Aron Daði Þórisson er verkefnastjóri útgáfu myndasögublaðs sem ber titilinn Myndasögur. Í heildina verður blaðið yfir 200 blaðsíður enda eru þar sögur yfir 30 listafólks. „Ég þori ekki alveg að fullyrða, en ég held að þetta sé stærsta myndasöguútgáfa af þessari tegund sem hefur komið út á Íslandi,“ segir Aron Daði.
Aron Daði, nemi í náttúru- og umhverfisfræði, hefur yfirumsjón með verkinu ásamt grafíska hönnuðinum Arnari Hjartarsyni. Þeir félagar hafa áður gefið út smærri myndasögur sem voru á bilinu 20–30 síður eftir færri höfunda. Eftir jákvæð viðbrögð við þeim blöðum ákváðu þeir að nú væri kominn tími á stærra blað. Tilgangurinn er að blása lífi í íslenska myndasögumenningu sem hefur, að sögn Arons Daða, verið í dvala undanfarin ár.
Epískt verkefni
„Pælingin með þessu er að sjá hvað við getum náð langt. Þetta er alveg spennandi en búið að taka á, ég viðurkenni það,“ segir Aron Daði. Áður fyrr gátu Aron Daði og Arnar dekkað prentkostnað blaðanna með því að selja nokkur eintök en nú er sagan önnur. „Við erum komin út í Karolina söfnun til að ná utan um þetta. Við erum komin með epíska bók, epískt konsept í hendurnar en það kostar epíska peninga.“
„Við erum komin með epíska bók, epískt konsept í hendurnar en það kostar epíska peninga“
Verkefnið er komið vel á leið og segir Aron Daði alls konar skemmtilegar tengingar hafa myndast milli listafólks út frá því. „Fólk er að fara út í stærri verkefni því þau byrjuðu á litlu verkefni fyrir okkur. Það er gaman að sjá og í rauninni markmiðið með þessu.“
„Margir sem teikna og skapa eru oft svolítið í sínu og með sér í því sem þau eru að gera,“ útskýrir Aron Daði. Blaðið Myndasögur er því vettvangur fyrir listafólk til að koma sínum verkum á framfæri. Höfundar kynna svo verkin sín á samfélagsmiðlum. Aron Daði telur að þannig sé hægt að ná til fleira fólks sem er annars fast í sínu mengi. „Hugmyndin er að brjótast inn í þessar búbblur, sprengja þessar búbblur og koma þeim inn í eitt stórt freyðibað.“
Hvað er myndasaga?
Í þeim myndasögum sem birtast í blaðinu verður fjallað um alls kyns viðfangsefni, til dæmis sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi, upplifun ömmu eins höfundar af samskiptum við álfa og fantasíur.
„Við fáum gagnrýni frá fólki sem fílar myndasögur hart, því við erum svolítið opin fyrir því hvað myndasaga getur verið. Við erum með listaverk eftir listmálarann Herdill og inni í málverkunum eru miklar frásagnir,“ segir Aron Daði, sem bendir á að myndasaga þurfi ekki endilega að vera í hefðbundnu formi. „Það er búið að vera gaman að fá að sjá hvernig fólk nálgast þetta á ólíka vegu.“
Sem stendur er ekki búið að ákveða útgáfudag en söfnun Arons Daða og Arnars fyrir blaðinu klárast næstu mánaðamót.
Athugasemdir (2)