Íslendingar nota mest ópíóða af Norðurlöndunum

Úttektum á ópíóða­lyfjum fjölg­aði á Íslandi árið 2022. Salan á þessum lyfjum jókst hér­lendis en á hinum Norð­ur­lönd­unum dróst úr sölu ópíóða. Má rekja aukn­ingu í sölu lyfj­anna til heims­far­ald­urs­ins.

Ópíóðlyf
Ópíóðlyf Aukning var á úttekt ópíóða­lyfja árið 2022. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Ólíkt hinum Norð­ur­lönd­unum jókst salan á ópíóðum á Íslandi milli 2020 og 2022, þar sem dróst úr sölu ópíóða. Það er sam­bæri­leg þróun of hefur átt sér stað und­an­farna ára­tugi. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Diljá Mist Ein­ars­dóttur, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Rekja má aukn­ingu á úttektum á ópíóða­lyfjum til COVID-far­ald­urs­ins þar sem lyf í flokki kódeíns og para­seta­móls voru notuð til hósta­still­ingar í far­aldr­inum. Ópíóða­lyf eru notuð til verkja­still­inga við slæmum verkjum. Lyfið er ávís­un­ar­skylt og er ein­göngu skrifað upp á 30 daga í senn. 

Í Talna­brunni, frétta­bréfi land­læknis, sem kom út fyrr á þessu ári kom fram að „ríf­lega 69 þús­und ein­stak­lingar hafi leyst út að minnsta kosti eina ávísun á ópíóíða á árinu 2022 sam­an­borið við ríf­lega 57 þús­und árið 2020. Árið 2021 leystu tæp­lega 61.500 ein­stak­lingar út lyf í þessum flokki. Parkódín er lang algeng­asta lyfið sem afgreitt er.“

Árið 2022 var aukn­ing á úttektum á ópíóða­lyfjum á Íslandi. Það ár fengu lyfja­fræð­ingar í apó­tekum „tíma­bundna heim­ild til að afgreiða 10 stykkja pakkn­ingar af Parkódín án ávís­unar frá lækni en Parkódín inni­heldur para­seta­mól og ópíóíð­ann kódeín.“ Um 5.600 af þeim 69 þús­und ein­stak­lingum sem leystu út ópíóða á árinu 2022 leystu út tíu stykkja pakkn­ingu af Parkódín. Engin aukn­ing hefur orðið á fjölda útleystra lyfja í flokki sterk­ari ópíóíða, svo sem óxýkó­don eða mor­fín, sem eru ætl­aðir til verkja­still­ingar við miklum og langvar­andi verkjum. Notkun þeirra  er raunar minni hér­lendis en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum.

Í svari heil­brigð­is­ráð­herra kemur fram að „Lyfja­stofnun hefur unnið að umbótum vegna lyf­sölu ávana- og fíkni­lyfja, í sam­ráði við heil­brigð­is­ráðu­neytið, sem miða að því að setja upp­lýs­inga­skyldu um ávana­á­hættu og fræðslu þegar slík lyf eru afhent í lyfja­búðum.” Land­spít­al­inn leit­ast eftir því að nota önnur lyf sem eru minna ávana­bind­andi við vægum verkjum. Ekki eru allir sjúk­lingar skimaðir fyrir fíkni­sjúk­dómi þar sem um bráða­að­stæður oft á tíðum að ræða. Fyrri sjúkra­saga er þó alltaf könnuð.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár