Enginn hreimur er betri en annar

Enginn hreimur er betri en annar
Bók

Svona tala ég

Höfundur Helen Cova/Myndir Rubén Chumillas
Karíba útgáfa
40 blaðsíður
Niðurstaða:

Fallega myndskreytt og fræðandi bók um íslensku og mikilvægi umburðarlyndis gagnvart þeim sem læra hana.

Gefðu umsögn

Helen Cova er íslenskur höf­undur af venes­ú­elskum upp­runa. Hún hefur áður gefið út barna­bæk­urnar Snúlla finnst gott að vera einn (2019) og Snúlla finnst erfitt að segja nei (2022), smá­sagna­safnið Sjálfsát: Að éta sjálfan sig (2020) og í nóv­em­ber í ár kom út ljóða­bókin Ljóð fyrir klofið hjarta. Allar bæk­urnar komu út á ensku og/eða spænsku sam­hliða íslensku útgáf­unum hjá Karíba, bóka­út­gáfu Helen Cova og Sigurðar Jök­uls­sonar, en hún var stofnuð til að vera eins konar bók­mennta­brú milli Suður-Ameríku og Íslands. Þessi áhersla á fjöl­tyngi er mjög góð við­bót í bók­menntaflór­una. 

Aðal­per­sóna bók­ar­innar, Simona, er inn­flytj­andi sem býr á Íslandi. Hún elskar mat­inn, tón­list­ina, lands­lagið og fólkið. Ísland er „heim­ili hjarta“ hennar. Hún leggur sig fram við að læra tungu­málið með aðstoð barna í skól­anum. Það er erfitt að læra tungu­mál, sér­stak­lega þegar hún nær ekki að segja orð rétt og það er hlegið að henni, sem er …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár