Bókasöfn: Margir sem koma daglega en taka aldrei út bækur
Kunn­ingjar Ársæll og Gunnar hitt­ast á bóka­safn­inu. Mynd: Golli

Bókasöfn: Margir sem koma daglega en taka aldrei út bækur

Á Borg­ar­bóka­safn­inu í Sól­heimum kemur fólk á hverjum degi sem tekur aldrei út bækur. Þau sækja í kaffi, félags­skap, and­rúms­loftið, blöðin og bæk­urnar. Á Borg­ar­bóka­safn­inu í Úlf­arsár­dal er amma með dótt­ur­son sinn sem er ekki enn kom­inn með pláss á leik­skóla og bóka­safns­vörður sem finnst virð­ing vera mik­il­væg­ari en þögn á safn­inu.

Við borð eitt á Borg­ar­bóka­safn­inu í Sól­heimum situr Gunnar Lúð­víks­son og flettir í gegnum Morg­un­blaðið. Þarna hefur hann setið í klukku­tíma að „leið­rétta Moggann“ eins og hann orðar það og er ekki alveg búinn enn enda tekur það sinn tíma að hans sögn. Þetta gerir hann flesta morgna, flettir í gegnum blöðin og blaðar í bókum. Hann tekur ekki mikið af bókum í láni, hann les þær bara hér á safn­inu. Hann telur mik­il­vægi bóka­safna fel­ast í fróð­leiknum sem þar er að finna.  

Hann er ekki mættur á slag­inu þegar bóka­safnið er opnað, sem er klukkan tíu, en svona næstum því. Gunnar á heima í hverf­inu og að hans sögn er þetta eini stað­ur­inn, opin­bera rýmið, sem hann nýtir sér, í raun eini stað­ur­inn utan heim­il­is­ins sem hann ver miklum tíma á. Gunnar er orð­inn níræður. 

Hann er ekki sá eini sem mætir á hverjum …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Bókasöfn eru ómissandi, þar á meðal Sólheimasafn sem er gimsteinn
    og hefur alltaf verið, reglulegt barnasetur frá fyrstu tíð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár