Ný skýrsla kynnt í Namibíu - Allt að þúsund manns misstu vinnuna

Samherji er sagður bera ábyrgð á ómældum hörm­ungum vegna fram­göngu fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu. Ný skýrsla, sem unnin var um áhrif mútu­máls­ins í Namibíu með stuðn­ingi breska sendi­ráðs­ins í land­inu, greinir frá þessu. Kallað eftir afsök­un­ar­beiðni og greiðslu skaða­bóta frá Íslandi.

Ný skýrsla kynnt í Namibíu - Allt að þúsund manns misstu vinnuna
Ban­eitrað sam­band í Walvis Bay Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja og Bernhard Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu ásamt eig­in­konu þess síð­ar­nefnda. Myndin er tekin á fundi á búgarði ráð­herr­ans þar sem að sögn var lagt á ráðin um sam­starf Samherja og Esau og hans manna. Ákvörðun Esau um að svipta fjölda útgerða kvóta og koma honum síðan til Samherja í skiptum fyrir mútu­greiðslur, er sögð hafa kostað þús­und manns atvinnu og þján­ingu fjölda ann­arra.

„Hér erum við að setja hin raun­veru­legu fórn­ar­lömb þessa mútu­hneykslis í for­grunn. Að beina athygl­inni út fyrir landa­mæri Namibíu. 15 þús­und kíló­metra í norður, til Reykja­víkur og Akur­eyrar“, Þetta sagði Graham Hopwood, einn höf­unda stöðu­skýrslu sem félaga­sam­tökin The Institute for Public Policy Research (IPPR) hafa unnið í sam­starfi við breska sendi­ráðið í Namibíu um áhrif Fishrot-mútu­hneyksl­is­ins á namibískt sam­fé­lag.

Til­gangur skýrsl­unnar, sem unnin var á sex mán­aða tíma­bili – frá sept­em­ber í fyrra og fram í febr­úar á þessu ári – er að beina athygl­inni af afleið­ing­unum sem málið hefur haft víðar en að namibískum stjórn­völdum, og sér­stak­lega til Íslands. 

Í henni er sögð saga þrettán sjó­manna sem hafa orðið illa úti vegna máls­ins. Rætt var við 40 sjó­menn og fjölda barna þeirra. Ýmist er um að ræða menn sem störf­uðu hjá útgerðum sem misstu kvóta, þegar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Namsov missti kvóta vegna ákvarð­ana sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans og tengdra manna, sem nú sitja í varð­haldi í Namibíu. Þeim kvóta var síðan komið til Samherja sem greiddi áhrifa­mönn­unum mútur í stað­inn, sam­kvæmt lýs­ingum rann­sak­enda og ákærum í Namibíu.

Allt að 1.000 manns eru sögð hafa misst vinnu af þeim sökum. Eins er rætt við sjó­menn á skipum Samherja, sem sagt var upp fyr­ir­vara­laust þegar fyr­ir­tækið hætti skyndi­lega starf­semi í land­inu í kjöl­far þess að upp­ljóstrað var um Fishrot-hneykslið.

Saga mannanna sorgleg

Stöðu­skýrslan er hluti af stærri rann­sókn á áhrifum Fishrot-mútu­hneyksl­is­ins. Enn er til skoð­unar efna­hags­legt tap sam­fé­lags­ins, bæði vegna fjár­hags­legs taps namibísku þjóð­ar­innar og skattaund­an­skota sem fylgdu. Þetta verði grund­völlur þess að krefj­ast skaða­bóta vegna þess skaða sem málið hefur valdið. Þær bætur eigi síðan að nýta til að bæta þeim sem sem hafa orðið verst úti vegna máls­ins.

Loforð Björg­ólfsLýsingar fyrr­ver­andi sjó­manna á skipum Samherja í Namibíu benda ekki til þess að þeir telji lof­orð þáver­andi for­stjóra Samherja um við­skilnað fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu ekki hafa stað­ist.

Saga mann­anna sem sögð er í skýrsl­unni er sorg­leg. Margir þeirra hafa misst heim­ili sín, neyðst til að flytja í kofa­byggðir, þar sem aðgangur að raf­magni, vatni og hrein­læt­is­að­stöðu er tak­mark­aður og fjöl­skyldur þeirra hafa sundr­ast eftir að eina fyr­ir­vinna stórra fjöl­skyldna varð skyndi­lega atvinnu­laus. Þeir urðu allir fyrir því að fót­unum var skyndi­lega kippt undan þeim, þegar þeim var sagt upp fyr­ir­vara­laust og án skýr­inga. 

Stefna Samherja ef með þarf

Í máli Hopwood, sem er stjórn­andi hjá IPPR, á kynn­ingu á skýrsl­unni kom fram að íslenska fyr­ir­tækið Samherji væri aug­ljós­lega sá aðili sem beri ábyrgð í mál­inu. Þess vegna þurfi að ná eyrum Íslend­inga.

Hann vill að Samherji „biðj­ist form­lega afsök­unar á sínum hlut í Fishrot-mútu­hneyksl­inu, sér­stak­lega gagn­vart þeim ein­stak­lingum sem það hefur haft áhrif á, þeim sam­fé­lögum og namibísku sam­fé­lagi í heild sinni.“

Auk þess er krafa um að Samherji greiði bætur til þeirra ein­stak­linga og sam­fé­laga sem hafa orðið fyrir nei­kvæðum áhrifum vegna máls­ins. Ef til þess kemur þurfi að sækja þær skaða­bætur til Samherja í gegnum dóm­stóla. 

Hann sagði íslensk stjórn­völd þurfa að leggja við hlustir. Það gengi ekki lengur að þau tækju ekki ábyrgð. Það væri ekki nóg að skora hátt á listum þjóða þar sem lítil spill­ing ríkir, það þyrfti líka að sýna það í verki.

„Heim­ur­inn er að horfa,“ sagði Hopwood.

Talaði til Akur­eyrar

Áhrifin komið fram í „jafnvel dauða fólks“

Trevino Forbes, borg­ar­stjóri í Walvis Bay, tók til máls á fund­inum en áhrif Fishrot-hneyksl­is­ins hafa komið harð­ast niður í hafn­ar­borg­inni, þar sem sjó­menn­irnir búa. Borg­ar­yf­ir­völd hafa reynt að koma til móts við þá með því að gefa bygg­ing­ar­land sem sjó­menn­irnir hafa fengið til að koma sér upp hús­næði. „Áhrif Fishrot hafa verið þung fyrir sam­fé­lagið í Walvis Bay og áhrifin komið fram í miklu van­trausti, nei­kvæðum efna­hags­á­hrifum og jafn­vel dauða fólks.“

Hann sagði afar mik­il­vægt að takast á við þá spill­ingu sem geisað hefur í sjáv­ar­út­vegi í land­inu. „Fjöldi fólks varð fyrir áhrifum af þessu máli, misstu vinnu eða sat uppi í óvissu um fram­tíð sína. Hungur er ein­fald­lega dag­legt við­fangs­efni meira en 20 pró­sent íbúa Walvis Bay og atvinnu­leysi ungs fólks mælist um 40 pró­sent. Staða hús­næð­is­mála er hrika­leg, eins og sést hefur í stór­brunum sem orðið hafa í kofa­byggðum í og við borg­ina sem kostað hafa fjöl­mörg manns­líf und­an­farin ár.“

Eins hafi nei­kvæðra áhrifa orðið vart með minnk­aðri fjár­fest­ingu og upp­bygg­ingu atvinnu­lífs í Walvis Bay. Þess vegna sé mik­il­vægt að sið­væð­ing eigi sér stað í grein­inni.

Fulltrúi breskra stjórn­valda á fund­inum, Charles Moore, sendi­herra Breta í Namibíu, sagði að skýrslan væri mik­il­vægt plagg um „áhrif spill­ing­ar­máls á sam­fé­lag og fólk sem enga ábyrgð bar á þeirri atburða­rás sem olli öllum þessum skaða. Hér fáum við fram sann­anir fyrir þessum sorg­legu áhrifum.“ 

Kjósa
76
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Þessi skýrsla var áhugaverð aflestrar. Ég og Helgi Seljan erum sýnilega ekki sammála um höfundana. Helgi tilgreinir ritstjórann og formálaskrifarann sem einn höfundanna en nefnir ekkert hina raunverulegu höfunda, sem eru tveir. Annar raunverulegu höfundanna er undirmaður ritstjórans í spillingarstofnuninni sem gefur skýrsluna út. Hinn er lausapenni sem meðal annars hefur skrifað með Helga í Heimildina.
    Í skýrslunni, gluggunum sem kallaðir eru "Skilaboð til Samherja" kemur fram hjá líklega meirihluta viðmælenda sterkt ákall um að Samherji komi aftur til Namibíu til að byggja þar upp atvinnustarfsemi. Einhverjir vilja að Samherji borgi bætur útaf meintum forsendubresti, - sjá sjálfsagt í hendi sér að fyrirtækið sé ólíklegt til frekari samskipta við Namibíumenn eftir það sem á undan er gengið, og vonast eftir bótum en segjast ekki treysta ríkisstjórninni. Vonast því eftir að Samherji láti eitthvað af hendi rakna. Sameiginlegt með sögunum er að menn voru að byggja hús, byggja upp fyrirtæki, kaupa bíla og búfénað og sjá fyrir ómældum fjölda ættingja á meðan þeir voru í vinnu hjá Samherja. Umsvifin slík (samkvæmt lýsingunum) að jafnvel bjartsýnustu Íslendingar hljóta að taka andköf.
    Engin furða að mennirnir vilji fá Samherja aftur niður til Namibíu.
    Ég mæli með að allir lesendur Helga fylgi hlekknum sem hann setti inn hér og lesi skýrsluna. Gjarnan með talnagleraugun á, þau gefa líka alveg ýmis tilefni til nánari rýningar.
    Og af því að Heimildin hefur athugasemdakerfið sitt stillt þannig að nafnið mitt sést ekki finnst mér rétt að undirrita skrifin.
    Ingunn Björnsdóttir
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hefur ekkert gerst í þessu máli hér eftir allan þennan tíma?
    Bara spyr.
    4
  • Kári Jónsson skrifaði
    Litlar eða engar fréttir er að hafa hjá héraðs-saksóknara, alvarleg mistök voru gerð af hálfu saksóknara-embættanna í upphafi Samherja/Namibíu-svindlsinns, það var að sölufrysting eigna Samherja-holding næði ekki fram að ganga, afleiðingin er HOLUN Samherja-holding við þessu var varað af leikum og lærðum, enda stærsta fjársvikamál á íslandi eftir HRUN-ÞJÓFNAÐINN 2008.
    2
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    "..vill að Samherji „biðjist formlega afsökunar.." Fyrr mun rigna í helvíti.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár