Steinunn Ólína býður sig fram: „Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona til­kynnti rétt í þesu fram­boð sitt til for­seta Íslands. Hún hafði áður sagt að hún myndi fara fram ef Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra byði sig fram í emb­ættið. Það hefur Katrín ekki gert en sagst vera alvar­lega að íhuga það.

Steinunn Ólína býður sig fram: „Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir“
Steinunn Sækist eftir emb­ætti for­seta Íslands.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir hefur nú form­lega gefið kost á sér í emb­ætti for­seta Íslands. Hún til­kynnti þetta í ávarpi sem hún birti á Facebook síðu sinni klukkan tvö síð­degis í dag.

Þar sagði hún að ástæða fram­boðs­ins væri sú að hún vildi gera gagn og að hún hefði verið hvött til að bjóða sig fram. 

„Ég heyri að ykkur er alvara og það snertir mig djúpt,“ sagði Steinunn í ávarp­inu. „Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir.“

Um síð­ustu helgi til­kynnti Steinunn að hún myndi bjóða sig fram ef Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra færi fram. Þá sagð­ist hún ekki treysta Katrínu í emb­ættið.

„Mér fynd­ist það bera vott um oflæti og að auki fynd­ist mér hún með því sýna þingi, þjóð og öðrum fram­bjóð­endum óvirð­ingu og það get ég ekki sætt mig við,“ skrif­aði Steinunn um síð­ast­liðna helgi. Hún nefndi Katrínu ekki á nafn í ávarpi sínu í dag.

Katrín hefur ekki enn gefið kost á sér en hefur þó sagst vera alvar­lega að hugsa málið. 

Steinunn safnar nú með­mælum á Island.is en hver fram­bjóð­andi þarf að öðl­ast 1.500 slík til þess að vera kjör­gengur.

Hér að neðan má finna fram­boðs­ræðu Stein­unnar á mynd­bands­formi og textaða:

Kæru vinir,

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í emb­ætti for­seta Íslands. Það geri ég vegna þess að mig langar að gera gagn og vegna þess að þið hafið hvöttuð mig til þess. Ég heyri að ykkur er alvara og það snertir mig djúpt.

Þið þekkið mig. Ég þekki ykkur. Ég hef mætt ykkur á götu, í vega­sjoppum, á AA fundum, í leik­list­inni og í sundi. Þið stöpp­uðu í mig stál­inu þegar ég var sorg­mædd og ein­mana og þið kennduð mér líka að varð­veita eld­inn, elska heitt og að ekk­ert væri ómögu­legt.

Það er mikið í húfi, því það skiptir máli hver gegnir emb­ætti for­seta Íslands.

Forseti er í for­svari fyrir þjóð­ina á ögur­stundum, þegar hún mætir sem full­trúi hennar til að sýna – að okkur má aldrei standa á sama. Forseti þarf því að vera víð­sýnn og for­dóma­laus og standa með öllu fólki sem hér býr – í blíðu og stríðu.

Þessar for­seta­kosn­ingar sýna að við verðum að eiga meira en sam­tal um stjórn­ar­skrá okkar. Breyt­ingar á henni hafa nú verið til umræðu í heilan manns­aldur. Lang­lund­ar­geð okkar er sann­ar­lega á heims­mæli­kvarða. Þjóðin á heimt­ingu að því að á hana sé hlustað. Það er þings­ins að búa svo um hnút­ana að þar sé ávallt verið að vinna að sam­eig­in­legum hags­munum fólks­ins í land­inu svo for­seti þurfi helst aldrei að sker­ast í leik­inn.

Á Íslandi býr fram­úr­skar­andi fólk sem við getum verið stolt af. En við þurfum að efla fleiri til dáða. Við eigum vanda valið á vinum og mynda tengsl sem eru okkur til fram­dráttar sem þjóð.

Á Íslandi býr líka fólk sem aldrei hefur fengið að njóta sín. Það er sam­eig­in­legt verk­efni að bæta þeirra stöðu svo allir íbúar lands­ins geti dafnað og blómstrað.

Ég lofa, verði ég for­seti, að fylgj­ast vel með og sinna þessu stóra verk­efni eftir bestu getu, ekki einu umfram annað, og inna emb­ætt­is­verkin af hendi af áhuga, sam­visku­semi og alúð.

Fyrir mér er það brýnt að við sam­ein­umst nú um að byggja upp rétt­látt og heil­brigt sam­fé­lag til fram­tíðar, fyrir okkur sjálf – en líka fyrir öll þau börn sem hér munu fæð­ast eftir okkar daga. Með því þökkum við því fólki sem byggði þetta land með sínu viti og striti. For­feðrum og for­mæðrum sem gerðu okkur kleift að búa í frið­sælu og fal­legu landi.

Kannski er mér ætlað að fylla stærri skó í líf­inu? Kannski ekki? Hvernig sem fer, þá verð ég söm eftir. 

Ég mun nú láta á það reyna, hvort þið teljið mig þess verða að gegna emb­ætti for­seta Íslands. Með þátt­töku í for­seta­kosn­ingum velur fólk sinn for­seta í trún­aði við sína sam­visku.

Ég hef opnað fyrir und­ir­skrifta­lista með­mæl­enda á  island.is  og bið þau sem vilja styðja mig að sýna það í verki svo kjör­geng geti talist, því safna þarf atkvæðum í öllum lands­fjórð­ungum.

Það er stutt til kosn­inga og ég bið ykkur, ef þið hafið trú á mér, að slást í hóp­inn og biðla til ann­arra að styðja mig sömu­leiðis.

Nú er vor í lofti, leyfum okkur að vera bjart­sýn!

Verði mér treyst til að taka þetta emb­ætti að mér heiti ég heil­indum við ykkur og það sem okkur ætti að vera kær­ast: Landið okkar, Ísland.

Þakka ykkur fyrir.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár