Arnarlax tilkynnti ekki heldur um öll göt á kvíum í Patreksfirði

Við eftirlit Matvæla­stofnunar hjá laxeldis­fyrirtækinu Arnarlaxi í Patreks­firði kom í ljós að fyrir­tækið hafði ekki tilkynnt um öll göt sem komið höfðu á kvíar fyrir­tækisins. Í nýjum lögum um fiskeldi er skýrt kveðið á um að laxeldis­fyrirtæki eigi að tilkynna um öll göt á kvíum, alveg sama þó ekki séu ástæður til að ætla að eldis­fiskur hafi sloppið út um þau.

Annað dæmi um ótilkynnt göt
Annað dæmi um ótil­kynnt göt Mat­væla­stofnun birti tvær eft­ir­lits­skýrslur í nóv­em­ber þar sem fundið var að því að lax­eld­is­fyr­ir­tækið hefði ekki til­kynnt um öll göt á sjó­kvíum hjá fyr­ir­tæk­inu. Feðgarnir og nafn­arnir Gustav Witzoe eru stærstu ein­stöku eig­endur Arnarlax í gegnum norska eld­is­ris­ann Salmar.

Laxeldis­fyrirtækið Arnarlax tilkynnti ekki um öll göt sem mynduðust á sjókvíum fyrir­tækisins á eldis­svæðinu Eyri í Patreks­firði þrátt fyrir að kveðið sé á um það í reglugerð að sjókvíaeldis­fyrirtæki eigi að gera það. Þetta kemur fram í eftirlits­skýrslu frá Matvæla­stofnun sem dagsett er þann 14. nóvember síðastliðinn.

Þessar upplýsingar bætast við sams konar frávik og Matvæla­stofnun fann í rekstri Arnarlax í Arnar­firði á sama tíma og Heimildin greindi frá fyrr í vikunni. Fyrr á árinu átti sér stað slysa­slepping á 3500 eldis­löxum hjá fyrir­tækinu Arctic Fish í Patreks­firði. Sú slysa­slepping átti sér stað vegna þess að göt mynduðust á eldiskví fyrir­tækisins en neðan­sjávar­eftirlit með kvínni hafði ekki farið fram samkvæmt lögum og reglum. 

„Rekstr­ar­leyf­is­hafa ber að til­kynna um öll þau frá­vik sem leitt geta til stroks, þ.m.t. öll göt á net­pokum.“
Úr nýju laga­frum­varpi um fisk­eldi

Fimm frávik fundust, tvö alvarleg

Í eftirlits­skýrslunni kemur fram að fimm frávik hafi fundist í rekstri sjókvíanna í Patreks­firði og þar af tvö alvarleg. Eitt af þessum alvarlegu frávikum er að Arnarlax tilkynnti ekki um öll göt á sjókvíunum. 

Í eftirlits­skýrslunni frá Matvælastonfun segir um þetta: „Við skoðun á köfunar­skýrslum úr neðan­sjávar­eftirliti kom í ljós að ekki hefur verið tilkynnt um öll göt sem hafa uppgötvast . Matvæla­stofnun leitaði skýringa á þessu í fyrir­spurn sem send var 2. nóvember sl. og svör bárust þann 9. nóvember sl.  Í svörum sínum  segir Arnarlax að fyrir­tækið telji að ekki þurfi að tilkynna um göt ef fyrir­tækið meti það sem svo að ekki hafi verið grunur um strok.  Matvæla­stofnun krefst þess að stofnuninni sé tilkynnt um öll göt og önnur frávik á búnaði þegar fiskur er í kvíum.“

Þessar tvær eftirlits­skýrslur frá Matvæla­stofnun fela það í sér að Arnarlax hefur ekki tilkynnt um göt sem hafa myndast á eldis­svæðum í tveimur fjörðum á Vestfjörðum.  Eftir­litið sem þessi skýrsla byggir á átti sér stað í  Patreks­firði þann 24. október í haust og var skýrslan gerð opinber um miðjan nóvember. Eftir að MAST fór í eftirlits­ferðina, og þar til skýrslan var birt, var greint frá stór­felldum laxa­lúsa­faraldri sem olli miklum skakka­föllum hjá bæði Arnarlaxi og Arctic Fish. 

Skýrt orðalag í nýju lögunum

Í nýju laga­frumvarpi matvæla­ráðherra um fiskeldi er kveðið á um það með skýrari og afdráttar­lausari hætti að laxeldis­fyrirtæki eigi að tilkynna um öll göt á sjókvíum. Í frum­varpinu stendur: „Rekstrar­leyfishafi sem hefur ástæðu til að ætla að eldis­fiskur geti strokið eða hafi strokið skal án tafar tilkynna slíkan atburð til Matvæla­stofnunar. Rekstrar­leyfishafa ber að tilkynna um öll þau frávik sem leitt geta til stroks, þ.m.t. öll göt á netpokum. Rekstrar­leyfishafi skal án tafar hefja leit að orsökum, meta umfang og koma í veg fyrir frekara strok.“

Í þessu felst að það verður bundið í lög að laxeldis­fyrirtæki verða að tilkynna um öll göt á sjókvíum til Matvæla­stofnunar. Út frá orða­laginu í skýrslum Matvæla­stofnunar má skilja það sem svo að hingað til hafi laxeldis­fyrirtæki eins og Arnarlax ekki talið sig þurfa að tilkynna um öll göt á kvíum ef ekki hefur verið grunur um slysa­sleppingar á eldis­löxum. 

Matvæla­stofnun vísar meðal annars í reglugerð um þetta í skýrslum sínum: „Í 33. gr. í reglugerð nr. 540/2020 segir m.a.: Tilkynna skal um frávik á búnaði til Matvæla­stofnunar og til fram­leiðanda eða þjónustu­aðila.“

Sjókvíaeldis­fyrirtækin hafa hins vegar túlkað þetta ákvæði reglu­gerðarinnar þannig að einungis þurfa að tilkynna um göt ef slysa­sleppingar eiga sér stað. Með nýju lögunum er alveg skýrt kveðið á um það að laxeldis­fyrirtækin verða undan­tekningar­laust að tilkynna Matvæla­stofnun um öll göt. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þarna er ekki verið að lúsleita, eða ganga of hart að þessu framtaksama fólki með eftirliti og sköttum. Íslendingar elska að láta taka sig í bólinu. Það er búið að banna þessar gróð(r)astíur annarsstaðar sem okkar "stjórnendur" vilja ekki heyra því þetta er svo gríðarlega atvinnuskapandi. Það er náttúrulega haf og himinn á milli þessara erlendu áhrifa sem eru bara að eyðileggja náttúruna og vegakerfið okkur að kostnaðarlausu, eða þannig, eða hinna stríðshrjáðu sem eru meira eða minna laskaðir. Allt í boði Austurvallar ehf.
    0
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Burt með þennan óþverra úr Íslenskum fjörðum. Þetta gagnast ekkert kvótalausum þorpum.
    3
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Múna er verið að leggja nýja vegi um Dali vestur til laxeldisfyrirtækja . Engar krónur koma í ríkiskassann frá laxeldisfyrirtækjum til að gera vegi, en hvers vegna ? Vegirnir frá Bröttubrekku og vestur í Reykhóla eru allir ónýtir eftir alla þungaflutninga frá og að laxeldisfyrirtækjum ? Hvers vegna gerir Vegagerðin ekkert í málinu ?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár