Heimsbyggðin og hvert og eitt okkar fylgist með vanmætti og sorg með þeim hörmungum sem nú eiga sér stað á Gaza-ströndinni. Gegndarlausar árásir á saklausa borgara undir því yfirskini að um sjálfsvörn sé að ræða eru löngu gengnar langt yfir öll þau mörk sem alþjóða- og mannúðarlög setja og eru einfaldlega óverjandi.
Ísraelsk stjórnvöld bregðast á engan hátt við áköllum alþjóðasamfélagsins um að beina ekki árásum gegn almennum borgurum með þeim afleiðingum að fleiri en 15.000 Palestínubúar hafa verið myrtir, þar af fleiri en 6.000 börn. Skammvinnt vopnahlé hefur nú tekið enda og aftur er mannúðaraðstoð og eldsneyti haldið frá svæðinu.
„Gegndarlausar árásir á saklausa borgara undir því yfirskini að um sjálfsvörn sé að ræða eru einfaldlega óverjandi.“
Ísland hefur talað skýrri röddu á alþjóðavettvangi og verður að halda því áfram og um leið afla málstaðnum fylgis. Krafan er um vopnahlé, rannsóknir á stríðsglæpum og að alþjóðalögum sé fylgt. Að endingu snýst þetta þó allt um að átökin verði stöðvuð, ekki tímabundið, heldur til frambúðar og leiðir fundnar til að leita sátta og koma á varanlegum friði á svæðinu.
Alþingi Íslendinga samþykkti, eitt fárra þjóðþinga, þingsályktun um stöðuna á Gaza þann 9. nóvember sl. Í henni er fjallað um að tafarlaust skuli komið á vopnahléi af mannúðarástæðum á Gaza, fordæmingu á hryðjuverkaárás Hamas og öllum aðgerðum ísraelskra stjórnvalda sem brjóta gegn alþjóðlegum mannúðarlögum og valda óbærilegri þjáningu óbreyttra borgara á svæðinu. Á vef utanríkisráðuneytisins er vitnað í texta ályktunarinnar sem allir þingmenn greiddu atkvæði sitt með og hún sögð kristalla afstöðu Íslands vegna átaka fyrir botni Miðjarðarhafs.
Í ályktun þingsins er ríkisstjórninni falið að beita sér fyrir aukinni mannúðaraðstoð til Gaza og fyrir rannsóknum á mögulegum stríðsglæpum. Ríkisstjórnin hefur gert hvort tveggja með því að auka framlög sín til mannúðaraðstoðar um 240 milljónir króna og kalla eftir rannsókn á stríðsglæpum hvarvetna á alþjóðavettvangi. Einnig hefur ríkisstjórnin aukið fjárframlög til Alþjóðlega sakamáladómstólsins til að stuðla enn frekar að því að stríðsglæpir verði rannsakaðir. Ályktun Alþingis hefur styrkt málflutning Íslands og til hennar verið vísað víða, m.a. í atkvæðagreiðslu UNESCO til ályktunar um neyðaraðstoð til Gaza. Þá hefur afstöðu íslenskra stjórnvalda ítrekað verið komið á framfæri við sendiherra Ísraels.
Eins og í öllum stríðum eru fórnarlömb þessa hryllilega stríðs bara venjulegt fólk - og í mæli sem enginn getur nokkru sinni náð utan um eru það núna börn. Það er skylda okkar að halda áfram að beita þeim þrýstingi sem við getum, því að þrátt fyrir að vera ekki fjölmenn þjóð getum við áfram talað skýrt um okkar viðhorf og skoðanir. Með því að samþykkja Palestínu sem sjálfstætt ríki árið 2011 tókum við skýra afstöðu og með henni stöndum við. Komið hefur fram að Útlendingastofnun hefur samþykkt umsóknir 100 einstaklinga um fjölskyldusameiningar frá Palestínu frá því að stríðið hófst - nú þarf að tryggja að þau komist hingað heilu og höldnu og halda áfram að samþykkja slíkar umsóknir.
Alþingi þarf einnig að taka til umfjöllunar og klára þingmál þingflokks Vinstri grænna um merkingar á vörum frá hernumdum svæðum Palestínu. Þar vilja okkar þingmenn fela ríkisstjórninni að grípa til nauðsynlegra ráðstafana og merkja uppruna vara sem framleiddar eru á hernumdum svæðum Palestínu á viðeigandi hátt. Þarna getum við öll lagt okkar að mörkum og sniðgengið vörur frá Ísrael.
Við erum einhuga um að þetta ástand er hryllilegra en orð fá lýst og að beita þurfi öllum ráðum til að friður komist á í Palestínu. Sama hve smá við erum á alþjóðavísu þá getum við öll gert eitthvað. Deilt á samfélagsmiðlum, mætt á mótmæli og samstöðufundi og styrkt málefnið svo eitthvað sé nefnt. Um leið verðum við að halda utan um, styðja og bjóða velkomin þau sem hingað leita að skjóli og friði.
Höfundar eru stjórnarkonur í Vinstri hreyfingunni – Grænu framboði
----------
Afsakið en eruð þið fullkomlega veruleikafirrt eða bara svona ósvífin að reyna að gaslýsa fólk? Hvaða innistæðu þykist þið hafa til að vera að hvetja fólk til aðgerða á sama tíma og þið neitið, bókstaflega, ykkar eigin þingmenn neita, að grípa til þeirra aðgerða sem þið hafið þó sjálf kallað eftir á landsfundi ykkar í fortíð. Svo ég minni á þá samþykkt sem þið hafið algjörlega svikið:
„Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn á Selfossi 23. – 25. október 2015, telur að þjóðarmorð Ísraelsríkis á Palestínumönnum verði ekki stöðvað með aðgerðaleysi. Hvetur fundurinn til þess að sett verði viðskiptabann á ísraelskar vörur og að ríkisstjórnin slíti stjórmálasambandi við Ísrael.
…
Alþjóðasamfélagið verður að sýna samstöðu með palestínsku þjóðinni í verki. Ísland skal sýna frumkvæði og áræðni í þessum málum. Þó Ísland hafi viðurkennt sjálfstæði Palestínu þá er baráttan langt frá því að vera búin. Hernaður er ekki lausnin við vandamálum í Palestínu heldur friðsamlegar aðgerðir líkt og þær sem hér eru lagðar til. Telur hreyfingin að slíkar aðgerðir séu eina rétta svarið við hernaðarbrölti stórvelda heimsins.”
Þið eruð að hvetja fólk til að mæta á samstöðufundi þar sem ákallið er bókstaflega um þessi tvö atriði sem þið neitið að fylgja eftir. Á sama tíma eruð þið að stæra ykkur af fjárlögum til mannúðaraðstoðar SÞ hverrar sem yfir 100 starfsmenn hafa verið myrtir og öll aðstaða á Gaza svæðinu verið lögð í rúst. Þið eruð að réttlæta svik ykkar með að bera fyrir ykkur fjölskyldusameiningu á sama tíma og ríkisstjórnin sem þið leiðið hefur rekið palestínska móðir og 7 börn hennar úr landi og á sama tíma og hætta er á að tvö palestínsk börn verði send úr landi ásamt frænda sínum. Þið eruð að reyna að plástra aðgerðarleysið með aumu frumvarpi um vörumerkingar sem þið ættuð að vera löngu búin að koma í gegn fyrst þið hafið lagt það fram í einhver 20 ár hafandi setið síðustu 6 í ríkisstjórn. Þingmenn ykkar eyða tíma í sýndar samstöðu og að reiðast almenningi í greinaskrifum og rifrildum á netinu í stað þess að grípa til áþreifanlegra aðgerða.
Svo birtið þið þetta, og hvað? Takið boðskapinn til ykkar sjálf. Notið stöðu ykkar í RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS til að gera meira í samræmi við fyrri loforð og sannfæringu.