180 Venesúelabúum flogið út – Kaldar kveðjur í heimalandinu

Íslensk stjórn­völd flugu 180 Venesúela­búum úr landi í gær. Fólkið mætti slæmum móttökum á vellinum í Venesúela, samkvæmt Venesúela­búum sem Heimildin hefur rætt við.

Frá vellinum
Frá vell­inum Mynd sem Venes­ú­ela­búi sendi Heim­ild­inni í gær­kvöldi.

Um 180 Venesúela­búum var flogið frá Íslandi í gær. Fólkið er nú komið til heima­landsins en þar fékk það ekki góðar móttökur, samkvæmt þeim Venesúela­búum sem Heimildin hefur rætt við. 

Flugið var á vegum Útlendinga­stofnunar og evrópsku landamæra­stofnunarinnar Frontex.

„Ég þarf á hjálp þinni að halda,“ segir í skila­boðum sem einn Venesúela­búanna sendi blaða­manni í gærkvöldi. Hann sagði að fólkið hefði verið stöðvað á flug­vellinum og peningar teknir af því. 

Á vellinum segir fólkið að lögreglan hafi tekið á móti þeim og að þau hafi verið færð í húsnæði þar sem þeim er gert að dvelja næstu tvo daga. Fólk úr hópnum hefur verið yfirheyrt ítrekað og þeim gert að skrifa undir fjölmörg skjöl án lögfræði­aðstoðar, samkvæmt upplýsingum sem Heimildin hefur fengið frá fólki á staðnum. 

Myndskeið frá vellinum

Í nokkur ár veittu íslensk stjórn­völd nánast öllum þeim Venesúela­búum sem sóttu hér um hæli viðbótar­vernd vegna slæmra aðstæðna í Venesúela. Fyrr á þessu ári staðfesti kærunefnd útlendinga­mála nokkra neikvæða úrskurði Útlendinga­stofnunar í málum Venesúelabúa.

Þessu hafa Venesúela­búar mótmælt harðlega enda eru aðstæðurnar í Venesúela enn mjög slæmar, glæpa­tíðnin þar er ein sú hæsta í heimi, fáir hafa aðgengi að heilbrigðisþjónustu og flestir almennir borgarar eiga erfitt með að mæta grunn­þörfum sínum.

Fjöldi hælis­umsókna venesúelskra ríkis­borgara hér á landi hefur vaxið gríðar­lega á síðustu árum – þær fóru úr 14 árið 2018 í 1.209 í fyrra en frá janúar til september á þessu ári voru þær enn fleiri: 1.318. Eftir að kærunefnd útlendinga­mála staðfesti neikvæða úrskurði Útlendinga­stofnunar fór umsóknunum að fækka.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Greining

Ágrein­ingurinn um útlendinga­málin

„Ég tel ekki að slík frumvörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svavars­dóttir. „Þar erum við innviða­ráðherra held ég ósam­mála,“ svaraði Guðrún Hafsteins­dóttir. Þetta var gamalt stef og nýtt, að flokkarnir væru ósammála í útlendinga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætlaði sér að leggja fram frumvarp um lokað búsetu­úrræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár