Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. og stærsti hluthafi, greindi frá því á aðalfundi félagsins laugardaginn 25. maí að fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson myndi greiða félögunum Hval hf. og Fiskveiðihlutafélaginu Venusi 320 milljónir króna í skaðabætur um næstu áramót. Skuldabréf þar að lútandi lægi fyrir og að upphæðin væri því ekki komin til félaganna. Þetta herma upplýsingar Heimildarinnar.
Um er að ræða uppgjör Björgólfs Thors við Hval og Venus vegna hópmálsóknar fyrrverandi hluthafa Landsbanka Íslands sem velkst hefur um í dómskerfinu í fjöldamörg ár. Forsendur hópmálsóknanna gegn Björgólfi Thor er að fyrrverandi hluthafar Landsbanka Íslands töldu sig hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni þegar bankahrunið reið yfir haustið 2008.
„3.539.232 evrur greiðast með skuldabréfi sem verður með Euribor vöxtum og gjalddaga þann 31.12.2024.“
Þrettán ára saga á enda
Björgólfur Thor greindi frá því í fréttatilkynningu seint í maí að …
Athugasemdir