KSÍ sækir um fjármögnun fyrir hitapylsunni

KSÍ fer fram á að ríkið taki þátt í fjár­mögnun svo­kall­aðrar hitapylsu til að halda Laug­ar­dals­velli leik­færum, einnig í frosti.

Völlurinn frosinn
Völl­ur­inn fros­inn Þrátt fyrir aðgerðir KSÍ til að halda vell­inum leik­færum mat UEFA völl­inn óleik­fær­ann. Mynd: RÚV

Mikill kostn­aður fer í að halda Laug­ar­dals­vell­inum leik­færum. Í umsókn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands til Fjár­laga­nefndar Alþingis hljómar fjár­hags­á­ætl­unin upp á 40 til 45 millj­ónir króna. 

KSÍ tók á leigu svo­kall­aða hitapylsu sem þjónar þeim til­gangi að hita upp Laug­ar­dals­völl­inn og gera hann leik­fær­ann. Þrátt fyrir ráð­staf­anir og vinnu var fót­bolta­leikur Breiða­bliks, í Sam­bands­deild Evrópu, færður af Laug­ar­dals­velli vegna hættu á frosti í vell­inum. Hitapulsan dugði því ekki til.

Ákvörð­unin að færa leik­inn var ein­hliða ákvörðun UEFA, Knatt­spyrnu­sam­band Evrópu, sem mat stöðu vall­ar­ins sem svo að völl­ur­inn yrði ekki leik­fær. 

Hitapulsan var leigð frá Englandi og fer hún úr landi í dag. Pulsan virkar þannig að henni er tjaldað yfir leik­völl­inn og heitu lofti dælt þar inn. Hún hefur staðið fyrir sínu hingað til, þar sem Breiða­blik gat leikið sinn sein­asta heima leik á vell­inum þann 9. Nóvember. 

Óréttlátt að KSÍ beri eitt kostnaðinn

Í umsókn KSÍ kemur fram að þau séu full­viss um „að ekk­ert sér­sam­band hér á landi hafi þurft að greiða tugi millj­óna til þess að gera Þjóð­ar­höll/Þjóð­ar­leik­vang leik­færan. Það er ekki rétt­látt að KSÍ þurfi að gera það, eitt sér­sam­banda.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár