Íslenska eldfjallið og hervirki í Palestínu

Í mörg hundruð ár höfðu íbúar lifað friðsælu lífi í musteris­borg í Palestínu. Þá fór Hekla að gjósa.

Guðir Kanaansmanna
Guðir Kana­ans­manna Guðir Kana­ans­manna, en hér sést einn af þeim, urðu að láta í minni pok­ann þegar hrunið mikla varð, en Heklugos var án efa ein af ástæðum þess. Það var mun meira gos en gosið 1947 sem hér er mynd af.

Öll er sagan flóknari en við héldum. Þau átök Palestínu­manna og Ísraels­manna sem nú hafa endað með skelfi­legum árásum þeirra síðarnefndu á Gasa eru sannarlega ekki þau fyrstu sem eiga sér stað á svæðinu. Og jafnvel þótt athygli okkar nú eigi og hljóti að beinast fyrst og fremst að hryllingnum á Gasa þessa dagana, þá eru líka að berast fréttir af fornleifa­uppgreftri sem endur­speglar hve blóði drifin jörðin í Palestínu er frá fornu fari.

Íbúum útrýmt

Og á dögunum birti ísraelska blaðið Haaretz frétt sem endur­speglar ekki aðeins það, heldur líka önnur tíðindi úr iðrum jarðar og sem skipta okkur Íslendinga sérstöku máli.

Það gæti nefnilega verið svo að eldfjall á Íslandi hafi átt sinn ríka hátt í niður­broti heillar musteris­borgar í Palestínu fyrir um það bil 3.150 árum – og dauða, já, útrýmingu, allra íbúa þar.

Þar var þá að verki sjálf Hekla.

…

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár