Metupphæð í skattfrjálsa nýtingu á séreignarsparnaði

Frá því að heim­ilt var að nýta sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst til að greiða niður íbúða­lán hefur rík­is­sjóður gefið eftir á sjötta tug millj­arða króna í fram­tíð­ar­tekjum. Sú upp­hæð hefur farið í stuðn­ing til þeirra sem nýta sér leið­ina, en næstum átta af hverjum tíu sem það gera til­heyra efstu þremur tekju­hóp­unum.

Metupphæð í skattfrjálsa nýtingu á séreignarsparnaði
Vill ekki hækka skatta Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ætlar að leggja sig fram við að teikna upp aðra val­kosti en skatta­hækk­anir til að mæta kröfur breið­fylk­ingar stétt­ar­fé­laga um end­ur­reisn milli­færslu­kerfa. Mynd: Golli

Alls voru 21,3 millj­arðar króna greiddir inn á íbúða­lán á fyrstu ell­efu mán­uðum árs­ins 2023 með því að nýta skatt­frjálsan sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður höf­uð­stól þeirra. Um er að ræða metár. Aldrei áður hefur meira en 20 millj­örðum króna verið ráð­stafað með þessum hætti innan alm­an­aks­árs. Þetta kemur fram í hag­vísum Seðla­banka Íslands.

Frá því að opnað var fyrir þessa leið hús­næð­is­stuðn­ings í nóv­em­ber 2014 hafa alls 151,2 millj­arðar króna ratað inn á höf­uð­stól lána þeirra sem hafa getað nýtt sér hann. Um er að ræða hús­næð­is­stuðn­ing sem gagn­ast fyrst og síð­ast efri tekju­hópum. Engin tekju- eða eign­ar­skerð­ing­ar­mörk eru fyrir því að fá þennan stuðn­ing. Hann stendur öllum, ríkum og fátækum og þeim sem eru þar á milli, til boða. 

Í skýrslu starfs­hóps stjórn­valda um hús­næð­is­stuðn­ing, sem birt var fyrir rúmu ári, kom fram að það eru aðal­lega þeir betur settu sem fá hann. Alls 77 pró­sent …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Launatengd skattleysismörk þeirra sem eru að kaupa sér fyrsta húsnæði hefði skilað meiru fyrir almenning og ekki valdið hvata til fjármálabrasks varðandi húsnæðismálin. En alas allt er gert til að mynda hvata til að hækka húsnæðisverð svo fjárfestar og lánaveitendur fái meiri hagnað. Því þetta skilar sér lítið í vasa byggingaraðilanna sjálfra. 50 % af húsnæðisbyggingarkostnaði lendir í vasa sveitarfélaga og ríkisins... pælið í því.
    0
  • OÖM
    Oddur Örvar Magnússon skrifaði
    Stórkostlegt!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár