Sprungufyllingar búa til ný og hættulegri vandamál

Þrír af reynd­ustu jarð­vís­inda­mönnum lands­ins telja það hafa verið mis­ráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grinda­vík í kjöl­far ham­far­anna í nóv­em­ber. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Ein­ars­son. Ármann Hösk­ulds­son telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarð­anir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera“.

Sprungufyllingar búa til ný og hættulegri vandamál
Stór sprunga Björg­un­ar­sveit­ar­bíll keyrir yfir fyllta stóra sprungu við Hóps­braut í Grinda­vík sem liggur við lóða­mörk Vest­ur­hóps 29 þann 18. nóv­em­ber 2023. Mynd: Golli

Stórar sprungur sem komið hafa ber­sýni­lega í ljós í Grinda­vík voru þar fyrir og af mörgum þeirra var vitað. En þær höfðu hins vegar verið lítið rann­sak­aðar enda flestar hjúpaðar jarð­vegi, hulu tím­ans. Í jarð­hrær­ingum síð­ustu vikna varð gliðnun og þær komust á hreyf­ingu. „Nú eru komnar tvær stórar sprungur sem hafa hreyft sig í gegnum bæinn,“ segir Ármann Hösk­ulds­son eld­fjalla­fræð­ingur. „Þær eru nátt­úr­lega bara hyl­dýpi og við erum búin að missa fólk ofan í það.“ 

Hann segir „alveg ljóst“ að það geti eng­inn búið í bænum fyrr en búið verði „að ganga algjör­lega frá þessum sprungum“. Hvenær óhætt verði að hefja þá vinnu sé ekki hægt að segja til um á þess­ari stundu en ef virknin færi sig til Eldvarpa í miðju eld­stöðvakerf­is­ins, eins og hann voni og að lík­legt sé, myndi „róast“ Grinda­vík­ur­megin. Þegar það ger­ist og sprung­urnar hafa verið kort­lagðar ítar­lega „þá á það ekk­ert að vera mál að gera það sem menn voru að reyna að gera,“ segir hann og á þá við þær til­raunir að fylla upp í sprungur í bænum líkt og reynt var um nokk­urra vikna skeið.

Fát og pressa

„Það er ekk­ert mál þegar atburð­ur­inn er búinn að fylla í þetta og slíkt en menn verða þá líka að vita í hvað þeir eru að fylla. Það má ekki gera þetta eins og var gert síð­ast; bara sturta í gatið og vita ekk­ert hvað maður er að gera, í raun.“ Hann tekur þó fram að hann hafi ekki fulla vit­neskju um hvernig staðið var að þessum málum og hvaða upp­lýs­ingar lágu fyrir.

Hann bendir hins vegar á þá stað­reynd að við gliðnun líkt og þá sem átt hefur sér stað, og gæti haldið áfram, geti mynd­ast „gríð­ar­lega stórar og djúpar sprungur“, ekki ólíkar þeim og sjá megi í Hakinu á Þing­völlum. Þær geti verið 30–60 metrar á dýpt. 

„Ég held að það sé bara fátið,“ svarar hann, spurður hvort mis­ráðið hafi verið að hefja fyll­ing­una fyrir nokkrum vikum. „Það eru allir í ein­hverju fáti og það er pressa. Auðvitað verða menn alltaf að passa sig á því þegar það er ein­hver svona atburður að ger­ast. Þá þýðir ekk­ert alltaf að hugsa þannig að: Ókei, nú fækkar skjálft­unum eitt­hvað og nú er þetta allt í lagi. Eins og það var þarna þá er alveg ljóst að menn áttu að skoða sprung­urnar betur. Risa­stórar sprungur og götin voru 20–30 metra djúp.“

Á sprung­unniÁ hættu­mat­skorti Veð­ur­stof­unnar sem var í gildi er slysið varð við Vest­ur­hóp 29 má sjá að sprunga hafði verið kort­lögð við húsið.

Kort­lagn­ing sé lyk­il­at­riði. „Ég held að menn þurfi að gera sér grein fyrir hvað þeir eru að fylla í. Þetta er eins og maður segir: Kapp er best með for­sjá. Og það er gott að vera dug­legur og allt það. Aðal­at­riðið er að menn séu að gera þetta rétt. Þetta eru stórar sprungur, við vitum það. Þetta eru jaðr­arnir á gliðn­un­ar­kerf­inu og þar geta orðið gríð­ar­lega stórar og djúpar sprungur. Þannig að við þurfum bara að vita þetta.“

Sú kort­lagn­ing, með jarð­sjá og drónum, er nú loks hafin. Það verk­efni er á vegum Vega­gerð­ar­innar og til þess hafa verið fengnir sér­fræð­ingar frá nokkrum Evr­ópu­löndum. Meðal þess sem verið er að kanna er hvar hol­rúm eru undir yfir­borði. „Það sem gerir Grinda­vík hættu­legri en óbyggð­irnar í kring er þetta mann­gerða lag,“ segir Ármann. Um leið og bær er byggður sé í raun skipt um yfir­borðslag. Hús­grunnar, gang­stéttir, götur og garðar. En undir geta leynst sprungur og hol­rúm, líkt og glögg­lega hefur komið í ljós. 

Hví að fylla sprungu inni í garði?

Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði

Ítarleg og nákvæm rann­sókn hefði þurft að fara fram á sprung­unum í Grinda­vík áður en vinna við fyll­ingar þeirra hófst, að mati Þor­valdar Þórð­ar­sonar, pró­fess­ors í eld­fjalla­fræði. „Það er ekki nóg að skrá hvar sprung­urnar eru,“ segir hann við Heim­ild­ina. Sprungur geti verið af ýmsum gerðum og hreyfst með ólíkum hætti. Jarð­vegur og mann­gert lag ofan á sprungum geti svo veitt falskt öryggi, mikil sprunga geti virst lítil á yfir­borði. „Þetta hefði allt þurft að kanna áður en menn fóru í það að fylla sprung­urnar á fullu.“

Hann seg­ist vel skilja að ákveðið hafi verið að fylla í sprungur sem mynd­uð­ust á götum Grinda­víkur, bæði til að tryggja aðkomu við­bragðs­að­ila og flótta­leiðir.

Hins vegar hafi það vakið furðu hans að farið var í að fylla í sprungu inni á lóð við hús. Á því hafi ekki mest legið að hans mati. „Ég sé ekki þörf­ina á því að fara inn í garð og inn á lóðir á þessum tíma­punkti.“

Gríð­ar­legar hreyf­ingar voru á jarð­skorp­unni í nóv­em­ber er sigdalur mynd­að­ist og sprungur opn­uð­ust í gegnum Grinda­vík þvera. Hreyf­ing­arnar héldu áfram, rifu í sundur jarð­veg og mal­bik, og þá þegar hafi að sögn Þor­valdar mátt geta sér til um að þær væru miklar og djúpar. „Þetta er jað­ar­inn á gliðn­un­ar­belt­inu,“ minnir Þor­valdur á.

„Að vera einn við svona aðstæður, það á nátt­úr­lega ekki að ger­ast“
Þor­valdur Þórð­ar­son, pró­fessor í eld­fjalla­fræði
Um það þegar maður datt ofan í sprungu sem hann vann við að fylla upp í í Grinda­vík.

Kom það þá ekki á óvart hversu sprung­urnar voru djúpar, líkt og ljóst varð í kjöl­far slyss­ins? 

„Nei,“ svarar Þor­valdur að bragði. „Það var búið að benda á það áður. Það var búið að gera eina mæl­ingu með jarð­sjá. Mælingin sýndi að sú sprunga var meira en tutt­ugu metra djúp. Við vissum að sumar sprung­urnar væru stórar og við vissum að þær væru á hreyf­ingu.“

Enginn eigi að vinna einn við slíkar aðstæður

Þor­valdur segir að líkja megi jarð­sprungu­svæðum sem þessum við jökla að ein­hverju leyti. Á ferð yfir jökla, sem vissu­lega geti verið sprungnir og sprungur leynst undir snjó, sé sér­stak­lega vel gætt að örygg­is­málum. „Ég var nú á Suð­ur­skauts­land­inu og fór þá í tveggja daga þjálfun áður en ég fékk að fara út á ísbreið­una. Okkur voru lagðar línur, hvað við ættum að var­ast og þar fram eftir göt­unum. Þú ferð ekki út á jökul án þess að vera í bandi og tengdur við aðrar mann­eskjur.“

Þess vegna hafi það verið átak­an­legt að heyra að mað­ur­inn sem féll ofan í sprungu sem hann var að fylla í húsa­garði, á vett­vangi á vegum Nátt­úru­ham­fara­trygg­inga Íslands, hafi verið einn að störfum er slysið varð. „Að vera einn við svona aðstæður, það á nátt­úr­lega ekki að ger­ast,“ segir Þor­valdur. 

Völdu ranga leið

Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur segir að allar þær sprungur sem hafi farið á hreyf­ingu í Grinda­vík séu gamlar sprungur. Ofan á þeim hafi verið byggt og „það er nú þar sem feill­inn liggur“. Hægt sé að byggja á milli sprungna en ekki ofan á þeim. Það sé ávísun á að hús skemmist. 

„Nei, það held ég ekki“
Páll Ein­ars­son jarð­eðl­is­fræð­ingur
Svar hans við spurn­ingu um hvort það hafi verið eitt­hvert vit í því að fylla upp í risa­stórar sprungur.

En er eitt­hvert vit í því að fylla upp í svona risa­stórar sprungur, eins og var nú verið að reyna að gera þarna fyrir nokkrum vikum?

„Nei, það held ég ekki,“ svarar Páll. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið. Með því að fylla í þessar sprungur þá er maður að búa til nýtt vanda­mál sem er það að fyll­ingin hverfur smátt og smátt. Það er mikið rúm­mál í svona sprungu, þrátt fyrir að hún líti ekki merki­lega út á yfir­borði, þá gleypir hún efni. Það getur verið að menn geti þjappað í hana svo að hún virð­ist vera heil en það á eftir að skol­ast niður í hana. Bæði úrkoma og svo er vatn neðst í þeim. Þetta vatn fer upp og niður eftir flóði og fjöru og úrkomu og öllu mögu­legu. Þá skol­ast efnið niður, það mynd­ast hol­rúm með fyll­ingu ofan á og það er stór­hættu­legt. Aðal­hættan er í því fólgin. Ég held að menn séu þar að búa til nýja hættu.“

Þrátt fyrir að hann telji það ekki væn­lega lausn að fylla í sprung­urnar seg­ist hann halda að hægt verði að búa í Grinda­vík í fram­tíð­inni. Hægt sé að brúa sprungur eða girða þær af. Það sé að hans mati skyn­sam­legra en að reyna að fylla þær. 

Hvenær óhætt verði að hefja þá vinnu að tryggja bæinn fari eftir því hvernig jarð­hrær­ing­unum muni vinda fram. „Eins og málið lítur út núna er greini­legt að það er eng­inn að fara að flytja til Grinda­víkur á næstu mán­uðum.“

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Ekkert skrif­legt áhættu­mat og skipu­lag aðgerða „nokkuð óreiðu­kennt“

Vinnu­eft­ir­litið segir að velta megi fyrir sér hvort að fyll­ing í sprungu við íbúð­ar­hús í Grinda­vík hafi verið áhætt­unnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurn­ingin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauð­syn­legt“ sé að fram­kvæma til­tekið verk. Eft­ir­litið hefur lokið rann­sókn sinni á hvarfi Lúðvíks Pét­urs­sonar.
Tilgangsleysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík
AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Til­gangs­leysi og gáleysi lýst í rann­sókn slyss­ins í Grinda­vík

Það svar­aði ekki kostn­aði að fara í fram­kvæmdir við að bjarga hús­inu við Vest­ur­hóp 29 í Grinda­vík, sam­kvæmt skýrslu tveggja mats­manna sem skoð­uðu húsið rúmum mán­uði áður en að verk­taki lést við sprungu­fyll­ingu við húsið. Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing vísar ábyrgð á und­ir­verk­taka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættu­mat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rann­sókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.
Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdraganda slyssins í Grindavík
FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráð­herra hvort til stæði að rann­saka aðdrag­anda slyss­ins í Grinda­vík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
Leituðu svara en fengu símsvara
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu sím­svara

Enginn af þeim sem kom að ákvörð­unum eða bar ábyrgð á málum í Grinda­vík, þegar Lúðvík Pét­urs­son hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í sam­band við börn hans eða systk­ini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurn­ingum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pét­urs­son, bróðir hans. Það sé sorg­lega íslenskt að þurfa að stíga fram og berj­ast fyrir óháðri rann­sókn. Óboðlegt sé að yfir­völd rann­saki sig sjálf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár