Hatarar lyftu fána Palest­ínu í beinni útsend­ingu í Expo-höll­inn í í Tel Aviv – og gjörn­ing­ur­inn náði athygli heims­ins. Erlendir fjöl­miðlar skrifa ennþá um hann.

Íslendingar hrista upp í evrópsku tabúi

Þátttaka Íslands – og Ísraels – í Eurovision hefur valdið ólg­andi umræðu bæði hér­lendis og á erlendri grundu. Miklir hags­munir, fjár­hags­legir, menn­ing­ar­legir og póli­tískir liggja undir. Enn er óljóst hver end­an­leg ákvörðun RÚV verður, en mót­mæli íslensks tón­list­ar­fólks hafa vakið gríð­ar­lega athygli á alþjóða­vett­vangi. Hvaða þýð­ingu hefur Eurovision fyrir sam­fé­lagið – og RÚV? Já, eða bara Evrópu?

Í nýlegri grein á Der Spiegel.de má lesa að við afgreiðslu um þátt­töku Ísraels hafi skipu­leggj­endur Eurovision boðað að Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva sé ópóli­tískur við­burður, þar sem almenn­ingur á heims­vísu sam­ein­ist í gegnum tón­list. Þetta snú­ist um keppni fyrir félags­net útvarps­stöðva – ekki um stjórn­völd. En grein­ar­höf­undur setur spurn­ing­ar­merki við það. 

Ekki að ástæðu­lausu!

Greinin birt­ist þann 20. jan­úar síð­ast­lið­inn með fyr­ir­sögn­inni: Norrænir lista­menn krefja ESC um snið­göngu Ísraels – skipu­leggj­endur vísa því frá. 

Hún hefst á þessum orðum: Að Eurovision söngvakeppnin sé ópóli­tískur við­burður, líkt og stendur í regl­unum, liggur í hlut­ar­ins eðli að sé lífslygi hinnar evr­ópsku tón­list­ar­keppni. 

Í orðum grein­ar­höf­undar gætir afdrátt­ar­leysis – en skyldu þau vera rétt? 

Getur verið að póli­tík sé alltaf vel­komin í Eurovision svo lengi sem hún sé í takt við hags­muni sam­einaðrar Evrópu? 

Hvernig ætti þá söngvakeppni allrar Evrópu að geta nokkurn tím­ann verið ópóli­tísk? Og hvað speglar hún? 

Hvaða þýð­ingu …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár