„Hvernig í ósköpunum eigum við að fá svör við þessum spurningum?“

Minni­hluti vel­ferð­ar­nefndar fær ekki að kalla Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á opinn fund vegna þjón­ustu­svipt­ingar hæl­is­leit­enda sem Útlend­inga­stofnun hefur hafnað um hæli. Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, segir þetta óboð­legt.

„Hvernig í ósköpunum eigum við að fá svör við þessum spurningum?“
Fæst ekki á fund Arndís Anna, eins og þrír aðrir Píratar sem stigu í pontu á þingi í dag, er ósátt með að fá ekki að kalla Katrínu á fund vegna svipt­ingar á þjón­ustu til fólks sem sótt hefur um hæli hér á landi og verið hafnað. Mynd: Heimildin

Píratar komu einn af öðrum í pontu Alþingis í dag og lýstu óánægju sinni með að fá ekki Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á fund vel­ferð­ar­nefndar um „for­dæma­lausa svipt­ingu grund­vall­ar­rétt­inda flótta­fólks“ sem raun­gerð­ist í haust með gild­is­töku nýrra útlend­inga­laga.  

Katrín svar­aði Píröt­unum ekki en flokks­systir hennar Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir gerði það í stað­inn. Hún sagði að mála­flokkur umsækj­enda um alþjóð­lega vernd heyrði ekki undir for­sæt­is­ráð­herra. 

„Við teljum það með öllu óeðli­legt að kalla for­sæt­is­ráð­herra til,“ sagði Bjarkey. 

Steig inn íBjarkey svar­aði Pírötum en for­sæt­is­ráð­herra ekki.

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­kona Pírata, gaf lítið fyrir þau svör. Hún hafði kallað eftir upp­lýs­ingum um það hvort hægt væri að kalla Katrínu fyrir ein­hverja aðra nefnd vegna spurn­inga um þjón­ustu­svipt­ingu þeirra sem hefðu fengið neitun um alþjóð­lega vernd. Svarið sem hún fékk var að ekki væri hægt að kalla Katrínu fyrir neina nefnd, jafn­vel þó að hún hefði sjálf kallað eftir lög­fræði­á­liti um málið. 

„Við megum ein­fald­lega ekki fá for­sæt­is­ráð­herra hingað inn til okkar til að ræða þetta til að fá svör við þessum spurn­ingum vegna þess að þessi rík­is­stjórn hefur ákveðið að hún ætlar að hafa þrjár rík­is­stjórnir í þessu landi,“ sagði Arndís og vís­aði til flokk­anna þriggja sem mynda rík­is­stjórn­ina. 

Ekki einsdæmi

Hún telur stöð­una óboð­lega því svörin við spurn­ingum Pírata um þjón­ustu­svipt­ing­una, sem hefur verið afar umdeild og for­dæmd af fjöl­mörgum hjálp­ar­sam­tökum, liggi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.  

„Hvernig í ósköp­unum eigum við að fá svör við þessum spurn­ingum ef við getum ekki boðað þá ráð­herra sem um ræðir á fundi nefnd­ar­innar?“ spurði Arndís. „Þessi afstaða meiri­hlut­ans í nefnd­inni og for­manns og ráð­herr­ans er for­kast­an­leg og enn eitt dæmið um aðför meiri­hlut­ans hér á þingi að eft­ir­lits­hlut­verki þings­ins með fram­kvæmd­ar­vald­inu.“

Hefur gerst oftarHalldóra Mogensen segir málið ekki eins­dæmi.

Þá sagði Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata, málið ekki eins­dæmi. Hún bað nýverið um opinn fund í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd um útlend­inga­lögin og fram­kvæmd þeirra og fékk þá ekki að bjóða félags­mála­ráð­herra, bara dóms­mála­ráð­herra. Það þykir Halldóru ekki boð­legt, sér­stak­lega ef litið er til þess að ráð­herrar mis­mun­andi flokka tali „þvers og kruss“ opin­ber­lega um túlkun sína á lög­unum og við­eig­andi fram­kvæmd þeirra.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Angela Merkel, sem Katrín dáir, lét og lætur ná í sig í þessum málaflokki. Skammarlegt að Katrín skuli haga sér svona.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár