SOS Barnaþorpin sjá ekki ástæðu til að slíta samstarfi við Heru

SOS Barna­þorp hafa ver­ið kraf­in um að slíta sam­starfi við Heru Björk, flytj­anda fram­lags Ís­lands í Eurovi­son í ár. Sam­tök­in sjá ekki ástæðu til að slíta sam­starf­inu, þrátt fyr­ir að Hera hafi far­ið fögr­um orð­um um fram­lag Ísra­els.

SOS Barnaþorpin sjá ekki ástæðu til að slíta samstarfi við Heru
Hera Björk Hera hefur verið velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna í 15 ár. Mynd: RÚV

SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa fengið skilaboð frá fólki sem lýsir vanþóknun sinni á samstarfi samtakanna við Heru Björk Þórhallsdóttur oog krafist þess að þau slíti samstarfi við hana. 

Hera sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins í mars og verður fulltrúi Íslands í Eurovision sem fram fer í Malmö. Ísrael verður einnig á meðal þátttökuþjóða. 

Hera hef­ur ver­ið velgjörðarsendiherra SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi frá ár­inu 2009. Í yfirlýsingu frá samtökunum kemur fram að þeir sem hafa lýst vanþóknun sinni á samstarfi SOS Barnaþorpanna og Heru geri það margir „und­ir því yf­ir­skyni að þátt­taka Heru í Eurovisi­on jafn­gildi því að hún taki af­stöðu gegn börn­um í neyð í Palestínu. Við vit­um að það ger­ir Hera Björk ekki og sam­tök­in sjá því ekki ástæðu til að skipta sér af lög­mætri þátt­töku henn­ar í Eurovisi­on eða slíta sam­starf­inu við hana“. 

Í yfirlýsingu SOS Barnaþorpanna segir að samtökin deili reiði í garð þeirra sem murka lífið úr saklausum borgurum. „All­ir sem standa utan við stríð­ið á Gaza upp­lifa van­mátt sinn gagn­vart því og það ger­um við líka. Við skilj­um vel þau sjón­ar­mið fólks sem vill að full­trú­ar þjóð­ar­inn­ar á op­in­ber­um vett­vangi noti rödd sína til að mót­mæla. En að sama skapi biðj­um við um skiln­ing á okk­ar sjón­ar­mið­um sem eru þau að Hera hef­ur ekki á nokk­urn hátt gerst brot­leg gegn gild­um SOS Barna­þorp­anna. Það yrðu frek­ar brot gegn þeim gild­um ef sam­tök­in ætl­uðu að þrýsta á vel­gjörða­mann­eskju sama­tak­anna og kepp­anda í söngv­akeppni til að beita sér póli­tískt á þann hátt sem kröf­ur eru uppi um.“

Þegar Hera sigraði Söngvakeppni Sjónvarpsins sagðist hún ætla að nýta Eurovision sem vettvang til að eiga samtal. Það sagði hún einnig í viðtali í hlaðvarpinu  Building Bridges – A Eurovision Podcast For The Rest of Us í febrúar. Ég trúi því að svið Eurovision sé stórkostlegur vettvangur fyrir samtal,“ sagði hún. Í nýlegu viðtali ísraelska Eurovision-miðilinn Euromix dásamaði hún framlag Ísraels í Eurovision í ár. „Ég dýrka þetta lag. Mér finnst það töfrandi og ég vona að öðrum finnist það líka.“

Lagið, Hurricane, er sungið af söngkonunni Golan, sem er af ísraelskum og rússneskum ættum. Lagið hét upphaflega October Rain og vísaði þannig til árása Hamas í Ísrael í október. 

Orð Heru um ísraelska framlagið hafa vakið athygli og í kjölfarið sendi hún frá sér yfirlýsingu þar sem hún vill bregðast við því að henni hafi verið „gerðar upp skoðanir um ástandið í Palestínu“. 

„Mér finnst fram­koma Ísra­el við palestínsku þjóð­ina vera hræði­leg og til skamm­ar. Að börn þjá­ist finnst mér alltaf vera skelfi­legt og hvað þá þeg­ar heil þjóð þjá­ist eins og núna er stað­an. Ég hef ver­ið í Palestínu og hjálp­að til við að fjár­magna heim­ili fyr­ir mun­að­ar­laus börn þar, svo ég hef séð með eig­in aug­um hvernig er búið að fara með þetta fólk. Ég er á móti stríði. Ég kalla á eft­ir friði og er á móti því að fólk tali ekki sam­an og beiti of­beldi,“ segir Hera í yfirlýsingu sinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
4
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
„Ég var ofbeldisfullur“
5
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár