Kemur til Íslands frá Gaza: „Ég verð að halda áfram með líf mitt“

Asil Al Masri, sem slas­að­ist al­var­lega í loft­árás Ísra­els­hers á Gaza í októ­ber seg­ist hafa misst mik­il­væg­asta fólkið í lífi sínu í árásinni en for­eldrar hennar, systir og lít­ill frændi dóu í árásinni. „En ég verð að halda áfram með mitt líf,“ segir Asil. Hún og Suleiman bróðir hennar koma til Íslands í dag en þau eru nú bæði íslenskir rík­is­borg­arar. Viðtal við þau var sýnt í Pressu í hádeg­inu.

„Það fyrsta sem ég ætla að gera er að læra íslensku. Ég hlakka mikið til þess,“ segir Asil Al Masri sem er sautján ára. Suleiman Al Masri stóri bróðir Asil segir að það hafi verið mik­ill léttir þegar þau hitt­ust loks­ins í Belgíu á dög­unum en Asil hafði þá verið á spít­ala í Egypta­landi í um tvö mán­uði. „Núna ætla ég að gera allt til að hjálpa Asil litlu systur minni og saman munum við hjálp­ast að við að ná bata,“ segir Suleiman en Pressa ræddi við þau systk­inin í gær, dag­inn áður en þau lögðu af stað til Íslands. 

For­eldrar Asil og Suleiman ásamt þremur frændum þeirraFor­eldrar Asil og Suleiman ásamt dótt­ur­sonum sínum. Amir sem var 5 ára er þarna í fangi ömmu sinnar en þau og pabbi Asil og Suleiman dóu öll í loft­árás Ísra­els­hers 17. októ­ber.

Systk­inin misstu for­eldra sína, systur sína, mág og fimm ára …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár