­mála í út­lend­inga­mál­um, en það hafði þó varla ver­ið jafn skýrt fyrr en rétt áð­ur en stjórn­in féll, skömmu áð­ur en Guð­rún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lok­að bú­setu­úr­ræði.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki leng­ur hægt að gera at­lögu að Bjarna fyr­ir kosn­ing­ar

Síð­an Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokkn­um hef­ur því ít­rek­að ver­ið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem kom­ið er hef­ur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­arglasi ekki runn­ið út. Hann virð­ist ná að snúa því aft­ur og aft­ur rétt áð­ur en síð­ustu sand­korn­in detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyr­ir inn­an­búð­arat­lögu gegn sér fyr­ir kosn­ing­ar, seg­ir stjórn­mála­fræð­ing­ur.

Mest lesið

„Ég var lifandi dauð“
4
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.
Fleiri listamenn við níu götur í Reykjavík fá laun en á allri landsbyggðinni
5
GreiningListamannalaun

Fleiri lista­menn við níu göt­ur í Reykja­vík fá laun en á allri lands­byggð­inni

Tölu­vert ójafn­vægi er á út­hlut­un lista­manna­launa, séu þau skoð­uð eft­ir bú­setu laun­þega. Laun­in, sem eru tölu­vert lægri en reglu­leg laun full­vinn­andi fólks, renna í flest­um til­vik­um til íbúa í Vest­ur­bæ og mið­bæ Reykja­vík­ur. Menn­ing­ar­mála­ráð­herra seg­ir nið­ur­stöð­una ekki óvænta þó hún slái hann ekki vel.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég var lifandi dauð“
6
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár