„Það er ekki þannig að réttindi hinsegin og kynsegin fólks skerði réttindi annarra“

Katrín Jak­obs­dóttir segir umræðu sem hefur blossað upp um að allt of langt sé gengið í að fræða börn og ung­menni um fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins þegar kemur að kyn­hneigð sé hluti af „ótrú­lega döpru bakslagi“ sem orðið hafi gagn­vart rétt­indum hinsegin og kynsegin fólks.

„Það er ekki þannig að réttindi hinsegin og kynsegin fólks skerði réttindi annarra“
For­sæt­is­ráð­herra Katrín Jak­obs­dóttir seg­ist hafa fengið fjölda skeyta um þar sem kenn­arar og starfs­fólk skóla er sakað um inn­ræt­ingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við eigum að fræð­ast um ólíka kyn­hneigð, kyn­vit­und og kyntján­ingu – vegna þess að það skiptir máli að við lærum um fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins og að við skiljum hann.

Við erum ólík en við eigum öll okkar drauma, þrár og lang­anir. Og gott sam­fé­lag er sam­fé­lag þar sem við virðum hvert annað og vinnum saman að því að við öll fáum að blómstra á okkar eigin for­sendum. Ég trúi því að það sé sam­fé­lagið sem við lang­flest viljum.“ Þetta skrifar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í færslu sem hún birti á Facebook í kvöld í til­efni þeirra umræðu sem blossað hefur upp und­an­farna daga um að allt of langt sé gengið í að fræða börn og ung­menni um fjöl­breyti­leika sam­fé­lags­ins þegar kemur að kyn­hneigð, kyn­vit­und og kyntján­ingu.

Sú umræða á meðal ann­ars rætur sínar í því að Eldur Deville, for­svars­maður sam­tak­anna 22, gerði sér ferð í Lang­holts­skóla ásamt tveimur öðrum vegna ábend­inga sem hann sagð­ist hafa fengið um vegg­spjöld sem fjöll­uðu um kyn­hneigð, og þar með talið BDSM. Fólk­ið frá sam­tök­un­um 22 tók með­al ann­ars upp mynd­bönd af starfs­fólki skól­ans. Mál­ið hef­ur ver­ið til­kynnt til lög­reglu. Í kjöl­farið hefur spunn­ist umræða um bók­ina „Kyn, kyn­líf og allt hitt„ sem kyn­fræðslu­bók fyrir börn á aldr­inum 7– 10 ára.

Hluti af ótrúlega döpru bakslagi

Katrín segir í færsl­unni að hún hafi fengið fjölda skeyta um þessi mál þar sem kenn­arar og starfs­fólk skóla er sakað um inn­ræt­ingu á þessu sviði. „Þessi umræða hefur blossað upp með ógn­ar­hraða – en er vissu­lega vel þekkt víða um heim. Hún er hluti af hinu ótrú­lega dap­ur­lega bakslagi sem hefur orðið gagn­vart rétt­indum hinsegin og kynsegin fólks – einmitt þegar við höfum náð fram lang­þráðum umbótum í lögum og reglu­verki þegar kemur að rétt­indum þessa hóps. Og þetta bakslag er ekki bara á Íslandi – það er víða um heim. Það er ekki þannig að rétt­indi hinsegin og kynsegin fólks skerði rétt­indi ann­arra. Það er ekki þannig að fræðsla um að fjöl­breyti­leika sé inn­ræt­ing eða slíkri fræðslu sé ætlað að þvinga fólk í ein­hverja til­tekna átt.“

For­sæt­is­ráð­herra segir að sonur hennar hafi til dæmis lært um túr­verki í dag. Það sé ekki vegna þess að hann upp­lifi þá endi­lega sjálfur í sínu lífi, heldur sé mik­il­vægt að hann viti um hvað þeir snú­ast. „Vegna þess að við viljum skilja allar þær ólíku mann­eskjur sem skapa eitt stykki sam­fé­lag. Þá skiptir máli að skilja að reynslu­heimur þeirra er ólíkur. Þess vegna er fræðsla um þessi mál mik­il­væg.“

Annar leið­togi stjórn­mála­flokks tjáði sig líka um málið á Facebook í kvöld, en með öðrum hætti. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hlekkj­aði við frétt DV um gagn­rýni Guðrúnar Ágústu Ágústs­dóttur, upp­eldis-, fíkni- og fjöl­skyldu­fræð­ings, um Kyn, kyn­líf og allt hitt og skrifar: „Þetta er óhuggn­an­legt og óhjá­kvæmi­legt að ræða málið. Það getur ekki talist for­dóma­fullt að ræða barna­vernd. Þetta verður varla mikið rætt við stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra en farið verður yfir málið á fimmtu­dag­inn í hlað­varps­þætt­inum „Sjón­varps­lausum fimmtu­dögum”.“ Um er að ræða hlað­varps­þætti sem Mið­flokk­ur­inn heldur úti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Það sorglega við þetta bakslag er að það er líklegast til komið að undirlagi bandarískra öfgatrúarhópa.
    Þeir hafa skorið upp herför og vantar hvorki mannskap né peninga. Það sjást jafnvel hér á Íslandi í kommentum um kynhneigð áberandi mörg erlend nöfn.
    Úganda er eitt dæmi frá Afríku þar sem þetta ber slæma ávexti og fólki er illilega misþyrmt og drepið.
    Ég væri ekki hissa á að við sem eitt frjálslyndasta land í heimi hvað það varðar erum sérstakt skotmark þeirra. Þegar öll þeirra rök bíta ekki þá verður börnum teflt fram: barnaníð. Minnir á "Pizzagate".
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hinsegin bakslagið

ViðtalHinsegin bakslagið

„Þetta var ég. Ég er ekki með typpi, ég var ekki nakin og ég er ekki karl­maður“

Veiga Grét­ars­dóttir er trans konan sem fór í sund í Graf­ar­vogs­laug í síð­ustu viku og nýtti sér kvenna­klef­ann á sama tíma og stúlkur í skóla­sundi. Nokkrar stúlkn­anna hlógu að henni og leið Veigu eins og hún væri sirk­us­dýr. Hún ákvað að gera athuga­semd við kenn­ara þeirra og hélt að þar með væri málið úr sög­unni en hávær orðrómur, byggður á lygum, fór af stað.
ViðtalHinsegin bakslagið

Varð fyrir lík­ams­meið­ingum „en úti­lok­unin var verst“

Anna Krist­jáns­dóttir segir að úti­lokun frá félags­legum sam­skiptum hafi valdið henni mestu van­líð­an­inni eftir að hún kom fram opin­ber­lega sem trans kona fyrir þrjá­tíu árum. Hún var líka beitt lík­am­legu ofbeldi. „Einu sinni var keyrt vilj­andi yfir tærnar á mér, fólk hrinti mér og það var hellt úr glösum yfir höf­uðið á mér á skemmti­stöðum.“
ViðtalHinsegin bakslagið

„Ég er hrætt við að fólk finni mig í fjöru“

„Sjá þau ekki að heim­ur­inn minn er að hrynja?“ hefur Mars M. Proppé spurt sig síð­ast­liðna viku, á meðan hán kennir busa­bekk stærð­fræði í Mennta­skól­anum í Reykja­vík, spjallar við kollega sína á kaffi­stof­unni og mætir á fyr­ir­lestra í Háskóla Íslands. Það fylgir því óraun­veru­leika­til­finn­ing að sinna venju­legu lífi á sama tíma og sam­fé­lags­miðlar loga í deilum um hinsegin fræðslu og kyn­fræðslu í skólum. Deilum sem hafa farið að bein­ast að fólki eins og Mars.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár