Palestínskir mótmælendur krefjast fundar með ráðherrum

Hópur palest­ínskra manna sem reist hafa tjöld við Alþing­is­húsið í þeirri von um að stjórn­völd komi fjöl­skyldu­með­limum þeirra frá Gaza til Íslands hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu og krefj­ast fundar með dóms­mála­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra og félags-og vinnu­mála­ráð­herra.

Palestínskir mótmælendur krefjast fundar með ráðherrum

Fyrir utan Alþing­is­húsið við Aust­ur­völl hafa nokkrir menn frá Palest­ínu, sem hafa enn lík­am­legan og and­legan styrk til, eins og þeir lýsa því, slegið upp eins­konar tjald­búðum í mót­mæla­skyni við því sem þeir lýsa sem aðgerð­ar­leysi stjórn­valda er varðar fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. Þeir hafa allir fengið fjöl­skyldu­sam­ein­ingu sam­þykkta en segja aðgerð­ar­leysi stjórn­valda fel­ast í því að fjöl­skyldu­með­limir þeirra, þar á meðal makar og börn, eru enn staddir á Gaza og eiga því á hættu að vera drepnir af Ísra­els­her sem til þessa hefur drepið yfir 21 þús­und manns, um helm­ingur þeirra eru börn.

Menn­irnir, sem hafa dvalið í tæpa tvo sóla­hringa í tjöldum í frosti og kulda, hafa nú sent frá sér yfir­lýs­ingu sem aðgerð­ar­sinnar, eins og segir í henni, skrifa einnig undir. Þar ítreka þeir þau áform sín að dvelja í tjöld­unum „þar til ást­vinir þeirra hafa verið fluttir frá Gaza og til Íslands“.

„Hver sól­ar­hringur skiptir sköpum,“ segir í yfir­lýs­ingu og því næst er tekið dæmi um að hús eig­in­konu eins flótta­manns­ins, sem átti rétt á að sam­ein­ast eig­in­manni sínum hér á Íslandi, hafi orðið fyrir loft­árásum Ísra­els­hers. „Með þessu áfram­haldi munu hrein­lega ekki vera neinar fjöl­skyldur eftir til að sam­eina.“ 

Palest­ínskir feður mót­mælaPalest­ínsku menn­irnir sem slegið hafa upp tjald­búðum við alþing­is­húsið eiga það allir sam­eig­in­legt að eiga fjöl­skyldu­með­limi í Palest­ínu sem hafa fengið dval­ar­leyfi. Sumir þeirra eru feður og bíða þess að stjórn­völd komi börnum þeirra til Íslands í skjól.

Naji Asar, sem hefur fengið dval­ar­leyfi fyrir 13 fjöl­skyldu­með­limi sína, þar af átta börn, sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í gær að Ísland geti vel gert meira til að hjálpa og sagð­ist ekki skilja hvernig hægt hafi verið að bjarga taf­ar­laust 120 Íslend­ingum sem staddir voru í Ísrael þann sjö­unda októ­ber og þeim komið í skjól en það sama ætti ekki að eiga við um fjöl­skyldu­með­limi hans.

„Af hverju ekki okkur?“ spurði hann og bætti svo við:

„Þá það, ef þið viljið ekki hjálpa. Komið mér þá aftur heim. Ég vil fá að deyja með fjöl­skyld­unni minni. Ég vil ekki deyja hægt.“

Fela sig á bakvið lokuð landamæri

Íslensk stjórn­völd eru sögð fela sig á bak við að landa­mæri Palest­ínu og Egypta­lands eru lokuð við Rafah landamæra­stöð­ina en í yfir­lýs­ing­unni segir að dæmi séu þess að önnur lönd hafi komið fólki þar í gegn og þau sótt og þeim komið til við­kom­andi ríkis í skjól. „Lönd á borð við Bretland, Kanada og Þýska­land, auk nágranna­ríkja okkar Noregur og Svíþjóð, hafa á sein­ustu dögum tekið við fólki á flótta frá Gasa.“

„Með þessu áfram­haldi munu hrein­lega ekki vera neinar fjöl­skyldur eftir til að sam­eina.“
Naji Asar

Í lok yfir­lýs­ing­ar­innar er þess kraf­ist að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mála­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra og Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra komi til fundar við mót­mæl­endur til að hlusta á kröfur þeirra. „Við­bragðs­leysi ykkar er óásætt­an­legt, eftir hverju eruð þið að bíða? Hvorki mót­mæl­endur fyrir utan Alþingi né fjöl­skyldur þeirra í Gasa geta beðið.“

Bíða í frostiMót­mæl­endur láta frostið og kuld­ann ekki koma í veg fyrir mót­mæli sín en þeir ætla sér ekki að fara af Aust­ur­velli fyrr en fjöl­skyldur þeirra eru komnar til Íslands.

Hér er

í heild sinni:

„Kröfur aðgerða­sinna og palest­ínsks flótta­fólks til ráð­herra:

Í tæp­lega tvo sól­ar­hringa hefur fólk á flótta frá Gasa dvalið í tjald­búðum fyrir utan Alþingi á Aust­ur­velli í mót­mæla­skyni við aðgerð­ar­leysi stjórn­valda varð­andi fjöl­skyldu­sam­ein­ingu palest­ínsks flótta­fólks. Þar áforma þau að dvelja uns ást­vinir þeirra hafa verið flutt frá Gasa.

Hver sól­ar­hringur skiptir sköpum. Í fyrra­dag var til dæmis hús eig­in­konu eins flótta­manns­ins, sem átti rétt á að sam­ein­ast eig­in­manni sínum fyrir loft­árás Ísra­els­hers. Með þessu áfram­haldi munu hrein­lega ekki vera neinar fjöl­skyldur eftir til að sam­eina.

Hér er um að ræða neyð­ar­til­felli sem krefst taf­ar­lausra aðgerða. Við krefj­umst þess að æðstu ráða­menn Íslands full­nýti vald sitt við það að koma fólki, sem þegar hefur fengið dval­ar­leyfi á for­sendum fjök­skyldu­sam­ein­ingar, til Íslands sem fyrst.

Íslensk stjórn­völd fela sig bak­við þá stað­hæf­ingu að ekki sé hægt að koma flótta­fólki hér til lands­ins vegna lok­aðra landamæra, en til eru dæmi um að fólk hafi verið sótt í gegnum Rafah landa­mærin milli Gaza og Egypta­lands. Daglega er verið að hleypa fólki þar yfir landa­mærin, lönd á borð við Bretland, Kanada og Þýska­land, auk nágranna­ríkja okkar Noregur og Svíþjóð, hafa á sein­ustu dögum tekið við fólki á flótta frá Gasa.

Við krefj­umst fundar og svara frá félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra – við­bragðs­leysi ykkar er óásætt­an­legt, eftir hverju eruð þið að bíða? Hvorki mót­mæl­endur fyrir utan Alþingi né fjöl­skyldur þeirra í Gasa geta beðið.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Þessir Hamarssinnar eru með eindæmum frekir treisti núverandi Dómsmálaraðherra og Bjarna B fyrir þessu
    -6
    • HDLB
      Halle d'Or le Bibbalingeur skrifaði
      Þú gleymdir næstum því öllum innsláttarvillunum, vanda sig. Ggledlieg jøl.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár