Skíðaiðkun: Byrjendapakki í kringum hundrað þúsund kallinn

Sófa­kart­öflur geta létti­lega byrjað að skíða að mati sölu­manns sem selur skíða­búnað og fatnað. Hann mælir með því að byrja á því að leigja búnað til að bruna niður brekk­una í fyrsta skipti, sem kostar í Blá­fjöllum um sjö þús­und krónur. Flestir byrj­enda­pakkar kosta í kringum hund­rað þús­und krónur og í þeim eru skíði, skór, bind­ing og stafir, þó það sé reyndar ekki mælt með því að nota stafi til að byrja með.

Skíðaiðkun: Byrjendapakki í kringum hundrað þúsund kallinn
Skíði Skíða­iðkun hefur lengi verið við­loð­andi þau ríku og frægu. Hér má sjá dæmi um bæði ríkt og frægt fólk á skíðum, Karl Breta­prins, nú kon­ungur Bret­lands, og Díönu prinsessu. Mynd: AFP

Sófa­kart­öflur geta hæg­lega stundað skíði. Þetta hefur Heim­ildin fengið stað­fest frá Brynjari Haf­þórs­syni, fram­kvæmda­stjóra sölu-og rekstrar hjá Útilíf og sér­legum áhuga­manni um skíða­iðkun. Spurning er hins vegar eft­ir­far­andi: hvað mun það kosta þær, í krónum talið. 

Íþróttin hefur lengi verið við­loðin þá ríku og frægu. Fyrir rúm­lega þrjá­tíu árum síðan kom út bók eftir banda­ríska blaða­mann­inn Ted Conover um tím­ann sem hann varði í Aspen Colorado og kynni hans af bæði ríku og frægu fólki sem sótti þangað til að skíða. Aspen, að hans sögn, var eitt sinn staður sem hippar sóttu til að kom­ast í tengsl við nátt­úr­una, blóma­börn og blaða­menn á borð við Hunter S. Thompson. Það hafi hins vegar breyst þegar nokkrir við­skipta­menn sáu gróðr­ar­tæki­færi í Kletta­fjöllum og í raun hannað svæðið sem dval­ar­stað þeirra auð­ugu.

Á níunda ára­tugnum tók að sögn Conover fræga fólkið yfir svæðið og hefur ekki farið þaðan síðan. Fólkinu sem …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár