Domino's-þjóðin Íslendingar

Guðfaðir og stofnandi Domino´s á Íslandi, Birgir Bieltvedt, hefur enn og aftur selt hlutabréf í fyrir­tækinu og er útgerðar­konan Guðbjörg Matth­í­as­dóttir nú orðinn stærsti hlut­hafinn. Birgir er rauði þráðurinn í ævin­týra­legri sögu pitsu­fyrir­tækisins á Íslandi sem hefur komið sér í einstaka markaðs­stöðu á skyndibita­markaðinum á Íslandi.

Þriðjudagstilboð Domino´s
Þriðju­dagstil­boð Domino´s Þriðju­dagstil­boð Domino´s er orðið þjóð­þekkt og hefur verið hluti af rekstri pítsa­fyr­ir­tæk­is­ins í rúman ára­tug. Hér sjást við­skipta­vinir sækja pít­sur á Domino´s-stað í Reykja­vík þriðju­dag­inn 7. maí. Mynd: Golli

Á Íslandi eru þrisvar sinnum fleiri Domino´s-pitsu­staðir miðað við höfðatölu en í heima­landi keðjunnar, Banda­ríkjunum. Hér á landi eru 22 Domino´s-staðir og er engin önnur veitinga­keðja með eins marga staði. Meðal-Íslend­ingurinn eyðir tæplega 43 sinnum meiri peningum í Domino´s-pitsur en Bandaríkja­maðurinn. Á Íslandi nema árlegar tekjur Domino´s fyrir hvern landsmann sömuleiðis rúmlega 17.400 krónum á meðan sambærileg upphæð í Banda­ríkjunum nemur tæplega 400 krónum.

Ísland er einfald­lega í sérflokki hvað varðar neyslu og eyðslu lands­manna í Domino's-pitsur miðað við höfðatölu. Af hverju er þetta?

„Domino’s á Íslandi á fjöl­mörg met innan Domino’s keðj­unnar“
Magnús Haf­liða­son,
for­stjóri Domino´s á Íslandi
Met Domino´s á ÍslandiMagnús Haf­liða­son, for­stjóri Domino´s, segir að fyr­ir­tækið eigi fjöl­mörg met innan Domino´s-sam­stæð­unnar.

Heimildin leitaði til Magnúsar Hafliða­sonar, forstjóra Domino´s, eftir svörum við þessari sérstöðu Domino´s hér á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sveinn Nikulásson skrifaði
    Það er eðlilegt að Domino's sé með þrisvar sinnum fleiri staði hlutfallslega á Íslandi en í USA. Kaninn gerir talsvert meiri kröfur til skyndibita en Íslendingar...
    0
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Dulin auglýsing? Hver skrifar?
    -1
    • GK
      Gísli Kristjánsson skrifaði
      Það er algjör skömm að svona 'fréttaskrifum'.
      -1
    • Jón Trausti Reynisson skrifaði
      Þetta er langt frá því að vera auglýsing. Höfundur greinarinnar er merktur.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár