Ótrúleg uppgötvun James Webb: Tveir Júmbóar flakka saman um Óríon-þokuna

Stjörnu­sjón­auk­inn knái gerir upp­götvun sem ENGINN hefði í alvör­unni getað látið sér detta í hug

Ótrúleg uppgötvun James Webb: Tveir Júmbóar flakka saman um Óríon-þokuna
Óríon-þokan. Myndina tók James Webb-sjón­auk­inn fyrir skemmstu.

Þegar inn­rauði stjörnu­sjón­auk­inn James Webb hóf að senda nýjar myndir til Jarðar um mitt síð­asta ár bjugg­ust vís­inda­menn við miklu. Og þeir áttu alveg von á að ýmis­legt af því sem James ræki augun í kæmi þeim á óvart.

En þó þeir hefðu sest niður fyr­ir­fram og skrifað upp langan lista af alls­konar furðum sem sjón­auk­inn myndi gera þeim kleift að sjá, þá má þó full­yrða að þeim hefði aldrei getað dottið í það sem sést á myndum sem James Webb tók nýverið af Óríon-stjörnu­þokunni, sem svo er kölluð.

Óríón er mikið geim­ský af gas og alls­konar efnum sem er í 1.344 ljósára fjar­lægð — það má sjá hana á næt­ur­himn­inum undir Fjósa­kon­unum svoköll­uðu sem við nefnum svo.

Þar hefur lengi verið vitað að nýjar sól­stjörnur væru að mynast í gríð og erg og lík­lega heil­mikið fjör í þeim sól­kerfum sem þegar eru orðin til.

Enda fund­ust ýmis merki um það. Lítið á mynd­ina hér neðst.

En hið óvænta, já, hið alveg ótrú­lega er að fund­ist hafa um það bil 80 plánetur á stærð við gas­ris­ann okkar Júpíter, plánetur sem ekki eiga sér neina sól, heldur spana um myrkan geim­inn án nokk­urrar sól­ar­birtu.

Í sjálfu sér er það ekki stór­merki­legt. Vís­inda­menn hefur lengi grunað til séu plánetur sem eigra svona einar um. Sól­ar­lausar. Og þeir höfðu fundið merki um nokkrar. Kenn­ingin er sú að ein­hverjar ham­farir í nýju sól­kerfi hafi verið svo ofboðs­legar að sumar plánetur hafi kast­ast út úr því og séu upp frá því dæmdar til ein­mana­legrar til­veru án þess sól rísi þar nokkurn tíma.

En svo ég komi mér nú loks að efn­inu:

Það sem reynd­ist merki­legt við sól­ar­lausu Júpít­er­ana í gasþoku Óríons er að þeir eru tveir og tveir saman.

Þessir átta­tíu Júpít­erar sveima ljós­lausir um geim­inn í 40 tvíeykjum og jafn­vel hinir fær­ustu vís­inda­menn geta ekki látið sér detta í hug neina skýr­ingu á svo „snyrti­legri“ upp­röðun.

Jú — þeir gætu hafa kast­ast út úr sól­kerfi fyrir löngu, eins og ég sagði.

Jafnvel tveir í stöku til­fellum.

Júpíter og Satúrnus í okkar sól­kerfi. Það er vit­an­lega ekki svo stutt á milli þeirra í raun og veru og heldur ekki svo stutt á Júm­bó­anna.

En ekki 40 pör svo snyrti­lega upp­röðuð!

Engin lög­mál sem vís­inda­menn þekkja nú gætu búið til svo mörg og „snyrti­leg“ pör.

Sumir sitja nú við og reikna hvort vera kunni að þessir Júpít­erar hafi orðið til í efn­is­þoku sem varð aldrei nógu þung til að mynda sól.

En við því má færa sömu mót­bár­urnar.

Jújú, hugs­an­lega gæti það gerst (reyndar skilja menn bara alls ekki hvernig það gæti gerst en látum svo vera).

En varla tveir úr sömu efn­is­þokunni.

Nei, það gengur ekki.

Og ekki 40 saman í næsta nágrenni!

Þarna er eitt­hvað á seyði sem við skiljum alls ekki. En James Webb mun fylgj­ast grannt með Júpít­er­a­pör­unum á næst­unni.

Eða öllu heldur Jumbós.

 Jupiter Mass Binary Objects eins og umsjón­ar­menn James Webb eru farnir að kalla þessi plánetupör.

Og athugið eitt.

Það er mjög ólík­legt að líf þrí­fist á plánetu sem á sér öngva sól. En það er samt ekki úti­lokað. Hiti í iðrum gas­risa gæti mögu­lega kveikt ein­hvers konar líf, þótt vart yrði það svipað því sem við þekkjum.

Nýjar stjörnur sem eru að verða til í Óríon-þokunni.Myndin er frá NASA.

 

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár