„Ef maður féll ekki saman þá, þá er maður ekki að fara að falla saman í framtíðinni“
Eiríkur Ingi segir að vinna verði úr áföllum. Honum hefur því aldrei dottið í hug að forð­ast hafið þrátt fyrir að hafa lifað af sjó­slys. Mynd: Golli

„Ef maður féll ekki saman þá, þá er maður ekki að fara að falla saman í framtíðinni“

Eiríkur Ingi Jóhanns­son hefur komið víða við. Hann hefur starfað sem sjó­maður, vél­virki og köf­un­ar­kenn­ari svo fátt eitt sé nefnt. Hann stefnir á að verða 130 ára gam­all og segir því nóg eftir. „Ég er með stórar upp­finn­ingar í hausnum sem ég þarf að klára.“

Eiríkur Ingi Jóhanns­son varð lands­frægur fyrir það að hafa verið eini mað­ur­inn sem lifði af þegar Hall­grímur SI-77 sökk í aftaka­veðri í jan­úar árið 2012. Það er þó ekki eina skiptið sem hann hefur kom­ist í hann krappan á hafi.

Hann lýsir fyrsta sjáv­ar­hásk­anum fyrir blaða­manni. En hann drukkn­aði næstum undan ströndum Havaí þegar hann var um 9 ára gam­all. Á þeim tíma bjó hann þar, en Eiríkur hefur í heild­ina eytt um tólf árum ævinnar í Banda­ríkj­unum.

„Ég fór á strönd­ina einn, fór of langt og svo saug sjór­inn mér út. Svo kom brot­sjór­inn á mann.“ Eiríkur hélt þá að hann myndi ekki ná að kom­ast úr sjónum. „En ég náði svo að skríða eftir botn­inum, eftir sand­bár­unum sem eru þar niðri. Náði að klóra mér þar, sparka mér upp og anda þarna alveg í lokin.“

Spurður hvort honum hafi aldrei dottið í hug að forð­ast hafið svarar hann …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár