Sameinast um tillögu utanríkismálanefndar

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata segir til­lögu utan­rík­is­mála­nefndar um við­brögð við ástand­inu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs senda skýr skila­boð til ráð­herra og alþjóða­sam­fé­lags­ins um stöð­una og okkar afstöðu. Píratar og Viðreisn styðja til­lög­una og hafa dregið sínar þings­á­lykt­un­ar­til­lögur um við­brögð við ástand­inu á svæð­inu til baka.

Sameinast um tillögu utanríkismálanefndar

Tvær þings­álykt­un­ar­til­lög­ur höfðu ver­ið lagð­ar fram á Al­þingi um átök­in og ástand­ið fyr­ir botni Mið­jarð­ar­hafs. Pírat­ar, Sam­fylk­ing, Flokk­ur Fólks­ins og tvær þing­konur Vinstri grænna vildu að að­gerð­ir Ísra­els­hers í Palest­ínu yrðu for­dæmd­ar og að kallað yrði eft­ir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­ástæð­um.

Tillaga Við­reisnar var sam­hljóða breyt­ing­ar­til­lögu Kanada á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ísland sat eins og kunn­ugt er hjá í atkvæða­greiðslu við til­lögu Jórdana á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í lok októ­ber eftir að þar fór fram neyð­ar­um­ræða vegna stríðs­ins fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs.
Utan­rík­is­ráðu­neytið sagði í kjöl­farið að sú til­laga hefði „snúið mjög að mann­úð­ar­hlið­inni“ en ekki tekið til „grimmd­ar­verka Hamas.“

Það var hins vegar gert í kanadísku til­lög­unni.

Á fundi utan­rík­is­mála­nefndar í morgun var málið tekið fyrir og komst nefndin að sam­komu­lagi um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu en þar er farið fram á vopna­hlé á Gaza, að hryðju­verk Hamas sam­tak­anna í Ísrael verði for­dæmd og sömu­leiðis árásir Ísra­els­stjórnar á Gaza.

„Í nafni samstöðu“

Við upp­haf þing­fundar í dag til­kynnti Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata og fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar þar sem árásir Ísra­els­hers í Palest­ínu eru for­dæmd­ar og kallað eft­ir taf­ar­lausu vopna­hléi af mann­úð­ar­ástæð­um, að hún yrði nú dregin til baka í nafni sam­stöðu.

Þór­hildur Sunna sagði í ræðu sinni að í gær hafi verið lið­inn mán­uður frá því að átökin brut­ust út. Það hafi liðið mán­uður án þess að utan­rík­is­ráð­herra hefði for­dæmt „þá skelfi­legu stríðs­glæpi sem við höfum orðið vitni að af hálfu ísra­els­hers,“ sagði Þór­hildur Sunna, án þess að sami ráð­herra hafi gert skýra kröfu um vopna­hlé strax. 

„Það var af þeim sökum sem ég lagði fram dag­skrár­til­lögu í gær til að þingið gæti rætt hver stefna íslands er í þessum málið, kom­ist að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu og sent skýr skila­boð.“

Þá sagði hún að frá því að frá því að hún lagði dag­skrár­til­lög­una fram hefði orðið sú þróun að fram væri komin til­laga frá utan­rík­is­mála­nefnd „sem sam­einar alla flokka í skýrri til­lögu sem er auð­vitað ekki 100% eins og ég hefði orðað hana sjálf en er mik­il­væg mála­miðlun og sendir mik­il­væg og skýr skila­boð bæði til ráð­herra og alþjóða­sam­fé­lags­ins um stöð­una og okkar afstöðu verði hún sam­þykkt.“

Hún sagð­ist því draga dag­skrár­til­lög­una sína til baka og sömu­leiðis þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una sem að hún og níu aðrir þing­menn, þar á meðal tvær þing­konur Vinstri grænna höfðu lagt fram. Hún sagð­ist gera það „í nafni sam­stöðu.“

Segir tillöguna mikilvæg skilaboð frá Alþingi Íslendinga

Viðreisn greindi einnig frá því í upp­hafi þing­fundar að þeirra þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem fjall­aði um við­brögð við ástand­inu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs, yrði dregin til baka.  

„Sú til­laga sem utan­rík­is­mála­nefnd hefur sam­ein­ast um er efn­is­lega sam­hljóða þeirri til­lögu okkar. Okkar til­laga var byggð á þeirri breyt­ing­ar­til­lögu sem Kanada lagði fyrir þing Sam­ein­uðu þjóð­anna og allir banda­menn okkar í Evrópu og víðar sætt­ust á þá. Þannig að þróun mála í þing­inu hér í dag hefur verið mjög ánægju­leg. Þing­flokkur Við­reisnar dregur því þings­á­lyktun sína til baka og við styðjum heils­hugar þá lend­ingu sem náð­ist á fundi utan­rík­is­mála­nefndar í morgun,“ sagði Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar. 

Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður utan­rík­is­mála­nefndar sagði í þing­inu fyrir um stundu að til­laga nefnd­ar­innar væri mála­miðlun sem byggð­ist á ályktun Jórdaníu á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna með breyt­ing­ar­til­lögu Kanada. 
„Ég tek undir með hátt­virtum þing­manni Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, varð­andi það hversu mik­il­vægt það er að þessi mála­miðlun hafi náðst um þessi mik­il­vægu skila­boð frá Alþingi Íslend­inga,“ sagði Diljá og bætti við að hún hefði eftir sam­tal við for­seta þings­ins vil­yrði fyrir því að málið kæm­ist á dag­skrá á morgun ef Alþingi sam­þykkir það.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu