Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Þögn Sjúkratrygginga kærð til úrskurðarnefndar

Heim­ild­in hef­ur frá því í nóv­em­ber reynt að fá svör frá Sjúka­trygg­ing­um Ís­lands um af­skipti stofn­un­ar­inn­ar af einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni.

Þögn Sjúkratrygginga kærð til úrskurðarnefndar
Sjúkratryggingar Íslands svara engu Sjúkratryggingar Íslands, sem Sigurður Helgi Helgason stýrir, hafa ekki svarað ítrekuðum spurningum Heimildarinnar um skoðun á reikningum Klíníkurinnar. Willum Þór Þórsson er heilbrigðisráðherra og sést hér með Sigurði Helga.

Heimildin hefur beint erindi til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna afskipta ríkisstofnunarinnar Sjúkratrygginga Íslands af einkarekna heilbrigðisfyrirtækinu Klíníkinni. Blaðið sagði frá því í nóvember að Sjúkratryggingar Íslands hefðu gert athugasemdir við reikninga frá Klíníkinni vegna veittrar heilbrigðisþjónustu sem íslenska ríkið greiðir fyrir. Samkvæmt heimildum var til skoðunar hvort Klíníkin hafi ofrukkað Sjúkratryggingar Íslands fyrir veitta þjónustu. 

Blaðið sendi spurningar um málið til Sjúkratrygginga Íslands þann 17. nóvember. Ein af spurningum blaðsins hljómaði svo: „Hafa einhvern tímann í gegnum árin verið opnuð eftirlitsmál gagnvart Klíníkinni, sem sagt starfsmönnum fyrirtækisins, innan Sjúkratrygginga Íslands? Þá er átt við mál sem tengjast mögulegum og meintum brotum starfsmanna fyrirtækisins á því laga- og regluverki sem gildir um samskipti Sjúkratrygginga Íslands og einkarekinna fyrirtækja sem veita heilbrigðisþjónustu.“ 

Sjúkratryggingar Íslands svöruðu aldrei þessari spurningu, né öðrum um tengd mál, þrátt fyrir fjölmargar ítrekanir. Heimildin leitaði í kjölfarið eftir milligöngu …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Eru ekki sjúktryggingar rekin sem útibú stjórnmálaflokka ? Í dag er Framsóknarflokkurinn á fullu að einkavinavæða heilbrigðiskerfið, þar sem Klinikin er í aðalhlutverki ?
    3
    • Valur Bjarnason skrifaði
      Heilbrigðiskerfið er einkavætt innanfrá án allrar umræðu á alþingi. Nákvæmlega sama leið farin hér á landi og var farin í Bretlandi.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Ís­lenska út­rás­in í bresku elli­heim­il­in

Fjár­festa­hóp­ur sem Kvika setti sam­an hef­ur á síð­ustu ár­um ver­ið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa kom­ið hing­að til lands til að mæla fyr­ir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Ís­landi. Kvika sjálf, og þar með ís­lensk­ir líf­eyr­is­sjóð­ir, er hlut­hafi í elli­heim­il­un­um sem skil­uðu arð­semi um­fram vænt­ing­ar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigðis­kerf­inu

Will­um Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur stað­ið fyr­ir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigðis­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eft­ir­lit með þeim fjár­mun­um sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hef­ur sam­hliða því ekki ver­ið auk­ið. Will­um Þór svar­aði spurn­ing­um um með­al ann­ars á Al­þingi um miðj­an mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ing­ar kanna gagn­rýni lækna á út­vist­un að­gerða

Rík­is­stofn­un­in Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem kom­ið hef­ur fram frá lækn­um á Land­spít­al­an­um á út­vist­un á að­gerð­um gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ing­ar segja að heil­brigð­is­ráðu­neyt­ið telji að þörf sé á að út­vista að­gerð­un­um jafn­vel þó lækn­ar á Land­spít­al­an­um segi að svo sé ekki.
Aðgerðir einkavæddar til Klíníkurinnar að ástæðulausu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Að­gerð­ir einka­vædd­ar til Klíník­ur­inn­ar að ástæðu­lausu

Eng­ir bið­list­ar eru eft­ir að­gerð­um gegn en­dómetríósu á Land­spít­al­an­um en þrátt fyr­ir það ætla Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands að einka­væða slík­ar að­gerð­ir með samn­ingi til fimm ára. Kven­sjúk­dóma­lækn­ar á Land­spít­al­an­um eru ósátt­ir við þetta og segja út­vist­un­ina óþarfa og lýsa yf­ir áhyggj­um af þró­un­inni.

Mest lesið

Íslendingar þurfi að ákveða hvar þeir staðsetja sig: „Þetta eru mjög válegir tímar“
3
ViðtalBandaríki Trumps

Ís­lend­ing­ar þurfi að ákveða hvar þeir stað­setja sig: „Þetta eru mjög vá­leg­ir tím­ar“

Pól­skipti hafa átt sér stað í vest­rænu varn­ar­sam­starfi með skyndi­legri stefnu­breyt­ingu Banda­ríkj­anna í ut­an­rík­is­mál­um, seg­ir Erl­ing­ur Erl­ings­son hern­að­ar­sagn­fræð­ing­ur. Hætta geti steðj­að að Ís­landi en Banda­rík­in hafi sýnt að þau séu óút­reikn­an­leg og beri ekki virð­ingu fyr­ir leik­regl­um al­þjóða­kerf­is­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Einn og hálfur tími á bráðamóttöku: Sjálfsskaði, hjartastopp og hnífstunga
4
Á vettvangi

Einn og hálf­ur tími á bráða­mót­töku: Sjálfsskaði, hjarta­stopp og hnífstunga

Eitt orð má aldrei nota á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans og það er orð­ið ró­legt. Nán­ast um leið og Jón Ragn­ar Jóns­son bráða­lækn­ir hef­ur orð á að það sé óvenju ró­legt á næt­ur­vakt eina helg­ina dynja áföll­in á. Hann hef­ur rétt kom­ið manni til lífs þeg­ar neyð­ar­bjall­an hring­ir á ný. Síð­an end­ur­tek­ur sama sag­an sig.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár