Mansalsmálið, Kristrún Frostadóttir og Bashar Murad í Pressu

Grím­ur Gríms­son, yf­ir­mað­ur hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Jenný Krist­ín Val­berg, teym­is­stjóri Bjarka­hlíð­ar og Sigrún Skafta­dótt­ir, deild­ar­stjóri hjá Vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur koma í Pressu og ræða um man­sals­mál­ið. Í þætt­in­um verð­ur líka rætt við Kristrúnu Frosta­dótt­ur, formann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og Bash­ar Murad, tón­list­ar­mann frá Palestínu.

Mansalsmálið, Kristrún Frostadóttir og Bashar Murad í Pressu

Aðgerðir lögreglu í vikunni sem gerðar voru í samstarfi við ýmsar stofnanir og samtök voru með þeim umfangsmestu sem ráðist hefur verið í hér á landi.

Rætt verður um aðgerðirnar og það sem er framundan í málinu við Grím Grímsson, Jenný Kristínu Valberg og Sigrúnu Skaftadóttur í Pressu en Jenný Kristín segir í samtali við Heimildina að þau sem hafi komið að málinu ætli sér að halda þétt utan um fólkið sem grunur leikur á að sé fórnarlömb mansalsins. 

Hún segir að ekki hafi enn tekist að ná tali af öllum sem talið er að séu þolendur í málinu. Í næstu viku verði fólkinu sem þá verði búið að ná tali af boðið að hitta fulltrúa frá samtökum og stofnunum sem hafi staðið að aðgerðunum í vikunni. „Við stefnum að því að geta svarað spurningum þeirra og hlúð að þeim eftir fremsta megni.“

Jenný Kristín segir að grunur leiki á að fólkið hafi unnið tólf klukkustunda vinnudaga sex daga vikunnar og ekki fengið greitt í samræmi við það. „Starfsfólk ASÍ mun skoða launaseðlana og hugsanlega er tilefni til að gera launakröfur á eigendur fyrirtækjanna.“ 


Í þættinum ræðir Helgi Seljan, rannsóknaritstjóri Heimildarinnar  við Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar og sýnt verður brot úr viðtali Ölmu Mjallar Ólafsdóttir, blaðakonu á Heimildinni við Bashar Murad sem keppti í söngvakeppninni um síðustu helgi.

Pressa er send út í beinu streymi í hádeginu alla föstudaga á vef Heimildarinnar. Útsending hefst klukkan 12.00.

 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár