Sérðu púka í stað fólks? Dularfullur taugasjúkdómur rannsakaður

Banda­rískir læknar birta í fyrsta sinn myndir af því hvernig sjúk­lingar með prosopometa­morphopsiu sjá annað fólk.

Tölvumynd af raunverulegum manni sem sjúklingurinn var beðinn að horfa á.
Tölvu­mynd af raun­veru­legum manni sem sjúk­ling­ur­inn var beð­inn að horfa á. Til vinstri er mað­ur­inn eins og hann lítur út í raun en til hægri eins og sjúk­ling­ur­inn sér hann.

Ímyndið ykkur að þið gangið út og á fjöl­farna göngu­götu. Þið mætið fjölda fólks en í stað þess að kinka vin­gjarn­lega kolli til þeirra sem gefa færi á því, þá fyllist þið skelf­ingu því fólkið er satt að segja ansi skugga­legt.

Það líkt­ist helst púkum úr mið­alda­ritum eða þá hryll­ings­myndum nútím­ans.

Hver ein­asta mann­eskja er fer­lega kjaftvíð, með mjög ílöng augu og eyru og djúpar hrukkur í kinnum og á enni. Og allir, und­an­tekn­ing­ar­laust, eru heldur illsku­legir á svip.

Þetta henti hálfsex­tugan karl í Banda­ríkj­unum fyrir skömmu. Allt í einu fór allt fólk í kringum hann að líta svona út, líka fólk sem hann þekkti mjög vel, svo sem fjöl­skylda og vinir.

Breska lækna­ritið Lancet greinir frá raunum manns­ins í nýrri grein í vef­út­gáfu sinni. Antonio Mello segir þar frá nið­ur­stöðum lækna sem mað­ur­inn leit­aði til.

Maðurinn var 58 þegar hann leit­aði til lækna og hafði þá upp­lifað „púka­fésin“ í tæp þrjú ár. Hann lýsti því svo að öll and­lit, und­an­tekn­ing­ar­laust, væru svona „aflöguð“ en aðeins and­lit — engir hlutir og ekki aðrir lík­ams­hlutar.

Og þegar hann sá myndir af sama fólki, hvort heldur á blaði eða á skjá, þá var allt í lagi og and­litin í alla staði eðli­leg.

Þótt and­litin væru aflöguð átti mað­ur­inn samt ekki í neinum vand­ræðum með að þekkja aftur fólk sem hann þekkti fyrir, og hann fékk engar rang­hug­myndir um að fólkið væri orðið annað eða öðru­vísi en það var.

Hann ímynd­aði sér sem sagt ekki að það hefði í raun­inni breyst í púka eða neitt þess háttar, það var bara farið að líta svona skringi­lega út.

Maðurinn reynd­ist hafa sögu um geð­hvarfa­sýki (bípólar) og áfallastreitu, hann hafði fengið alvar­legt höf­uð­högg fyrir 15 árum og 55 ára kann hann að hafa orðið fyrir koltví­sýr­ings eitrun. Fjórum mán­uðum eftir þann atburð fóru and­lit fólks að breyt­ast fyrir augum hans.

Manninum leið í raun­inni ágæt­lega og hann þjáð­ist ekki af ofskynj­unum eða rang­hug­mynd­unum, hvorki um fólk né annað.

Eftir miklar rann­sóknir varð nið­ur­staða lækn­anna að ástand hans væri til marks um mjög sjald­gæfan tauga­sjúk­dóm sem kall­ast prosopometa­morphopsia, hvorki meira né minna, og lýsir sér í þessum aflög­uðu and­litum en hefur eftir því sem best er vitað engar aðrar skað­legar afleið­ingar.

Flestöll þau sem þjást af prosopometa­morphopsiu sjá aflögun and­lit ekki aðeins á fólki í raun og veru, heldur líka á skjá og myndum, og þess vegna hefur reynst erfitt að átta sig á nákvæm­lega hvernig sjúk­dóm­ur­inn aflagar and­lit í heila sjúk­linga.

Þar sem þessi sjúk­lingar sér and­lit hins vegar á venju­legan hátt á myndum, þá reynd­ist hægt að fá hann til að lýsa því nákvæm­lega hvaða mun hann sæi á myndum af fólki og svo fólk­inu sjálfum.

Lækn­arnir sem skrif­uðu grein­ina í Lancet — Mello, Krzysztof Bujarski og Brad Duchaine — segja að þetta sé í fyrsta sinn sem hægt sé að sjá hvernig prosopometa­morphopsiu-sjúk­lingar upp­lifa annað fólk. Á með­fylgj­andi myndum sjá hvernig hinn ónefndi sjúk­lingur sér nokkra ein­stak­linga. Engin lækn­ing við þessum dul­ar­fulla sjúk­dómi en enn í aug­sýn og senni­lega verður sjúk­ling­ur­inn ein­fald­lega að sætta sig við að sjá hálf­gerða púka í hvert sem hann fer út fyrir húss­ins dyr.

Antonio Mello útskýrir heila­sjúk­dóm­inn í mynd­bandi sem fylgir grein­inni í Lancet.
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár