Halda vöxtum óbreyttum: Hafa staðið í 9,25 prósentum í eitt ár

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands til­kynnti í morgun um ákvörðun sína að halda stýri­vöxtum óbreyttum. Meg­in­vextir bank­ans verða því áfram 9,25 pró­sent en þeir voru síð­ast hækk­aðir fyrir ári síðan. Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar er bent á verð­bólga hafi hækkað lít­il­lega frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar og verð­bólgu­vænt­ingar bank­ans hafa tekið breyt­ingum.

Halda vöxtum óbreyttum: Hafa staðið í 9,25 prósentum í eitt ár
Vextir óbreyttir Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum óbreyttum. Mynd: Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið halda stýri­vöxtum óbreyttum. Þeir munu því áfram vera 9,25 pró­sent. Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar er bent á að verð­bólga hafi auk­ist lít­il­lega frá síð­asta fundi nefnd­ar­innar eftir að dreg­ist nokkuð saman á fyrri hluta árs­ins. Verð­bólga mæld­ist 6,3 pró­sent í júlí og hafði þá hækkað 0,5 pró­sentu­stig milli mán­aða. 

„Und­ir­liggj­andi verð­bólga er enn mikil og verð­hækk­anir eru á breiðum grunni þótt hús­næð­islið­ur­inn vegi enn þungt. Verð­bólgu­vænt­ingar hafa einnig lítið breyst og hald­ist yfir mark­miði. Hægt hefur á inn­lendri eft­ir­spurn und­an­farið ár í takt við aukið pen­inga­legt taum­hald. Nokkur spenna er þó enn til staðar í þjóð­ar­bú­inu og hefur lítið dregið úr henni frá maífundi nefnd­ar­innar,“ segir í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar. 

Þá telur nefndin að það muni taka „nokkurn tíma“ að ná verð­bólgu niður í ásætt­an­legt horf.

„Pen­inga­stefnu­nefnd telur að núver­andi aðhalds­stig sé hæfi­legt til þess að koma verð­bólgu í mark­mið en þrá­lát verð­bólga og kraftur í inn­lendri eft­ir­spurn kalla á var­kárni. Mótun pen­inga­stefn­unnar mun sem fyrr ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga.“

Vonbrigði fyrir aðila á vinnumarkaði

Í aðdrag­anda fundar pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans sendu Samtök atvinnu­lífs­ins og Alþýðu­sam­band Íslands frá sér sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu þar sem minnt er á að mark­mið nýlegra lang­tíma­kjara­samn­inga væru að ná niður mik­illi verð­bólgu og háu vaxta­stigi.  

Í yfir­lýs­ing­unni er bent á að greina megi aug­ljós merki þess í atvinnu­líf­inu að hag­kerfið sé að kólna og að verð­bólga mæld á árs­grund­velli hafi lækkað úr 7,7 pró­sentum í 6,3 pró­sent. 

„Háir raun­vextir eru íþyngj­andi fyrir skuld­sett heim­ili, standa fjár­fest­ingu í fram­tíðar verð­mæta­sköpun fyrir þrifum og draga úr þrótti á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði.  Það er því mik­il­vægt að Seðla­bank­inn sé fram­sýnn í sínum ákvörð­unum þegar kemur að ákvörðun um stýri­vexti,“ segir í yfir­lýs­ingu ASÍ og SA. 


Fréttin hefur verið upp­færð
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Það kostar að vera stöðugu ástarsambandi við litlu sætu krónuna.
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ekki alveg viss en ég held þetta sé heimasíða peningastefnunefndar.
    https://worldofwarcraft.blizzard.com/en-us/
    4
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Við hverju búast menn ? Seðló er með kerfi og röksemdir sem byggjast á bulli og væntingum en ekki nauðsynlegum og nægjanlegum gögnum né greiningu. En þeir eru ábyrgðarlausir og valdaðir af kerfinu... svo takk fyrir óskhyggjuna þið velviljuðu frelsarar og baráttumenn fyrir góðum málum... virðist sem þið hafið enn eina ferðina klúðrað málum... og nú á að bíða þar til september á næsta ári eftir viðbrögðum ? Þið samlandar mínir eru illilega veruleikafyrrtir óshyggju og væntinga draumalið. Staðreyndirnar hafa alltaf legið fyrir en þið VILJIÐ ekki hrófla við kerfinu... ekki satt.
    -1
  • SV
    Sigurgeir Vilmundarson skrifaði
    Ætlar heimildin ekkert að taka fyrir ruglið sem viðgengst í seðlabankanum. Það er eitthvað að úldna í svörtuloftum
    3
    • Hlynur Jörundsson skrifaði
      Væru búnir að því ef það hentaði málstaðnum... en þeir fleyta bara kerlingar blessaðir. Kurteisi trompar sannleikann... ja svei.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár