„Á mínum stutta ferli sem pólitískt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn Svf. Árborgar buðust mér þrisvar sinnum fjárhagsleg tilboð ef að ég seildist út fyrir valdsvið mitt og tæki ákvarðanir sem ekki væru í samræmi við fyrirfram ákveðnar ákvarðanir annarra í þeim meirihluta sem ég starfaði í frá árinu 2018-2022. Tvö tilboð komu frá einum og sama aðilanum á þessu tímabili. Það þriðja kom frá óskyldum aðila þess fyrrnefnda. Til að gera langa sögu stutta tók ég ekki neinu þeirra.“
Þetta segir Tómas Ellert Tómasson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg, í aðsendri grein sem birtist á Vísi í dag. Tómas Ellert steig fram í viðtali við Heimildina 1. september síðastliðinn þar sem hann greindi frá því að Leó Árnason, fjárfestir og forsvarsmaður fasteignafélagsins Sigtúns á Selfossi, hafi gert sér eitt þessara tilboða árið 2020. Í því fólst að ef Tómas Ellert átti að beita sér fyrir því að sveitarfélagið hætti við að kaupa hús Landsbankans á Selfossi, sem Sigtún vildi kaupa. Í staðinn ætlaði Leó og fyrirtæki hans og Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarmanns í Samherja, að sjá til þess að kosningabarátta Miðflokksins yrði fjármögnuð og myndi skila flokknum í bæjarstjórn. Frásögn Tómasar fylgdi ljósmynd sem sýnir Leó sitja við tölvuskjá þar sem sést í hverju tilboðið fólst. Héraðssaksóknari brást við umfjölluninni og kallaði Tómas Ellert fyrir, vegna gruns um að lög hefðu verið brotin; að Leó hefði borið fé á Tómas Ellert, jafnvel þótt Tómas Ellert hefði ekki tekið tilboðinu.
Segir aðila tengda Leó hafa hótað fjölmiðlum
Umfjöllun Heimildarinnar vakti mikla athygli og var til umfjöllunar á ýmsum öðrum miðlum. Í grein sinni í dag segir Tómas Ellert að hann hafi vitneskju um að í kjölfar þess hafi borist upplýsingar inn á ritstjórnarskrifstofur viðkomandi miðla um að viðkomandi heimildarmaður, hann sjálfur, væri „geðveikur, ætti við andleg vandamál að stríða, væri fyllibytta og allt þetta mál væri á misskilningi byggt. Hringt var inn ótt og títt af aðilum tengdum tilboðsgjafa. Fjölmiðlunum hótað, engar auglýsingar osfrv.. Málið væri mannlegur harmleikur og ætti rætur sínar að rekja til þess að heimildarmaðurinn væri svekktur yfir því að viðkomandi tilboðsgjafi hefði ekki gefið honum lóð. Lóð á mesta flóðahættusvæði Selfossbæjar. Svæði sem er ógrundunarhæft með almennum og einföldum grundunaraðgerðum og beinlínis lífshættulegt íbúasvæði.“
Tómas Ellert segir í grein sinni að ein sýnilegasta birtingarmynd spillingar á Íslandi sé það sem kallað er „Elítuspilling“, en það sé spilling þar sem óformlegt eða leynilegt samráð manna í áhrifastöðum tekst að fanga opinbert vald og beita því í eigin þágu. „Mútur eru greiddar til að hafa áhrif. Þær eru greiddar til einstaklinga til þess að þeir seilist út fyrir valdsvið sitt eða umboð og breyti rétt teknum ákvörðunum eða taki ákvarðanir sem ekki eru í samræmi við fyrirfram ákveðnar reglur. Sá sem mútar hefur alla jafna valdayfirburði yfir þann sem er mútað þó ekki sé það algilt. Í flestum vestrænum löndum, Íslandi þar á meðal, er það refsivert að bera fé á opinbera starfsmenn til að fá fyrirgreiðslu sem ekki yrði veitt af öðrum kosti. Einnig pólitískt kjörna fulltrúa. Skiptir engu máli hvort viðkomandi eru innlendir eða erlendir.“
Grunaður um mútur en klappaður upp af Guðna
Hin ætlaða mútutilraun Leós hafi þó ekki haft neina sýnilega eftirmála fyrir hann, að minnsta kosti ekki í sveitarfélaginu Árborg. Tómas Ellert greinir frá því að Leó hafi fyrir skemmstu verið „klappaður upp af Guðna Ágústssyni, smæsta ráðherra lýðveldisins, á herrakvöldi knattspyrnudeildar UMF. Selfoss“.
Þar hafi Leó gert það sem Tómas Ellert kallar mislukkað grín að sér, einum dyggasta stuðningsmanni og baráttuglaðasta knattspyrnumanni Selfossliðsins allt frá barnsaldri, sem var fjarverandi það kvöldið. „Hugrakkt og smekklegt af tilboðsgjafa? Svari nú hver fyrir sig. Viku síðar var tilboðsgjafinn kjörinn formaður Knattspyrnudeildar UMF. Selfoss, fjölmennustu deildarinnar innan UMFS, þrátt fyrir að sæta rannsókn Héraðssaksóknara fyrir mútuþægni. Já, þannig birtist spillingin og samspillingin mér á Íslandi.“
Athugasemdir (2)