Læra muninn á heilbrigðum og óheilbrigðum samböndum

Vika 6 hefst í næstu viku þar sem starfs­menn grunn­skól­anna og félags­mið­stöðv­anna eru hvattir til að bjóða upp á fjöl­breytta kyn­fræðslu í skól­unum. Miklar umræður sköp­uð­ust í fyrra vegna vegg­spjalda og kennslu­efnis grunn­skól­anna sem sumum þótti full gróft. Þemað í ár er sam­skipti og sam­bönd.

Veggspjaldið
Vegg­spjaldið Í ár er þemað sam­skipti og sam­bönd. Vegg­spjaldið í ár er fremur sak­laus­ara en þau hefur verið und­an­farin árin. Mynd: Aðsend

„Það verður engin fræðsla eða kennsla um BDSM,“ segir Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttir, yfir­maður jafn­rétt­is­skóla Reykja­vík­ur­borgar, þegar blaða­maður Heim­ild­ar­innar spurði hana um vegg­spjaldið fyrir viku 6. Þemað á vegg­spjald­inu í ár er sam­skipti og sam­bönd. 

Kolbrún Hrund Sig­ur­geirs­dóttirYfir­maður jafn­rétt­is­skóla Reykja­vík­ur­borgar

Vika 6 er sjötta vika hvers árs og er hún í næstu viku. Starfs­menn grunn­skól­anna og félags­mið­stöðv­anna eru hvattir til að bjóða upp á fjöl­breytta kyn­fræðslu í skól­unum þá vik­una. Fá skól­arnir sendar til sín hug­myndir um hvernig má kenna efnið. 

„Það liggur við að maður haldi að ung­ling­arnir hafi verið að gera þetta til þess að halda umræð­unni niðri,“ segir Kolbrún um val ung­ling­anna á þema vegg­spjalds­ins í ár. Þemað segir hún vera „fárán­lega sam­fé­lags­lega­vænt“ en telur að ung­ling­arnir séu ekk­ert vera að velta þeirri umræðu sem kom upp í fyrra fyrir sér og því ekki það sem var þeim efst í huga við val á þema.

Kolbrún getur vel ímyndað sér að starfs­menn grunn­skól­anna og félags­mið­stöðv­anna séu fegin með þemað í ár, vegna umræð­unnar sem varð til vegna vegg­spjalds­ins í fyrra. Engar teikn­aðar myndir af nöktum lík­ömum eru á vegg­spjald­inu í ár og er það í fremur sak­laus­ari kant­inum en það hefur verið sein­ustu ár. 

Þemað í ár

„Við erum að leggja áherslu á mun­inn á heil­brigðum og óheil­brigðum sam­böndum,“ segir Kolbrún um fræðsl­una í ár. Á vef Reykja­vík­ur­borgar um viku 6 þemað í ár stendur að æfing­arnar þjálfi „nem­endur í því að koma auga á hvaða sam­skipti eru jákvæð og heil­brigð, hvaða sam­skipti þarf að vinna með og hvaða sam­skipti eru nei­kvæð, óheil­brigð og jafn­vel ofbeldi.“

Kjósa sjálf þemaðBörnin völdu þemað sam­skipti og sam­bönd.

Þemað í ár segir Kolbrún vera „rosa­lega lítið kyn­ferð­is­legt. Eina sem við erum að tala um er að þegar að þú ert í sam­bandi þarftu að sýna ábyrgð í kyn­lífi. Sam­skiptin verða að vera í lagi, líka þegar kemur að kyn­líf­inu. En vegg­spjaldið í ár er tölu­vert mild­ara en sein­ustu ár.“

„Þetta er í raun­inni í annað skipti sem að þau velja sama þemað, því fyrir tveimur eða þremur árum síðan var þemað til­finn­ingar og sam­skipti. Þannig þetta er greini­lega eitt­hvað sem er ung­ling­unum ofar­lega í huga.“ 

Foreldrar ósáttir með kennsluefni

Í sept­em­ber í fyrra fór umræða á sam­fé­lags­miðlum af stað þar sem sumum for­eldrum þótti kyn­fræðslan sem var kennd í skól­anum full gróf og voru þau ósátt með bók­ina sem var nýtt í kennslu í kyn­fræðslu. Í frétt frá Reykja­vík­ur­borg í sept­em­ber segir að „borið hefur á því að vill­andi og oft röngum upp­lýs­ingum sé dreift um sam­fé­lags­miðla, náms­efni tekið úr sam­hengi og því stillt upp á vafa­saman hátt.“ 

Var því haldið fram að Samtökin ‘78 færu með kyn­fræðslu í grunn­skól­ana en í færslu sem Samtökin ‘78 deildu á Facebook í sept­em­ber í fyrra kemur fram að „Samtökin ‘78 hafa aldrei sinnt kyn­fræðslu í grunn­skólum né gefið út kyn­fræðslupla­köt, bækur eða annað efni um kyn­fræðslu ætlað börnum.“ 

BDSM ekki kennt í viku 6

Á vegg­spjaldi á vegum Sam­tak­anna ‘78 og Mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar sem kom úr árið 2019 stóð setn­ingin „BDSM-hneigð: að lað­ast að fólki sem deilir löng­unum um sam­þykk og með­vituð valda­skipti.“ Var vegg­spjaldið harð­lega gagn­rýnt og mikið deilt um það á sam­fé­lags­miðlum.

Á vef Jafn­rétt­is­skóla Reykja­vík­ur­borgar kemur fram að „börn læra ekki um BDSM, þau eru ekki hvött til að fara í lækn­is­leiki, til að stunda sjálfs­fróun eða að pota fingrum í rass­inn á sér, en slíkt eru allt dæmi um full­yrð­ingar á sam­fé­lags­miðlum.“  Þar stendur einnig að „unglingar spurðu reglu­lega hvað BDSM væri og var talið að þessi setn­ing væri næg útskýr­ing og gæti komið í veg fyrir að þeir færu ekki að leita svara á net­inu. Ungt fólk spyr spurn­inga og með því að svara á opin­skáan en ald­ur­sam­svar­andi hátt er hægt að koma í veg fyrir verri og gjarnan afbak­aðri svör sem leyn­ast á net­inu. BDSM kemur ekki fyrir í fyr­ir­lestrum eða öðru náms­efni í hinseg­in­fræðum.“

„Eina teng­ing Viku 6 við klám er að kenna börnum mun­inn á kyn­lífi og klámi og veita þeim mót­vægi við þeim skökku og skað­legu skila­boðum sem klám veitir þeim um kyn­heil­brigði, sam­bönd og sam­skipti,“ kemur fram á vef Jafn­rétt­is­skóla Reykja­vík­ur­borgar.  

Umræður sköp­uð­ust á Pabbatips og Mæðratips í fyrra þar sem skjá­skot úr bók­inni Kyn, kyn­líf og hitt voru rædd. Var meðal ann­ars rætt skjá­skot af teikn­uðu barni í baði snerta sig og höfðu ein­hverjir for­eldrar áhyggjur af slíku kennslu­efni. Setn­ingin „þið gætuð leikið ykkur ein, við ein­hvern í fjöl­skyld­unni eða við vini“ var einnig rædd líkt og bókin væri að gefa það í skyn að börn gætu stundað kyn­líf með fjöl­skyldu­með­limum. „Fólk var farið að rugla saman kyn­fræðslu­bók­inni við vegg­spjöldin, svo þetta fór allt saman í einn graut.“

Veggspjöldin kend samhliða annarri fræðslu

„Við höfum alveg minnt á það að vegg­spjöldin eru sam­hliða annarri fræðslu. Margir halda að vika 6 séu bara vegg­spjöld en við erum alltaf með alls­konar kennslu hug­myndir. Þau eru bara partur af því,“ segir Kolbrún. Hún segir mark­visst hvernig kennslu­efnið er sett upp. Börn eru for­vitin og leita að svörum við þeim spurn­ingum sem þau velta upp. „Börnin okkar voru að horfa rosa­lega mikið á klám og þá kemur upp að þar er engin nánd og engin sam­skipti eða kossar. Þar er ekk­ert spurt eða talað, hvað viltu eða hvað viltu ekki? Þannig við vorum alveg mark­visst að setja þessa hluti inn í vegg­spjaldið til að veita mót­vægi. Það var engin til­viljun að þetta rataði á vegg­spjöldin.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár