Er stéttaskipting á Íslandi?

Á dög­unum ræddi Heim­ildin við nokkra íbúa í Breið­holti og Garðabæ, meðal ann­ars um fjár­hags­lega stöðu þeirra og hvort þeir veldu að búa í hverfum sínum. Borg­ar­full­trúi, pró­fessor í félags­fræði og dós­ent í félags­ráð­gjöf ræddu um og lögðu mat á ólíkar afstöður hópanna í nýjasta þætti Pressu.

Aðskiln­aður lág­tekju­fólks frá milli- og hátekju­fólki eftir búsetu var umfjöll­un­ar­efni nýjasta þáttar Pressu í umsjón Mar­grétar Mart­eins­dóttur. Ræddi hún við Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa, Sigrúnu Ólafs­dóttur, pró­fessor í félags­fræði við HÍ og Kolbein H. Stef­áns­son, dós­ent við félags­ráð­gjafa­deild HÍ.

Í aðdrag­anda þátt­ar­ins fór Heim­ildin á stúf­ana og ræddi við íbúa í bæði Breið­holti og Garðabæ. Voru þeir meðal ann­ars spurðir hver fjár­hags­staða þeirra væri, hvort það væri val þeirra að búa í þessum til­teknu hverfum og hvort þeir fyndu fyrir stétta­skipt­ingu. Viðtölin má sjá hér að neðan.

Breið­hylt­ingarhöfðu minna val um búsetu og áttu oftar en ekki erfitt með að ná endum saman.Heim­ildin / Davíð Þór

Við­mæl­endur Mar­grétar voru sam­mála um að í Garðabæ virt­ust íbú­arnir minna hafa hugað að sam­fé­lags­legri stöðu sinni. Íbúar Breið­holts voru á hinn bóg­inn með­vit­aðir um eigið úrræða­leysi.

Garð­bæ­ing­arnir áttu auk þess það allir …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár