Forstjórarnir svara ekki hvort einhver sæti ábyrgð á lúsafaraldri Arctic Fish

Ivan Vindheim, sem er forstjóri meirihluta­eiganda Arctic Fish, segir að íslenska stjórn­völd og Arctic Fish hafi sofið á verðinum varðandi laxa­lúsina á Íslandi. Samkvæmt nýjustu tölum voru affföll í sjókvíaeldi á Íslandi 1278 þúsund fiskar í október, að mestu vegna laxalúsar. Hvorki Vindheim né forstjóri Arctic Fish vilja svara hvort einhver sæti ábyrgð á lúsa­faraldri fyrir­tækisins.

Talsverð umræða í Noregi
Talsverð umræða í Noregi Talsverð umræða hefur verið í Noregi um laxalús­ina sem kom upp hjá Arctic Fish og Arn­ar­laxi í Tálkna­firði nú í haust. Myndin sýnir lúsétna laxa hjá Arctic Fish í Tálkna­firði. Mynd: Veiga Grétarsdóttir

Ivan Vindheim, forstjóri norska laxeldis­fyrir­tækisins Mowi sem á meirihluta í Arctic Fish á Ísafirði, hefur ekki viljað svara því hvort laxa­lúsa­faraldurinn sem kom upp hjá fyrir­tækinu í Tálkna­firði nú í haust hafi haft einhverjar afleiðingar fyrir einhvern eða einhverja af starfs­mönnum Arctic Fish. Þetta segir Ivan Vindheim í viðtali við norska blaðið Dagens Næringsliv. „Ég vil ekki ræða slíka hluti við fjölmiðla. Allt sem lítur að einstaka starfs­mönnum lítur ströngum trúnaði.“

„Lús hefur ekki verið vanda­mál á Íslandi í gegnum og ég held að bæði Arctic Fish og íslenskar stofn­anir hafi sofið svo­lítið á verð­inum.“
Ivan Vindheim,
for­stjóri Mowi

Talsverður frétta­flutningur var um lúsasfaraldurinn í norskum fjöl­miðlum eftir að Heimildin greindi frá honum í byrjun nóvember og birti myndir Veigu Grétars­dóttur af sárugum, deyjandi og dauðum eldis­löxum í sjókví Arctic Fish í Tálkna­firði í  nóvember. Sagt var frá því að meira en milljón eldis­laxar hefðu orðið lúsinni að bráð. Ástæðan er sú að umfangs lúsarinnar var svo mikið að það var talið vera án hliðstæðu.  Sá fjöl­miðill sem fjallaði einna mest um málið í Noregi var Dagens Næringsliv. 

Forstjóri Arctic Fish, Stein Ove Tveiten, segir í svari sínu við spurningum Heimildarinnar um þessi ummæli Ivan Vindheims og hvort einhver hafi sætt ábyrgð á lúsa­faraldrinum að hann geti ekki tjáð sig um þetta. „Ég er ekki með nein komment um þetta,“ segir hann í svari í sms-skila­boðum. 

Afföll í október 1278 þúsund eldislaxar

Samkvæmt Mælaborði fiskeldis hjá Matvæla­stofnun voru affföll í sjókvíaeldi á Íslandi rúmlega 1278 þúsund eldis­laxar í október.

Bara í Patreks­firði, sem einnig telur Tálkna­fjörð, voru afföllin í október 1027 þúsund fiskar. Þetta er vegna laxa­lúsarinnar.  Eins og Heimildin greindi frá þá voru tæplega 100 lýs á hverjum fiski hjá Arctic Fish í Tálkna­firði byrjun október. 

Til samburðar við þessar tölur þá ganga um 83 þúsund villtir laxar upp í íslenskar ár á hverju ári. Bara afföllin í október eru því ríflega fimmtán sinnum hærri en allur sá fjöldi villtra laxa sem gengur upp í íslenskar ár á hverju sumri. 

Segir Arctic Fish og yfir­völd á Íslandi hafa sofið á verð­inumIvan Vindheim segir að Arctic Fish á Ísafirði og yfir­völd á Íslandi hafi sofið á verð­inum varð­andi laxalús­ina á Vest­fjörðum.

Arctic Fish ekki komið nægilega langt

Í viðtali segir Ivan Vindheim að Arctic Fish sé einfald­lega ekki komið nægilega langt í sínum rekstri til að uppfylla kröfur Mowi, sem er stærsta laxeldis­fyrirtæki í heimi. Mowi hefur átt meirihlutann, 51 prósent í Arctic Fish, síðan í janúar. „Við getum bara sagt það hreint út að þetta fyrirtæki er ekki enn búið að ná þeim standördum sem við hjá Mowi setjum. Slíkir atburðir eiga ekki að eiga sér stað. Það koma upp vandamál í tengslum við lús í öllum löndum þar sem við eigum og rekum sjókvíar og við höfum tekist á við þetta með góðum hætti á öllum öðrum stöðum. Þetta ætlum við líka að gera á Íslandi til að þetta gerist ekki aftur. Það er engin ástæða fyrir því að þetta þurfi að vera svona á Íslandi.“

Vindheim sagði að laxalús hefði ekki verið vandamál á Íslandi hingað til. „Lús hefur ekki verið vandamál á Íslandi í gegnum og ég held að bæði Arctic Fish og íslenskar stofnanir hafi sofið svolítið á verðinum. Við verðum reiðu­búnir næst.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár