Hótar að hella sýru yfir verðmæt listaverk ef Julian Assange deyr í fangelsi

Rúss­neskur lista­maður seg­ist munu hella sýru yfir lista­verk eftir Picasso, Rembrandt og Warhol ef Julian Assange deyr í fang­elsi. „Þetta er svona gísla­taka list­ar­innar en ábyrgð­ar­að­il­inn er sá sem að heldur örlögum Julian Assange um sínar hendur,“ segir Krist­inn Hrafns­son, rit­stjóri Wiki­Leaks. Verkin eru metin á um 6,2 millj­arða króna.

Gíslataka listaverka
Gísla­taka lista­verka Ef Julian Assange deyr í fang­elsi mun sýru vera úðað yfir lista­verk sem sam­tals eru metin á yfir 6,2 millj­arða króna. Mynd: afp

Gjörn­inga­lista­verkið Sjálfseyð­ing­ar­rof­inn (e. Dead Man's Switch) eftir rúss­neska lista­mann­inn Andrei Molodkin er verk sem heldur lista­verkum eftir Picasso, Rembrandt, Andy Warhol og fleiri þekkta lista­menn í gísl­ingu. Lista­verkin eru metin á 45 millj­ónir banda­ríkja­doll­ara eða um 6,2 millj­arða íslenskra króna. Þau eru 16 tals­ins og eru geymd í sér­út­bú­inni hvelf­ingu sem vegur 32 tonn. 

Í hvelf­ing­unni eru tunnur fullar af sýru sem munu hell­ast yfir lista­verkin ef Julian Assange deyr í fang­elsi. Á hverjum ein­asta sól­ar­hring þarf ein­hver nákom­inn Assange að stað­festa við Molodkin að Assange sé á lífi, ann­ars verða verkin eyðilögð. Lista­verkin verða í gísl­ingu þar til Assange verður lát­inn laus. Þetta kemur fram í grein The New Yorker um lista­mann­inn. 

Í grein­inni kemur fram að það sé sjald­gæft að lista­menn séu til­búnir að eyða eigin verkum, enn sjald­gæfara að verk eftir aðra séu eydd og mikið sjald­gæfara að þeir sem safni lista­verkum séu til­búnir til þess að bjóða verk í sinni eigu til eyð­ingar. Það er þó erfitt að stað­festa að verkin sem að Molodkin segir að séu í hvelf­ing­unni séu þar í raun og veru eða hvort að þeim verði eytt ef að Assange deyr.

Verkið heitir Sjálfseyð­ing­ar­rof­inn vegna þess að banda­rísk stjórn­völd hafa örlög Julian Assange í hendi sér. Hann situr nú í örygg­is­fang­elsi í Lundúnum. Banda­rísk stjórn­völd reyna að fá Assange fram­seldan til Banda­ríkj­anna þar  sem hann á yfir höfði sér allt að 170 ára fang­elsi á grund­velli njósn­a­lög­gjafar. Þann 11. apríl mun hann hafa verið þar í fimm ár. Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wiki­Leaks, hefur hitt lista­mann­inn Molodkin og séð verkin eftir hann. „Eins og inn­takið í verk­inu bendir til er Assange búinn að vera í apríl í fimm ár í þessu örygg­is­fang­elsi í Bret­landi,“ segir hann í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Kristinn sagði í við­tali í Pressu í lok febr­úar að það sé „alveg absúrd“ að útgef­andi og blaða­maður sem ekki hafi unnið nokkrum manni mein sé lát­inn sitja inni um hryðju­verka­menn og morð­ingja. Aðbún­aður í varð­hald­inu eru að sögn Kristins verri en þeirra sem afplána dóm. „Hans aðstæður eru mun verri en dæmdra brota­manna fyrir alvar­lega glæpi.“

Krist­inn heim­sækir Julian Assange reglu­lega í fang­elsið og seg­ir að­stæð­urnar þar vera mjög slæm­ar. Síðast heim­sótti hann Assange á mið­viku­dag­inn og gat því stað­fest að hann væri enn þar. „Þetta ógeðs­lega ástand er það sem kveikir í lista­mann­inum að styðja við bakið á hans slag, því að lista­menn skilja það betur en margir að þetta eru slagir í mál­frelsi og tján­ing­ar­frelsi,“ segir Kristinn. Hann tekur það fram að hvelf­ingin sé svipuð á stærð og fanga­klefi Assange. 

Kristinn Hrafns­sonrit­stjóri Wiki­Leaks, hefur hitt lista­mann­inn Molodkin

Það kom Kristni á óvart hvað lista­menn, söfn og eig­endur lista­verka voru til­búnir að leggja verk sín undir í þessum gjörn­ingi. Hann segir að þarna sé um að ræða gjörn­ing „sem leggur áherslu á það að sá sem að heldur um gikk­inn og sá sem ber ábyrgð á hvað verður af þessum verkum er Banda­ríkja­stjórn. Þetta er svona gísla­taka list­ar­innar en ábyrgð­ar­að­il­inn er sá sem að heldur örlögum Julian Assange um sínar hendur.“

Molodkin fram­kvæmdi þennan gjörn­ing af eigin frum­kvæði en Kristinn kveðst vera mjög ánægður með hann. Hann finnur fyrir vax­andi skiln­ingi hjá lista­mönnum um hve mikið sé undir í málum Assange. Hann segir að lista­menn séu „hópur sem getur gripið til tján­ingar sem er sterk og öflug.“

Ef íslenskir lista­menn og lista­verka­eig­endur hafa áhuga á að taka þátt í gjörn­ingi Molodkin seg­ist Kristinn geta komið þeim í sam­band við lista­mann­inn. 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Óskandi að hann fengi að losna úr þessu víti og fái að lifa sem frjáls maður, nóg komið.
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er spurning hvor kendin er sterkari, buddan eða frelsið. Rophænsn líðræðis víla ekki fyrir sér eyðingu hvers sem er fyrir aurinn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár