Þrýstingur, stéttaskipting og þjóðarmorð í kappræðunum

Farið var um víðan völl í kapp­ræðum sex for­seta­fram­bjóð­enda á vegum Heim­ild­ar­innar í lið­inni viku. Hér er stiklað á því helsta sem þar kom fram – en fram­bjóð­endur lýstu meðal ann­ars skoð­unum sínum á hern­aði á Gaza-svæð­inu, stétta­skipt­ingu og sölu Lands­virkj­unar.

Þrýstingur, stéttaskipting og þjóðarmorð í kappræðunum
Sex fram­bjóð­endur öttu kappi í Tjarn­ar­bíó. Mynd: Golli

Heim­ildin stóð fyrir kapp­ræðum á þriðju­dag­inn þar sem þeir sex for­seta­fram­bjóð­endur sem mæl­ast með yfir tveggja pró­senta fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar mætt­ust. Það eru þau Arnar Þór Jónsson, Baldur Þór­halls­son, Halla Hrund Loga­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Jón Gnarr og Katrín Jak­obs­dóttir. Umræðum stýrðu blaða­menn­irnir Margrét Mart­eins­dóttir og Aðal­steinn Kjart­ans­son. 

Þrýstingur úr herbúðum Katrínar 

Fram­bjóð­end­urnir voru spurðir hvort að þeir hefðu fundið fyrir þrýst­ingi að draga fram­boð sín til baka. Jón Gnarr svar­aði því ját­andi og sagði að strax eftir að Katrín Jak­obs­dóttir hefði til­kynnt um fram­boð sitt hefði fólk farið að spyrja hann hvort hann vildi ekki hætta við.

Las hann upp­hátt ein slík skila­boð sem hann hafði fengið. En í þeim var hann beð­inn um að draga sig í hlé og lýsa yfir stuðn­ingi við annað hvort Höllu Tóm­as­dóttur eða Baldur Þór­halls­son til að hindra fram­gang Katrínar. „Ég er að fara að vinna þessar kosn­ingar. Mér myndi aldrei detta í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár