Búrfellslundur innan áhrifasvæðis jökulhlaupa

Í verstu sviðs­myndum Veð­ur­stof­unnar varð­andi jök­ul­hlaup í kjöl­far eldsum­brota gæti Sult­ar­tanga­stífla brostið og áformað vind­orku­ver Lands­virkj­unar orðið fyrir áhrifum af djúpu og straum­þungu vatni með miklum tjón­mætti.

Búrfellslundur innan áhrifasvæðis jökulhlaupa
Vindorka Tölvu­gerð mynd frá Lands­virkjun sem sýnir vind­myllur hins áform­aða vind­orku­vers að vetri. Mynd: Landsvirkjun

Vind­orku­verið Búr­fellslundur, sem Lands­virkjun áformar austan Sult­ar­tanga­virkj­unar á Þjórsár- og Tungna­ár­svæð­inu, er innan mögu­legra áhrifa­svæða jök­ul­hlaupa vegna eldsum­brota undir Bárð­ar­bungu, Köldu­kvísl­ar­jökli og Sylgju­jökli.

Á þetta bendir Veð­ur­stofa Íslands í umsögn um til­lögu að deiliskipu­lagi hins fyr­ir­hug­aða virkj­un­ar­svæðis. Stofn­unin seg­ist hafa unnið  straum­fræði­lega lík­ana­reikn­inga fyrir nokkrar mögu­legar jök­ul­hlaupa­sviðs­myndir. „Samkvæmt nið­ur­stöðum reikn­ing­anna er mögu­leiki á að flóð­var í Sult­ar­tanga­stíflu, eða jafn­vel stíflan sjálf bresti í verstu sviðs­myndum,“ segir í umsögn­inni. Áætlað upp­bygg­ing­ar­svæði geti því farið á kaf „í djúpt og straum­þungt vatn með miklum tjón­mætti“. 

Möguleg jök­ul­hlaup eru áætluð mun stærri en svo að afmark­aðir flóð­far­vegir yfir­falls úr Sult­ar­tanga­lóni beri þau. 

Veð­ur­stofan gerir sér grein fyrir því að virkjun vatns­orku í jök­ulám er í eðli sínu við­kvæm fyrir jök­ul­hlaupum en bendir engu að síður á að áætluð stað­setn­ing vind­orku­vers á mögu­legu áhrifa­svæði jök­ul­hlaupa fjölgi „orku­fjöreggjum þjóð­ar­innar sem útsett eru fyrir sömu hættu“. Svo segir í umsögn stofn­un­ar­innar: „Velta má fyrir sér hvort að minnka megi sam­fé­lags­lega áhættu í orku­málum með því að sem fæstum orku­innviðum stafi ógn af hverjum einum til­teknum nátt­úru­vá­r­at­burði.“

Sveit­ar­fé­lagið Rangár­þing ytra, sem aug­lýsti deiliskipu­lagið, fékk verk­fræði­stof­una Eflu til að svara fram­komnum umsögnum. Efla leit­aði aftur svara hjá Lands­virkjun sem segir marga flóða­út­reikn­inga hafa verið gerða á fram­kvæmda­svæði Búr­fellslundar. Hönnun verk­efn­is­ins taki mið af því að vind­myll­urnar geti lent í straum­vatni og eru hönn­un­ar­for­sendur sagðar sér­hann­aðar með það í huga þar sem bæði er litið til veð­ur­fars­legra flóða sem og jök­ul­hlaupa.

Þó sé ekki litið til þeirra stærstu sem talin eru mögu­leg enda að mati Lands­virkj­unar óraun­hæft að hanna mann­virki sem stand­ast flóð þar sem jörðin sjálf geti tekið umtals­verðum breyt­ingum.

Þá taki  hönn­un­ar­for­sendur vind­myll­anna og til­heyr­andi mann­virkja til­lit til mögu­leika á stífl­urofi og flóð­vars­rofi. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vindorka á Íslandi

23 mín.
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.
SkýringVindorka á Íslandi

Hval­fjörð­ur­inn endi ekki sem „rusla­haugur alls konar til­rauna“

Raf­elds­neyt­is­verk­smiðjur eru sögu­lega orku­frekar. Þær eru líka fyr­ir­ferð­ar­miklar og með tengdum mann­virkjum á borð við bryggjur og virkj­anir yrði rask af þeim mikið. „Má ekki ákveða á ein­hverjum tíma­punkti að nóg sé komið?“ spyr kona í Hval­firði sem myndi sjá 60 metra háan kyndil raf­elds­neyt­is­verk­smiðju á Grund­ar­tanga frá jörð­inni sinni.

15 mín. lestur

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár