Ástþór Magnússon læstur úti af Facebook-síðunni sinni

For­seta­fram­bjóð­and­inn Ástþór Magn­ús­son er læstur út Facebook- reikn­ingi sínum. Hann hefur ekki kom­ist inn á hann síðan hann reyndi að skrá sig inn í Mexíkó í maí.

Ástþór Magnússon
Ástþór Magn­ús­son Hefur höfðað mál gegn Facebook. Mynd: Kristinn Magnússon

Ástþór Magn­ús­son, for­seta­fram­bjóð­andi, hefur verið læstur úti af Facebook reikn­ingi sínum síðan í maí í fyrra. Í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar segir Ástþór að hann hafi verið staddur í Mexíkó þar sem hann reyndi að skrá sig inn á Facebook-síðu sína en fékk meld­ingu um að skrán­ingin hans væri óeðli­leg. Hann var beð­inn um að stað­festa með korti og auð­kenn­ingu en við það hrundi sím­inn hans.  

Í til­kynn­ingu sem Ástþór sendi fjöl­miðlum í dag segir að hann vilji vekja „athygli á brotum Meta sem rekur Facebook, Instagram og fleiri sam­fé­lags­miðla á nýlegum reglum Evr­ópu­sam­bands­ins (Digital Services Act) sem gæti leitt til 7,6 millj­arða dala sektar (þús­und millj­arða íslenskra króna) sem Meta þurfi að greiða fyrir að grafa undan lýð­ræði í Evrópu.“  

Ástþór kemst sjálfur ekki inn á gömlu-Facebook fram­boðs­síðu sína. Í frétta­til­kynn­ing­unni segir að hann vari „við þeirri ógn sem Facebook er orðið við þjóð­fé­lags­um­ræðu og lýð­ræð­is­legar kosn­ingar.“ 

Ástþór höfð­aði mál gegn Meta í Dublin á Írlandi. Fékk hann þær upp­lýs­ingar frá Meta að þeir myndu reyna að leysa málið. „Lög­fræð­ingar mínir í Írlandi telja að þetta sé brot gegn per­sónu­vernd­ar­lögum af því þeir eru búnir að loka mig úti af mínum eigin gögnum.“ 

„100% af allri umræðu á Íslandi fer í gegnum þennan miðil,“ segir Ástþór. „Við erum búin að opna nýja síðu og hún byrjar bara á núlli.“ 

Facebook-síðan sem Ástþór studd­ist við í for­seta­fram­boði sínu árið 2016 hefur um 1.800 fylgj­endur. Hana má sjá hér. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    BARA VERA KURTEIS Í ORÐA VALI OG ÞÁ ER VEL HONEY
    0
  • Axel Axelsson skrifaði
    feisbrók leyfir mér ekki að setja ummæli á vefsíðu vísirs og víðar . . . sennilage er þetta gert að beiðni valdstjórnarinnar íslensku enda þekkt að þeir hafa bakdyra aðgang svipað og síæey hefur . . .
    0
    • FÍS
      Frímúrarareglan í Skaftafelli skrifaði
      Veist þú nokkuð númer hvað Ástþór notar af skóm?
      0
    • RFÁE
      Regla Frímúrara á Eyrarbakka skrifaði
      Við höldum að Ástþór noti númer 44. Yfir.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár