Víðir „er orðinn mjög þreyttur“ og býst við erfiðu ári

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, glímir við eft­ir­köst covid-smits á sama tíma og hann stendur í stafni í við­brögðum við nátt­úruvá við Grinda­vík.

Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, fer yfir við­burði árs­ins sem nú er að líða og spáir um fram­haldið í við­tali við Aðal­stein Kjart­ans­son í nýjasta þætti Pressu. Mikið gekk á árið 2023 og Víðir gerir ráð fyrir því að næsta ár verði að sama skapi eril­samt.

„Við sjáum að það stafar hætta að þessum innviðum í Svarts­engi. Þó við séum komin með varn­ar­garða þá er ekki útlokað að það gjósi þar alveg ofan í og jafn­vel innan garð­anna,“ segir hann. Auk þess sé hætta á eld­gosi í næsta nágrenni Grinda­víkur enn fyrir hendi. 

„Þetta er búið að vera erfitt ár“

Víðir er orð­inn þreyttur en seg­ist hvergi hættur. „Ég er orð­inn mjög þreyttur, við­ur­kenni það,“ segir hann. „Þetta er búið að vera erfitt ár að mörgu leyti. Ég var að fást við eft­ir­köst af Covid og var sex vikur á Reykja­lundi í haust.“ Víðir segir starfs­þrek sitt vera minna en áður.

„Ég brenn fyrir öryggi og vel­ferð fólks“
Víðir Reyn­is­son
Yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna hjá rík­is­lög­reglu­stjóra

„En eld­móð­ur­inn er þarna. Það er það sem heldur mér gang­andi að ég brenn fyrir öryggi og vel­ferð fólks,“ segir hann. Víðir reiknar með því að fylgja Reykja­nes­eldum eftir á meðan starfsævin end­ist, en enn er að minnsta kosti ára­tugur í að hann fari á eft­ir­laun.

Reiknar með erilsömu ári 2024

Spurður hvernig næsta ár horfi við honum seg­ist Víðir erfitt að reikna með öðru en að það verði mjög eril­samt. „Við erum að sjá aukna öfga í veðr­inu, við erum að sjá auknar skriður. Það er búin að vera snjó­flóða­hætta á Norð­ur­landi og Vest­fjörðum og við gerum ekki ráð fyrir öðru en að það haldi áfram í vetur. Síðan mun Reykja­nesið halda áfram – það er í gangi og verður í gangi.“

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Víðir hefur staðið sig og ætti að minnka við sig alla þessa kannski óþarfa fundi .Alltof margir í þessu, eins og að það sé verið að stjórna gosum ......
    Ríkislögreglustj, almannavarnir , veðurstofa ,sveitastj og fl og fl. Og alltof mikil vinna lögð á björgunarsveitir þar sem menn eru að hætta að nenna þessu bulli.
    Of mikið kjaftæði og tímafrekt og svo boð og bönn.
    Látið gosið í friði og gerið eitthvað annað.
    -1
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Viðir,
    Þu ert buinn að
    standa þig ofboðslega vel en þu VERÐUR að hvila þig og þina aðstendur.
    Þetta veistu manna best.
    Gleðilegt nyar til þin og þinna
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár