Óupplýsti kærleikurinn

Fríða Ísberg segir frá ljóð­inu sem breytti henni.

Óupplýsti kærleikurinn

Fyrir mér er með­fylgj­andi ljóð í raun orðið eins konar ant­hem fyrir ákveð­inn hóp af fólki sem sótti rit­list við Háskóla Íslands meðan Sigurður Pálsson kenndi þar ljóð­list. Og eins og á marga aðra, hafði þetta ljóð mikil áhrif á mig, og mér finnst enn ein­stak­lega gef­andi að leggja það fyrir nem­endur, þegar ég sjálf held nám­skeið í ljóð­list. Þetta ljóð er eins og góð plata, þar sem hvert ein­asta lag hefur verið upp­á­halds ein­hvern tím­ann.

Í byrjun, árið 2015, fannst mér eig­in­lega ekki hægt að byrja eða enda ljóð á betri hátt. Síðan fékk ég lín­una Við erum ekki án vonar á heil­ann í svona ár, og núna er það óupp­lýsti kær­leik­ur­inn sem mér finnst mik­il­væg­asta línan í ljóð­inu: Alvar­leg­ustu glæpir upp­lýs­ast aldrei þrátt fyrir við­leitni margra lög­reglu­manna. Á sama hátt er ein­hvers staðar í lífi okkar mik­ill óupp­lýstur kær­leikur. 

Madrigal 

„Ég erfði dimman skóg þangað sem ég fer sjaldan. En sá dagur kemur þegar dauðir og lif­endur skipta um stað. Þá fer skóg­ur­inn á hreyf­ingu. Við erum ekki án vonar. Alvar­leg­ustu glæpir upp­lýs­ast aldrei þrátt fyrir við­leitni margra lög­reglu­manna. Á sama hátt er ein­hvers staðar í lífi okkar mik­ill óupp­lýstur kær­leikur. Ég erfði dimman skóg en í dag geng ég í öðrum skógi, og hann er bjartur. Allt sem lifir syngur, hlykkj­ast, iðar og skríður! Það er vor og loftið ákaf­lega sterkt. Ég hef próf úr háskóla gleymsk­unnar og er jafn tóm­hentur og skyrtan á þvotta­snúr­unni.“ 

Tomas Tran­strömer, úr Fyrir lif­endur og dauða, 1989.

Þýðing: Njörður P. Njarðvík.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár